Vikan - 09.10.1975, Side 34
Pelican
EINS OG
ÞEIR
OFLUG
_____ . MENNINGARSTARF-
EKU SEMI HIÁ DEMANT
Babbl var heldur á betri bux-
unum helgina stðustu, nánar til
tekið sunnudaginn 21. sept. s.l.
Þá brá Babbl undir sig betri fæt-
inum, bauð konunni með og
jafnframt Halla ljósmyndara og
gerði víðreist um öldurhús borg-
arinnar
Fyrst lá leiðin á Röðul, þann
fræga stað. Þeir á Röðli eru byrj-
aðir að bjóða upp á úrvalsgrúpp-
ur til áheyrnar á sunnudags-
kvöldum, og er það sjálfsagt til
að ná upp aðsókninni, sem
annars er fremur dræm á sunnu-
dagskvöldum, enda sjálfsagt
fæstir búnir að ná sér saman
1 andlitinu eftir laugardags-
kvöldin.
Hljómsveitin, sem spilaði á
Röðli þetta kvöld, var Pelican,
og var Babbl búinn að semja við
þá kappa um áheyrn á nokkrum
frumsömdum lögum, og var það
auðsótt.
Er við komum á staðinn, voru
fáir mættir og ekki enn búið
að stilla hljóðfærum upp. Við
settumst því niður og ræddum
heima og geima við þá pelican-
gaura.
Ekkert nýtt er að frétta af
þeirra margumtalaða Ameríku-
túr og verður ekki á næstunni,
en eins og flestir vita, þá var
ráðgert, að þeir pelicanar færu
erlendis þann 15. ág., en sem
sagt Ameríka bíður 1 bili. Það
Þeir hjá Demant eru nú Held-
ur að hressast og bjóða líka að-
eins það besta, eins og segir í
auglýsingum frá þeim. Það, sem
þeir bjóða uppá nýjast um þess-
ar mundir, eru skemmtikvöldin,
sem haldin hafa verið á sunnu-
dagskvöldum á Hótel Sögu og
hafa mælst mjög vel fyrir. Fyrsta
kvöldið var nú svo sem ekkert
sérstakt, en þetta hefur lagast
með hverju kvöldi og ánægjan
aukist að sama skapi. Og þetta
er ekkert furðulegt, því hvenær
hefur mörlandinn verið fljótur að
taka við sér? Óskandi væri, að
þeir demantsgaurar héldu upp-
teknum hætti, því svona til-
breytni er vel þegin hjá fólki,
einkum í skammdeginu.
babblbabbl
Þá eru Ómar og Svenni, stutt-
síðutöffarar hjá Mogganum, hætt-
ir með öllu afskípttim sínum af
Stuttsíðunni, og er það leiðin-
legt. Þeir kappar sendu frá sér
harmþrunginn og grátbólginn leið-
ara, þar sem þeir kvöddu dygga
fylgismenn síðunnar með trega.
Það verður mikil eftirsjá að þeim
félögum, því þeir hafa haldið
uppi langhressilegustu poppsíð-
unni, sé miðað við poppsíður dag-
blaðanna, ja, ef undan er skilið
leiðinlegt frumhlaup Ómars, er
hann afhjúpaði Stuðmenn, að
þeim forspurðum. Samt verður ■
ekki annað sagt en að þeir félag-
ar hafa verið mjög ferskir allan
þann tíma, sem þeir sáu um
Stuttsíðuna. Ástæðan fyrir því,
að þeir hætta nú, er að sögn
Svenna aðallega leti. Nú, svo er
hægt • að tína fram alls konar
aukaástæður. Til dæmis verður
Svenni í Háskólanum í vetur og
mun jafnframt sinna ritstörfum á
öðrum vettvangi. Hvað Ómar
varðar, þá er hann nú orðinn
blaðamaður við Dagblaðið, og
verður það hans aðalstarf.
bab’olbabblbabbl
Þrjú tonn af sandi, syngja
Haukarnir á litlu plötunni sinni
og þegar er lagið farið að glymja
í öllum óskalagaþáttum ríkisút-
varpsins. Salan hefur gengið vel
og engin ástæða til að örvænra.
Aðspurður sagðist Sveinn Guð-
jónsson, framkvæmdastjóri
Hauka, ekki geta gefið upp nein-
ar nákvæmar tölur, en salan væri
þegar orðin góð, af sölu lítillar
plötu að vera.
babblbabblbabbl
Og Paradís Péturs söngvara
Kristjánssonar gerir það heldur
ekki endasleppt með sinni litlu
plötu með lögunum Superman og
Just half of you. Platan er nú
þegar uppseld hjá þeim köppum,
og sama er að segja um margar
hljómplötuverslanir, sem plötunni
var dreift í. Lögin erú bæði far-
in að heyrast í óskalagaþáttum,
og er það sjaldgæft, þegar lítil
plata á í hlut, að bæði lögin skuli
ná vinsældum.
Smári Valgeirsson.
34 VIKAN 41. TBL.