Vikan - 25.07.1974, Page 30
— Það er eins og þú hafir orðið
fyrir slæmu áfalli. Ég er lika orð-
inn þreyttur, ég held að við látum
þetta nægja i dag.
Mér var ekki neitt um það gef-
iö, aö fara heim i kofann og
standa augliti til auglitis við
hana. Mér var þetta þvert um
geð, en það var ekkert við þvi að
gera.
Næsta kvöld reyndi ég ekki einu
sinni til þess að lesa. Ég lá i koj-
unni með hendurnar bak við
hnakkann og reyndi að muna við-
burði dagsins og lika forðaðist ég
að hlusta á þau, hinum megin við
dyrnar.
Þau voru að spila á spil og hún
tisti af ánægju i hvert sinn sem
hún vann. Hann muldraði eitt-
hvað ánægjulega og mér var ekki
ljóst, hvort hann var ánægður yfif
heppni hennar i spilum, eða hvort
hann gerði sér leik að þvi að láta
hana græða.
Ég heyrði ekki þegar hún kom
inn, fann aðeins af henni ilminn
og vissi að hún var i herberginu.
Ég hafði vist blundaö, en þegar ég
leit upp, horfði hún á mig, þessu
óræða augnaráði, alvarlegu, en
samt var eitthvað ástriðufullt við
það. Það glampaði á dökka hárið
og I skininu frá lampanum var
þaö gullinbrúnt.
Endicott opnaði fyrir útvarpið i
næsta herbergi og stillti það svo
hátt, að mér fannst það ærandi.
— Liður þér ekki vel, Sam?
spurði hún. Mér fannst eitthvað
sérstakt, við röddina, en sagði
samt við sjálfan mig, að það væri
imyndun.
— Mér liður prýðilega, svaraði
ég og settist upp.
— Þú snertir varla matinn.
— Ég var ekkert svangur.
— A ég að finna eitthvað annaö
handa þér?
— Þakka þér fyrir, þess gerist
ekki þörf. Hvernig gekk þér með
byssuna? spurði ég, til að breyta
umtalsefninu. Reyndirðu aö æfa
þig i dag?
, Hún hristi sig. — Ég reyndi að
visu, Sam. Ég lyfti henni upp,
meira að segja, en það var allt og
sumt. Ég hefi alltaf veriö hrædd
við skotvopn. Ég held ég gæti
aldrei hleypt af skoti. Hún hristi
sig aftur, eins og hún væri með
kuldahroll. — Það getur verið
vegna atviks, sem ég uppliföi,
þegar ég var barn, ég veit það
ekki. Hún hló ósköp vandræða-
lega — Ég ætti kannski að leita til
sálfræðings. Ertu viss um að þig
langi ekki i eitthyað?
— Alveg viss, en þakka þér
samt fyrir.
— Góða nótt, Sam.
— Góöa nótt.
Það var eitthvað við þessi spor,
sem vakti meö mér bæöi undrun
og óróa, en svo gleymdi ég þeim
fljótlega aftur. Ég var með allt
annaö i huga: vonleysi, sjálfsfyr-
irlitningu og ótta við eitthvað,
sem ég hélt að myndi ná á mér
tökum.
Ég yfirgaf Endicott og ráfaði
inn i skóginn, til að reyna að finna
einhverja villibráð handa honum,
en fann engin ný spor. Þegar ég
gekk til baka, upp með ásnum, þá
kom mér óhugnanlega i hug, það
sem skeði daginn áður, þegar ég
stóð á ásbrúninni og miðaði á
bakið á Endicott. En þá sá ég
sporin. Þau lágu meðfram min-
um sporum, nema aö þau vissu i
aðra átt, þau lágu niður á móti, og
rétt neðan við ásinn lágu þau inn i
skóginn.
Hann sat á sama trjábolnum,
með byssuna á hnjánum og
reykti. Ég hélt áfram með sama
hraöa, án þess að nema staðar og
sá hana fyrir hugskotsjónum
minum og svo....
Hann heyrði til min og stóð upp.
Mér fannst hann lita rannsakandi
á mig. Grunaði hann eitthvað?
Grunaði hann hvað hafði veriö
mér efst i huga i gær?
— Þú varst svo lengi i burtu, að
ég var farinn að hafa áhyggjur af
þér.
— Hvað ætti að geta hent mig?
— Ég veit það ekki. En þú hef-
ur verið svo ólikur sjálfum þér
siðustu dagana. Ef þú ert eitthvað
lasinn, getum við vel beðið með
veiðarnar I einn eða tvo daga.
Ég andaði léttar. Mér hafði
skjátlazt.
