Vikan - 09.10.1975, Blaðsíða 12
LINGUAPHONE tungumálanámskeió kennir þér nýtt
tungumál á sambærilegan hátt og þú læróir íslenzku.
Þú hlustar, þú skilur og talar síóan. Þú hefur meófædd-
an hæf ileika til aó læra aó tala á þennan hátt. A ótrú-
lega skömmum tíma nemur þú nýtt tungumál, þér til
gagns og ánægju. — Þetta er RÉTT og ÞÚ getur
sannaó þaó. — Vió sendum þér aó kostnaóarlausu
upplýsingapésa um námió. — Þegar þú hefur tekió
ákvöróun, — sendum vió þér linguaphone námskeió
í því tungumáli, sem þú ætlar aó læra.
I tXcdrcDbus s'cuf
UNGUAPHONE tungumálanámskeid
á hljómplötum og kassettum
Hljóófærahús Reykjavíkur • Laugav.96 -sími 13656
Þú getur lært nýtt tungumál á 60 tímum
12 VIKAN 41. TBL.
pásturinn
BAUGAR NEÐAN
VIÐ AUGU.
Kæri Póstur!
. Þökkum alltgamalt og gott. Við
erum hérna tvö forvitin, og lang-
ar til aö leggja fyrir þig nokkrar
spurningar:
1. Hvaö geta hundar lifað lengi
og hvenær hætta tikur að geta átt
hvolpa?
2. Hvað kostar lögleg fóstureyð-
ing?
3. Á hvaða aldri byrjar að bera
á skalla og hárlosi hjá körlum?
4. Geta hundar og kettir orðið
taugaveiklaöir af illri meöferð?
5. Hvernig lýsir beinkröm sér
og af hverju stafar hún?
6. Getur ofþreyta stafað af
miklum bóklestri og koma þá
frekar baugar undir augun?
Hvernig er skriftin og hvaö
lestu úr henni? Hver er happatala
krabba og litur? En tvibura?
Vonumst eftir svari.
Tveir breiðuvikurbúar.
Það er ákaflega misjafnt eftir
tegundum, hve iengi hundar lifa
og sömuleiðis, hve frjósemis-
skeiðið er langt. Lögleg fóstur-
eyðing kostar enga peninga hér-
lendis, en það verður aldrei Itrek-
að um of, að fóstureyöing er al-
gert neyðarúrræði. Mjög ein-
staklingsbundið er, hvenær fer að
bera á hárlosi og skalla hjá' körl-
um, og sumir verða allra karla
elstir án þess svo mikiö sem að
hærast. Dýr verða án efa tauga-
veikluö af illri meðferð. Bein-
kröm lýsir sér með þvl, að beinin
verða óeölilega lin og þeim hættir
við að aflagast. Sjúkdómur þessi
stafar af skorti á D-fjörvi. Bók-
lestur getur að sjálfsögðu verið
þreytandi, og ekki er óllklegt, að
miklar vökur við lestur bóka geti
valdið pokum undir augum.
Skriftin er ekki falleg, en úr henni
má lesa, að bréfritari er gæddur
auðugu imyndunarafli. Ekki get
ég sagt um heillaliti og tölur
krabba og tvlbura.
VANDAMÁL I
HJÓNABANDINU.
Kæra Vika!
Mig langar aö létta svolitið á
hjarta mlnu. Ég er gift og á tvö
börn. Vandamálið er hjónaband-
iö. Fyrir tveim árum fór maöur-
inn minn að sækjast meira eftir
að vinna úti á landi, vegna þess að
þar fær hann meiri tekjur, og ekki
veitir vlst af þvi. En það er alveg
að gera út af við mig að vera allt-
af ein meö börnin og heimilið. Og
þegar hann er heima, erum við
annaö hvorPyfir okkur ástfangin
eða viö hijakkrifumst. Ég elska
hann mjög mikiö, en þó munar
svo litlu, að ég hati hann. Hann er
oft undirförull og segir mér ósatt
um ómerkilegustu hluti, en þó hef
ég alltaf verið hreinskilin við
hann. Það er óþolandi að geta
aldrei treyst þvi, sem hann segir.
Börnin eru orðin mjög uppstökk
og erfiö af þessu. Við giftum okk-
ur ung, og ég tel það mestu mis-
tökin, þvi að nú höfum viö bæði
breyst og þroskast.
Mér leiðist ósegjanlega án
hans.
Við höfum oft sest og rætt mál-
in, en hjökkum alltaf I sama far-
inu. Staðreyndin er sú, að við get-
um ekki látið endana ná saman,
nema hann vinni úti á land.i. Ég
held hann elski mig, en beri ein-
hverja óskiljanlega virðingu fyrir
mér og skrökvi þess vegna að
mér stundum. Ég hef hugleitt að
skilja, en hef aldrei hugsaö þá
hugsun til enda.
Ef þú getur gefið mér einhver
ráð, verö ég mjög þakklát.
Ég mæli meö að þið ráðið fé-
lagsráðgjafa til aö ráða úr vanda-
málum hjóna, á þvl er áreiöan-
lega brýn þörf.
Annars þakka ég Vikunni fyrir
allt gott. Ég hef verið áskrifandi I
mörg ár, en vantar nauðsynlega
möppur utan um blöðin.
Ég vona, að þið birtiö að
minnsta kosti svarið.
Að lokum: Hvernig er skriftin
og hvað lestu úr henni.
Kristin.
Ég held það væri mjög misráöið
af þér aö skilja viö manninn þinn
aö svo komnu. Aöalmeinsemdin
viröist mér I fljóti bragöi sú, aö
ykkur tekst ekki aö lita á málin
hvort frá annars sjónarhóli. Held-
ur þú, aö honum þyki gaman aö
dveljast stööugt langdvölum frá
þér og börnunum? Áreiöanlega
ekki og sennilega hefur hann ein-
hvern vott af samviskubiti af þvi
aö vera ekki meira meö ykkur.
Þess vegna held ég hann skrökvi
aö þér um smámunina. Ég geri
ráö fyrir, aö hann sé I vinnu úti á
landi meö þlnu samþykki, og þú
mátt alls ekki láta I þaö sklna viö
hann, aö þetta „sé allt honum aö
kenna”. A sama hátt hefur hann
náttúrlega ekki rétt til þess aö
kenna þér um, ef illa gengur.
Mundu eitt: t okkar fyrirmyndar-
þjóöfélagi tiökast þaö enn, aö
margir lita á þaö sem sjálfsagöa
skyldu karlmannsins aö skaffa
vel til heimilisins. Þetta er ægileg
kvöð og kannski finnst manninum
þlnum hann ekki skaffa nógu vel.
Láttu hann skilja þaö á þér, aö þú
kennir honum ekki um, þótt fjár-
hagurinn sé kannski ekki sem
bestur, og reyndu aö koma honum
skemmtiiega á óvart næst, þegar
hann kemur heim. Eitt smáatriöi
getur skipt svo miklu máli.
Þú segir, aö stundum hnakkrlf-
ist þiö, þegar hann er heima. Þá
hafiö þiö bæöi hlakkaö til lengi og
eruö oröin spennt og óþreyjufull,
þegar þiö ioksins hittist. Ef eitt-
hvaö gengur þá ööru vlsi en þiö
hugsuðuð ykkur, er hætt viö, aö
skapiö hlaupi meö ykkur I gönur.
Veriö þvl á varðbergi — bæöi tvö