Vikan

Tölublað

Vikan - 09.10.1975, Blaðsíða 21

Vikan - 09.10.1975, Blaðsíða 21
skildi, og rétt í því hóf Allie skothríðina. Líkami mannsins kipptist við er kúlurnar skullu í hon- um. Hann ók sér eitt augna- blik til að reyna að losna úr greipum Cesares en varð síð- an máttlaus í faðmi hans. Hann tók að falla á gólfið, og Cesare reyndi að skríða að dyrunum. Allie hló. „Nei, þetta dug- ir ekki, heJvítis bastarðurinn þinn!“ Hann þrýsti á gikkinn. Pað kom smellur er hamar- inn féll á tómt skothylki. Hann ragnaði og fleygði byss- unni að Cesare. Hann sneri sér við og greip um ísbrjótinn. Hann dró hann út úr veggn- um og sneri sér við rétt mátu- lega til að sjá Cesare koma hægt í áttina til sín með rýt- inginn glampandi í hendinni. Hann liélt ísbrjótnum fyrir framan sig í útréttri hendi og tók að þoka sér meðfram veggnum. Hann minntist byssunnar, sem hann hafði stungið í vasann. Bros fór að koma í Ijós á vörum hans er hann lét hendina síga til að ná í hana. Pað eina sem hann þarfnaðist var svolítill tími. — 0 — Hún sat algerlega hreyfing- arlaus undir stýri í framsæt- inu á bílnum. Hendur hennar gripu svo fast um stýrið að hnúarnir hvítnuðu og augu hennar einblíndu á eitthvað úti í buskanum. Hún sneri sér hvorki né sá hann fyrr en hún fann odd rýtingsins snerta háls sinn. Hann hallaði sér upp að henni með varirnar teygðar í dýrslegri grettu. Blá augu hans skinu gulu ljósi í sólar- ljósinu. Augu hennar víkkuðu stundarkorn og sýndu svip, sem hann skildi alls ekld, urðu síðan tómleg og vör um sig. Hún sagði ekki orð. „Hvers vegna gerirðu þetta?“ spurði hann og hélt rýtingnum stöðugum í hendi sér. Hún leit upp á hann. Rödd hennar Var jafn tóm og aug- un. „Ég sagði þér það áðan. Það var starf mitt. Ég spurði Matteo engra spurninga. Gerðir bú það?“ Gult Ijósið sýndist blossa upp í augum hans. „Það var öðru vísi. Ég hélt heit mitt.“ „Og það gerði ég líka,“ sagði hún. „Við fengum að- eins greiít á mismunandi hátt fyrir það, sem við gerðum.“ „Það væri réttast að ég dræpi þig!“ sagði hann hásri röddu. Hún fann rýtingsoddinn þrýstast að hálsi sér. Hún lokaði augunum og hallaði sér aftur- á bak í stólnum. „Gerðu svo vel,“ sagði hún þreytulega. „Það skiptir sannast engu. Matteo þolir mér ekki mistökin frekar en þér árangurinn.“ Hann sagði ekkert, og þögnin sem fylgdi virtist eng- an enda ætla að taka. Hún fann hitann skyndilega hækka i innra með sér, geisl- andi um líkamann eins og hitabylgja. Hún sá tígurinn fyrir sér. Eftir augnablik gæti hún ekki haft hemil á sjálfri sér, á frygðinni, sem var að hertaka nárann. „Gerðu það þá! Ljúktu því af!“ hrópaði hún æðislega. Dauðinn þagg- aði líka niður í tígrinum. — 0 — Hann stöðvaði bílinn fyr- ir framan hótelið. „Taktu saman dótið þitt og hittu mig á flugvellinum eftir tvo tíma,“ sagði hann. „Þú verður gætinn, er það ekki?“ sagði hún og leit á hann. Hann kinkaði kolli af ör- yggi. „Við verðum lögð af stað til New York áður en nokkur veit hvað gerst hefur. Ég verð einhvern veginn að kamast í samband við Emilio. Hann kemur þessu í lag.“ Hún þrýsti hendi hans og steig út úr bílnum. Hún beið og horfði á eftir honum með- an hann ók.í burtu, en gekk síðan inn í hótelið. — 0 — Hann gekk inn í afgreiðsl- una á E1 Ciudad og gekk yfir að borðinu. „LyJdana mína, takk,“ sagði hann við af- 41. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.