— Það er ekkert að mér.
— Heimurinn ferst ekki, þó að
ég veiði ekki neinn hjörtinn. Ég
kem ábyggilega hingað aftur
næsta ár. Þú ættir að halda þig
innan dyra, að minnsta kosti á
morgun. Ég get reynt að finna
eitthvert dýr nær húsinu. Ég vill-
ist ekki, ef ég fer ekki langt inn i
skóginn. Ég vil ekki að þú stofnir
heilsu þinni i voða min vegna, ég
greiði þér kaupið þitt samt.
Þá lá við að ég öskraði: —
Hvers vegna ertu svona andskoti
notalegur? En ég sagði aðeins: —
Ég er búinn að segja þér, að mér
liöur ljómandi vel. Eigum við
ekki að hætta i dag, ég hefði ekk-
ert á móti þvi, að fá eitthvað að
drekka.
Hún sat á milli okkar, með
hendur i kjöltu. Hún virtist föl i
skininu frá mælaborðinu. Skugg-
arnir gældu við andlitið á henni og
ég öfundaði þá, þvi að ekki þorði
ég að snerta hana.
— Beygðu til vinstri þarna
framundan. Það var það fyrsta,
sem ég sagði, eftir að við fórum
frá kofanum.
Endicott sveigði inn á hliðar-
götu. Það voru margir bilar fyrir
utan veitingahúsið og þegar viö
stigum út úr bilnum, heyrðum við
hávaðann frá glymskrattanum og ,
háværar raddir. Ég man ennþá
eftir laginu sem ómaöi frá glym-
skrattanum og visubrotinu:
Ég get ekki hætt að hugsa um
þig, hjarta mitt þráir þig eina....
Við gengum inn á barinn og
Endicott lagði tuttugu dollara á
borðið og bauð upp á fyrsta um-
gang. Ég hvolfdi i mig úr glasinu
og baö strax um annað upp á eigin
reikning. Bæði Endicott og Rose-
mary horfðu undrandi á mig, þau
höfðu ekki snert sin glös.
Allir gestirnir þarna inni voru
veiðimenn og allir klæddir þykk-
um jökkum og rauðum buxum,
konurnar lika. Það leið ekki á
löngu, þangað til Endicott var bú-
inn að kynnast þeim öllum,
áfengið losaði um tunguhaftið og
allir töluðu, hver upp i annan.
Einstaka sinnum mætti ég augna-
ráði hennar I speglinum yfir bar-
borðinu og alltaf var það ég, sem
leit undan. En að lokum sneri ég
mér við og horfði beint á hana.
— Langar þíg til að dansa?
spurði ég.
Hún smeygði sér mjúk-
lega i faðm minn og ég sá strax,
að þetta höfðu verið mikil mistök.
Lagið var búið og það var eins
og hún hefði lesið hugsanir minar,
þvi að hún sagði:
— Það er svo þungt loft hérna
inni. Mig- langar til að anda að
mér fersku lofti.
í fyrstu barðist ég við ástriður
minar, en svo hugsaði ég með
mér: — Þetta er kannski eina
tækifærið, og tók hana i faðm
mér.
Ég veit alls ekki hvort hún
veitti nokkra mótspyrnu fyrst,
hún var svo litil og grönn i örmum
mér og ég var svo reiður og bitur,
að liklega hef ég kreist hana of
fast. Varir hennar voru kaldar, en
svo urðu þær heitar og votar og
mér var ljóst, að kossinn var
henni alls ekki á móti skapi.
En svo opnaði einhver dyrnar.
Ég sleppti henni og sneri mér
snöggt við. Ég, hélt að það væri
Endicott, en það var bara annað
pa’r, sem var þarna i sama til-
gangi. Við.géhgum inn saman.
Dagurinn var skuggalegur,
skuggalegur eins og hugsanir
minar, það leit út fyrir snjókomu.
Ég stóð fyrir utan kofann og
beið.meðan Endicott kvaddi
hana. Það tók alltaf nokkurn
tima, hann átti eins erfitt með aö
slita sig frá henni, eins og táning-
ur, sem er að kveðja fyrstu ástina
sina. Það kom mér til að bita
saman tönnunum, þegar ég
minntist þess, hve ljúf hún hafði
verið i örmum minum kvöldið áð-
ur.
— Heyrðir þú ekki hvað hún
var aö segja, hún var að spyrja,
hvort ekki myndi snjóa i dag.
— Það er alveg öruggt, ég held
þaðsnjói mikið i dag.
