Vikan - 09.10.1975, Page 40
mig dreymdi
AÐ GEFA STRÁK SVESKJU
Kæri draumráðandi.
Mér fannst strákur, sem ég var með f yrir stuttu,
standa upp við húsvegg hálf einmanalegur á svip. Ég
var þarna rétt hjá og fannst mér sem ég hefði ekkert
tilkall til hans.
Svo er ég allt í einu komin með sveskju í lófann, og
var hún sérlega stór og þroskuð. Ég bít svo helminginn
af henni og labba til fyrrv. skólabróður míns og spyr
hann, hvort hann vilji ekki hinn helminginn. Nei, hann
segir mér frekar að gefa stráknum, sem ég var að
tala um, sveskjuna. Þá finnst mér það vera alveg hár-
rétt hjá honum og við löbbum bæði til hans. Ég rétti
stráknum sveskjuna og hann borðaði hana.
Viðstóðumá háum grasstalli og þaðan var stigi nið-
ur. Niðri f innst mér vera veitingahús. Við vorum bæði
svöng, og mér fannst við ætla niður í veitingahúsið.
Þá vaknaði ég. Strax þá fannst mér þessi draumur
vera táknrænn og ég bið þig endilega að birta hann og
ráða í blaðinu.
Með fyrirf ram þakklæti
Ein berdreymin á Vopf naf irði.
SPÁÐ I FJÓRA BOLLA
Kæri draumráðandi
Viltu vera svo góður að ráða þennan draum f yrir mig.
Mér fannst ég vera f lutt í nýja íbúð, ég var afskap-
lega einmana, og börnin mín voru ekki hjá mér.
Allt i einu heyrði ég einhvern berja að dyrum og mág-
kona systur minnar er komin til að heimsækja mig. Ég
hef ekki séð þessa mágkonu mína í mörg ár. Hún spyr
mig, hvort ég vilji ekki koma út með sér, því ég sé svo
þung í skapi. Ég fellst á það og við fengum okkur kaff i
og spáðum í bollana hvor fyrir aðra. Ég hvolfdi f jór-
um bollum f yrir mig. Tveir þeirra voru alveg eins, og í
þeim sást landslag, f jöll og sólin skein glatt.
Ég man ógreinilega hvað var í einum bollanum, og
sá f jórði var afar f urðulegur. Þar sá ég konu í nunnu-
klæðum með kross um hálsinn í langri keðju. Ég held
að krossinn hafi verið úr silfri. Konan kraup fyrir
framan dökkhærða konu, sem líktist mér mjög. Allt í
einu breyttist sú kona í Ijóshærða, gullfallega konu og
hafði hún sett hár sitt upp. Ég horfði stanslaust í boll-
ann, þangað til mér fannst ég vera að horfa á Ijós-
mynd. Þannig endaði draumurinn.
P.S. Hvað merkir naf nið Erna og hvað getur það boð-
að í draumi. Hvað merkir það að sjá inn í opið her-
bergi sitt, allt úr því horf iðog ný hreinsað.
Þessi draumur er greinileg ábending til þín. Þú
skalt ekki snúa baki við þeim, sem reynast þér vel og
eru þér góðir. Varastu að taka skjótar ákvarðanir.
Nafnið Erna hefur merkinguna „Hin hressa" saman-
borið við ern, sem þýðir hress, ern maður er hress
maður. Að dreyma Ernu getur haft margvíslega
merkingu, og fer það eftir draumnum í heild, hvað
hún boðar. Að dreyma opið autt herbergi gæti boðað ó-
væntan atburð, sem þú eða einhver þér nákominn
verður fyrir á næstunni, en þó er þaðekki öruggt.
FRÁ HÆGRI TIL VINSTRI
Kæri draumráðandi
Mig dreymdi draum um daginn, sem mig langar að
biðja þig að ráða.
Ég var í stórum svörtum fólksbíl, sem afi minn á,
og fannst mér hann vera á ferð. Við stýrið sat einhver,
sem ekki hafði bílpróf og ég vildi ekki aka með í bíln-
um, og stökk því út úr honum. Þegar ég kom út úr bíln-
um sá ég strák, sem ég er mjög hrif in af. Ég ætlaði að
hlaupa til hans, en í því kom bíll, og ég hljóp út á hægri
kantinn og og svo til hans, sem var vinstra megin á
götunni.
Þá spurði hann mig, hvers vegna ég hefði fyrst
hlaupið til hægri, og svo til hans, í stað þess að fara
beint. Ég heyrði ekki hvað hann sagði svo, og hváði.
Þá endurtók hann setninguna, en ég heyrði ekkert sem
fyrr. Þetta endurtók sig nokkrum sinnum, en þá
vaknaði ég.
Með f yrirf ram þökk,
Ragnheiður.
Þú virðist ekki vera eins hrifin af þessum strák, og þú
heldur að þú sért. Allavega hleypur þú ekki beint til
hans, þegar hann kallar, og virðist vera í vafa. Margt í
þessum draumi bendir til þess, að þú eigir eftir að
uppgötva eitthvað merkilegt á næstu mánuðum.
Sigrún. Rvík.
Það er mjög augljóst, að þú ert undir miklum áhrif-
um frá þessari konu, sem líkist þér í draumnum.
Draumráðanda virðist einna helst sú merking vera í
draumnum, að þú sért eitthvað óánægð með þig og
ósátt við tiiveruna þessa dagana. Hann ræður það líka
af þessum draumi, að allt fari að lagast, og að þú eigir
eftir að heimta gleði þína á ný innan skamms. Eitt-
hvert atvik verður til þess að breyta hugarfari þinu.
STJÖRNUHRAP OG JARNARUSL
Kæri draumráðandi
Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig draum,
sem mig dreymdi nýlega. Hann var á þessa leið: Mér
fannst ég vera heima hjá mér þar sem ég bý núna, en
umhverf ið var gjörbreytt og möl var fyrir utan húsið.
Ég var stödd fyrir utan húsið, þegar ég heyri skyndi-
lega hvell. Ég lit úpp og sé þá gula stjörnu, sem mér
finnst springa og hrapa til jarðar. Ég segi við mann-
inn minn, að þetta finnist mér sniðugt. Ég hef aldrei
séð stjörnuhrap áður, en þessi stjarna lenti, þótt ein-
kennilegt megi virðast, fyrir framan gluggan á eld-
húsinu. Þegar stjarnan er komin niður, segi ég mann-
inum mínum að ná í hana, þvi að ég ætli að eiga hana.
Hann fer af stað og ætlar að ná í stjörnuna, en kemst
að því að þetta er eitthvert járnarusl. Hann tekur það í
sundur og segir við mig að ég hafi ekkert við þetta
drasl að gera. Ég mótmælti því, og segist í það
minnsta ætla að eiga annan helminginn af þessu. Og
þá vaknaði ég.
Guðbjörg, Siglufirði
Þessi draumur er afar sérkennilegur og torráðinn.
Hann gæti i raun og veru haft tvær ólíkar merkingar,
en þó er önnur liklegri. Hún er sú, aö innan tíöar kynn-
ist þú persónu, sem þú færö miklar mætur á og treyst
ir. Með ykkur tekst vinskapur, en eftir að hafa kynnst
þessari persónu náið, kemstu að því, aö hún er ekki
eins heilsteypt og þú hugöir. Þú verður eðlilega fyrir
geysilegum vonbrigðum, og átt mjög bágt meö aö slíta
kunningsskap við hana endanlega, svo aö þú kýst að
halda honum áfram, þó svo að um lítið samband á
milli ykkar sé að ræða.