Vikan

Tölublað

Vikan - 09.10.1975, Blaðsíða 15

Vikan - 09.10.1975, Blaðsíða 15
[ AÐ HEIMAN degi, þegar hann kom aftur á skrifstofuna. Þar var engan mann að sjá - ekki einu sinni gjaldkerann. Geir gekk inn í gjaldkerastúkuna og hugðist gleðja þreyttan hug sinn við að telja peningana, sem rukkarinn hafði komið með. En í peninga- skápnum var engan seðil að sjá aðeins nokkrar krónur 'og tí- kalla, sem höfðu af einhverjum orsökum legið þarna vaxtalausir síðan I gær. Á borðshorni gjald- kerans rak Geir aftur á móti augun í plastpoka, sem I voru nokkrar rúgbrauðssneiðar með JAÐ LEGGJA SJNU 24.0KTÓBER? HERDÍS EGILSD Ö TTIR KENNARI: 1 skóianum, þar sem ég kenni, eru börnin ung, allt niður I fimm ára. Þau koma hvaðanæva úr bænum og sum lengra að. Ég gæti því aðeins Iagt niður vinnu þenhan dag, að það væri mjög vel boðað foreldrum, svo að engin hætta væri á, að börn- in kæmu hér að tómu húsi. Ég er lítil baráttumanneskja utan heimavallar, en er þakklát og ber fyllstu virðingu fyrir þeim, sem berjast, innan skynsamlegra takmarka, fyrir bættum félags- legum aðstæðum. ... MARGRÉT GUDMUNDS_ . DÖTTIR LEIKKONA Ég felli mig ekki alls kostar við þetta tal um kvennaár og kvennaverkfall, því að mér finnst svolítið niðurlægjandi að grípa skuli til slíkra aðgerða til að vekja athygli á jafnsjálfsögðu máli og jafnrétti kynjanna er. En úr því að svo er, mun ég taka þátt 1 vinnustöðvuninni, ef samstaða verður um slíkar að- gerðir meðal samstarfskvenna iminna. Þá vildi ég einnig, að húsmæður gætu minnt á sín störf þennan dag að svo miklu leyti, sem hægt er. smjöri og osti. Hungrið náði tökum á honum aftur, hann greip þlastpokann og skaust með har;n inn á kontórinn sinn. Þar settist hann harla ánægður við skrifborð sitt og maulaði nesti gjaldkerans... ...Sjaldan hafði Geir verið SVALA THORLACIUS FRÉTTAMADUR Afstaða mln byggist fyrst- og fremst á því, hvort tekst að ná víðtækri samstöðu um málið, annars missa aðgerðir sem þess- ar marks. Fram til þessa hefur samstaða íslenskra kvenna al- mennt því miður verið bágbor- in, okkur er tamara að nöldra hver I slnu horni eða þá I sauma- klúbbnum fremur en sýna sam- stöðu I verki. Hvað viðkcmur sjónvarpsfréttum þennan dag hittist svo á, að af þremur frétta- mönnum á vakt eru tvær konur. Guðjón verður því að halda vel á spöðunum til að fylla frétta- tímann, ef við Sonja förum báð- ar I frl. Hins vegar má benda á, að báðir útsendingastjórar frétta eru konur, og án þeirra fara fréttir tæpast I loftið, nema þá einhver fyrirrennari þeirra karlkyns hlaupi I skarðið. eins örþreyttur og þegar hann kom heim þetta kvöld. Þar beið hans þó ekki dúkað borð með dýrindis réttum, heldur aðeins kalt og tómt húsið. Hann hafði rétt þrótt til áð skreiðast I rúm- ið, áður en hann sofnaði og svaf svo draumlaust þangað til morg- uninn eftir. Þegar hann vakn- aði, stóð Erna við rúmið hans hress og kát. Hann spurði hana, hvort þetta hefði allt verið slæm- ur draumur. - Nei, nei elsku Geir minn, svaraði hún brosandi. Það var bara tuttugasti og fjórði október I gær, og við konurnar á íslandi gerðum allar verkfall.... EDDA ANDRÉSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR: Já, ég ætla að leggja niður vinnu þennan dag. Mér skilst, að framkvæmdanefnd um þessa vinnustöðvun líti á það sem fulla þáttöku I henni, þótt vinna sé ekki lögð niður nema hluta úr degi, en mín vinna er þannig, að slíkt kæmi að engu haldi, og mun ég því ekki mæta til vinnu 24. október. 41. TBL. VIKAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.