Hann kyssti hana. — Jæja, vertu
blessuð, ástin min, bless á meðan,
sagði hann. — Láttu þér nú liða
vel, elskan min.
Hann var þögull þegar við
þrömmuðum af stað og ég ‘var
ekkert að trufla hann.
— Eigum við að fara á aðrar
slóðir i dag? sagði ég. Það væri
kannski heppilegast að við færum
sitt I hvora áttina. Þú ert farinn
að rata og þú getur ekki villzt, ef
þú fylgir járnbrautarhæðinni þar
eru krossgötur og þú getur annaö
hvort farið sömu leið til baka, eöa
hliðargötuna. Ég geng svolitið i
boga inn I skóginn. Ertu sam-
þykkur þessu?
Hann leit á mig og kinkaði
kolli. Skyldi hann gruna eitthvað,
hugsaði ég. Ætli hann skilji, aö“ég
er aðallega hræddur við sjálfan
mig, hræddur um hvað mér gæti
dottiö i hug?
Nú var farið að snjóa. — Þú
skalt ekki biða eftir mér, heldur
fara heim, þegar þú ert oröinn
þreyttur. En farðu ekki inn i
skóginn.
Hann kinkaði aftur kolli og
lagði af stað.
Ég gekk eftir troðningum, sem
lágu upp með hæðinni. Eftir svo-
litla stund, kom ég auga á spor
eftir hjört og fylgdi þeim. Nú var
komin regluleg skæðadrifa.
Eftir svolitla stund, sá ég spor
hjartarins, þar sem þau lágu yfir
veginn. Ég sá lika sporin eftir
Endicott. Og þegar ég kom auga á
önnur spor eftir snjóstigvél, þá
nam ég staðar. Þetta voru sams-
konarspor og éghafðiséði gær, og
nú var mér ljóst, hvað það var,
sem hafði vakið með mér ótta.
Þetta voru för eftir litlar fætur...
spor eftir konu. Ég fylgdi þeim...
Hún sat i hnipri bak við trjá-
stofn og var svo upptekin af að
miða byssunni, að hún tók ekki
eftir að ég nálgaðist. Hann hafði
numið stáðar nokkru neðar og
kveikti i sigarettu. Hann sneri
baki við henni og var sannarlega
gott skotmark.
Það var svo hljótt þarna, að
mér fannst ærandi hávaði, þegar
hún losaði lásinn. Hún hafði tekið
af sér vettlinginn á hægri hönd-
inni. Ég komst til hennar á sið-
ustu stundu, til að fella niður
byssuhlaupið. Hún tók i gikkinn,
en þumalfingur minn kom á milli
og vettlingurinn hindraði það að
skotið hlypi úr byssunni. Ég reif
af henni byssuna.
Hún lá i hnipri i snjónum með
hendurnar fyrir munninum. Hún
hafði hrokkið við, en gaf ekki frá
sér nokkurt hljóð.
Endicott hafði ekki orðið var
við neitt. Hann hélt áfram eftir
veginum, með byssuna undir
hendinni og bráðlega var hann
kominn I hvarf.
Þærkvalir, sem ég hafði gengið
i gegnum þessa daga i nærveru
hennar, voru ekkert á við það,
sem nú brauzt um i huga minum,
þegar mér varð ljóst, að hún var
ekki annað en glapsýn, ég sá og
skyldi innræti hennar á sömu
stundu.
— Jæja, svo þú kannt ekki að
fara með skotvopn, þú þykist
vera jafnvel hrædd við skotvopn
og hrædd viö skóginn. Þú sagðir
mér að þú þyrðir ekki að fara út,
vegna þess að þú værir hrædd um
að villast.
Það var látlaus snjókoma nú og
það snjóaði jafnóðum I spor okk-
ar. — Þú notaðir.tækifærið, þegar
farið var aö snjóa, svo spor þin
sæust ekki. Þú ætlaðir aö tryggja
þér það, að engan grunaði þig,
var það ekki? Þess vegna reyndir
þú ekki i gær. Og til öryggis, tókst
þú byssuna mina, svo ekki væri
hægt að rekja skotið til þin. Þegar
kúlan væri skorin úr honum, þá
var öruggt, að grunurinn félli á
mig, var það ekki. Maðurinn þinn
og allir sem þekktu ykkur, vissu
að þú kunnir ekki að skjóta.
Tvö þung tár runnu hægt niður
kinnar henni. En skyndilega varð
mér ljóst, að ég var orðinn of
gamáll til aö láta blekkjast af
slikri tálbeitu.
— Og i gærkvöldi, þegar þú lézt
mig kyssa þig, þá sástu lika um,
30 VIKAN 30. TBL.