Vikan


Vikan - 25.07.1974, Blaðsíða 37

Vikan - 25.07.1974, Blaðsíða 37
Llf án hennar var verra en dauði. Lif án Rósu yrði lfkast þvi að vera villtur i skógi, þar sem maður gengur um, dauðhræddur við hvert spor. En með hverjum hafði hún farið? Hann gekk að bilnum sin- um. Hún hefði ekki átt að gera þetta þegar kona var i andar- slitrunum. Hann ætti að vera kominn til Sorrens, til að varð- veita þetta litla lif, sem eftir var i Mildred. En maður átti rétt á að finna konuna sina. Jafnvel veik kona gat ekki heimtað, að hann missti konuna sina. Rósa... IX. Rósa vaknaði og skynjaði skuggalegu sumarnóttina . Tunglið var enn ekki komið, og hún gat aðeins greint ofurlitla birtu i opnum dyrunum. Allt var þögult, nema hvað hún gat heyrt öldugjálpið við bryggjustólpana, og vindinn hvisla ofurlitið i laufinu. Latimer lá við hlið hennar, og aðeins svefn hans skildi þau að. Hún hreyfði sig ofurlitið og n^ri fætinum við ökkla hans eins og til þess að verða hans betur vör. Við þetta vankaði hann og andardrátturinn hans breyttist. Hann bylti sér svolitið og sagði siðan: — Ertu vakandi, Rósa? Hún svaraði ekki strax, þvi að hún vildi láta hann halda, að hún væri sofandi. Nú vildi hún ekki tala neitt, þvi að það gæti ruglað þessari einkennilegu sam- einingarkennd. Nú var hún ekki fyrst og fremst stolt, heldur viðurkenndi hún til fulls með sjálfri, sér, að hún þarfnaðist Latimers, að hún þurfti að hafa einhvern, sem gæti veitt henni það, sem hún þráði. Einhvers, sem var sterkari en maðurinn hennar. Lew var ekki sterkur, heldur þurfti hann að styðjast við styrkleika annarra. Hans þörf var eins mikil og hennar, ef ekki meiri. En Latimer var sterkur. Og ef hún gæti látið lif sitt hvila á honum, þá yrði lifið ekki lengur kvalræði. Þá gæti hún meira að segja orðið hrifin af og lifa. Latimer sagði: — Þú ert vak- andi, Rósa. — Ég lá hérna bara og var að hugsa. — Um hvað? Morgundaginn? — Já. Þú ferð heim á morgun. Og ég lika. Ekkert hefur breytzt. — Vist hefur það breytzt. Að minnsta kosti hjá mér. Þetta... þessir dagar hafa verið mér svo mikilvægir. Þú heyrir frá mér. Við hittumst. Og svo, þegar veiðitiminn kemur. Þá opna ég húsið og hef gestaboð. Viðskipta- vini. En við megum ekki haga okkur heimskulega.... Ég er hrifinn. En þaðerekki sama sem, að við þurfum að gera neitt, sem viö iðrumst eftir. Ég verð i þess- um hjónaskilnaði i haust. Og ég vil ekki þurfa að afhenda konunni minni helming allra eigna minna. Hún hvorki verðskuldar það né þarfnast þess Og þetta ... bætti hann við hikandi.,. gæti eyðilagt allt fyrir mér. Það var sama, hvað hann sagði, eða hversu góð rök, sem hann hafði uppi, þá voru þau aldrei annað en afneitun á henni. Hann vildi hana ekki. Nú reis upp stoltið i henni, með auknum krafti og hún stirðnaði upp. Hann vildi hana ekki. Nú, jæja, hún var held- ur ekkert að sækjast eftir honum, nema hvað hana langaði nú til að særa hann þvi aðeins þaö gat hefnt fyrir orð hans og brottför frá henni. En færi hún að segja eitthvað, sem gæti sært hann, þá var það ekki til annars en að koma upp um hennar eigin móðgun, þörf og það, hve háð hún væri honum. Hún hafði boðið sjálfa sig fram, og hann var að fara. Reiðin gaus upp i henni, svo að hún átti erfitt um andardrátt. — Ég fer undir eins og bjart er orðið, sagði hún. — En ég fer ekki fyrr en siðdegis. Mér datt i hug, að leggja nokkrar akurhænur að velli, til að taka með mér heim. • — Þú getur gert, hvaö þú vilt, eða ég fer strax i morgunmálið. — Þú ert móðguð Rósa. Stoltið i þér vill ekki lofa þér að skilja, að þetta er ekki nema rétt i bili. Eða þangað til ég er orðinn frjáls maður. En þá breytist þetta allt. Hann lagði höndina á lærið á henni og strauk það. Hún dró sig i BINNI & IINNI föÓH!*. '’Mamma, þér lifiilí hú þarftaðl Þvliikir verkir\.beturefþú <Vlæraað . Þvilikt erfiðilærðir að hvila / ( skipta \ þig á milli. y sAdeginum ' milli vinnu jog hvildar. Mamma. ef þú gerir visindalegar . áætlanir, þarftu ekki að þvo upp, þvo ^þvott, strauja, elda, sópa, skúra > og gera innkaupin, allt sama Vdaginn. Þig vantar j/Ef þú hefðir sama skipulags^ hátt á og við kari- hæfileikaWf mennirnir — ykirðu v, afköstin erfiðislaust. < g) V —\r V\»i \ n \ ^ A<Kr\\\ 'OO 30. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.