Vikan - 09.10.1975, Qupperneq 42
UIKAN BVOUR K*
Ef þú ert byrjandi i kryddlistinni
borgar sig aö kaupa sér aðeins
nokkur glös f einu t.d. 2—3 stk, i
senn, og kynnast bragöi þess og
eiginleikum, áöur en haldiö er af
staö aö nýju til aö kaupa meira.
Þaö þarf aöeins aö læra á tegund-
irnar áöur en maöur veröur fær
um aö blanda mörgum samah.
Kauptu þá heldur einhverja af
þessum tilbúnu blöndum sem sér-
fræöingar hafa blandaö saman.
Viljiröu svo hafa eitthvaö annaö
bragö meira afgerandi en er i
blöndunni s.s. hvitlauk, þá er
aöeins sett meira af hvitlauks-
dufti saman viö. Þegar þú ert svo
oröin vön i meöferöinni á krydd-
inu geturöu fariö aö gera tilraunir
sjálf (sjálfur). Þótt eitthvert
krydd sé ekki i uppskrift, sem
veriö er aö matreiöa eftir, er ekki
úr vegi aö bæta þvi viö sem þú
hefur augastaö á og nota þar þinn
eigin smekk. Notiö heil krydd í
rétti sem þurfa suöu, en malað
krydd tapar sér tiltölulega fljótt
og er þvi ekki eins hentugt til
langrar suðu.
Hér fara á eftir tegundir af
heilum kryddtegundum sem
oftast eru sterk i sinni uppruna-
legu mynd og svo siðar þau
mildari.
Fenugreek fræ
Þaö tilheyrir eftu blómafjöl-
skyldunni. Fræbelgirnir eru til-
tölulega stórir i hlutfalli við
plöntuna. Fræin eru sjaldan notuö
ein sér en þvi oftar I blönduö
krydd og eru stór hluti i t.d. karri
blöndu. Það er bragðmikið, ilm-
andi,dálitiö biturt en ekki mjög
sterkt.
Chiiiduft
Það er blanda sem aöallega
stendur saman af chilipipar,
karve, oregano, hvitlauk og
stundum allrahanda og negul.
Notað i Chili con carne (Chili með
kjöti) og aðra pottarétti.
Cayennapipar.
Sá allra sterkasti af Capsicum-
ættinni. Sú mildasta af þeirri ætt
er paprika, og hún er það mild að
hana má borða hráa og soöna
sem grænmeti. Cayennapipar er
svo sterkur að gæta veröur
itrustu varkárni við notkun hans.
Einiber
Þau eru ræktuð i Frakklandi og
setja gott bragð af villtu kjöti.
Gurkemeie (Turmeric)
Hefur verið þekkt i Evrópu frá
fornu fari. Sjaldan er það notað
eitt sér en vegna hins sterka gula
litar, sem það gefur, er þaö notaö
i karryblönduna. Bragðiö er mjög
milt og er notað i hrisgrjónarétti
og þar sem nota á saffran má
nota gurkemeie til að fá þennan
fina gula lit.
Engifer
Það er af kryddliljufjölskyld-
unni. Það er rótin sem er notuö,
heil, steytt og sultuð. Sultaöur
engifer þykir lostæti i austurlönd-
um og seldur i fínum postulins-
krukkum, og er notaöur i ábætis -
rétti. Heill engifer er notaöur i
súr/sæta niöurlagningu og steytt-
ur i bakstur.
Kanill
Hann er einn af elstu kryddteg-
undum sem þekktar eru, og var
þegar í notkun 2700 árum fyrir
Krists burö. Þaö er innsti hlutinn
af berkinum sem notaður er. 1
austurlöndum mun hann vera
notaður i ástardrykki en viö not-
um hann út á grauta og I krydd og
eplakökur.
Kapers.
Jurtin er fallegur runni meö
grænum blööum og hvitum blóm-
um. Blómknapparnir eru lagöir i
væga salt/edikblöndu og notaöir
sem krydd i salöLbrúnaö smjör
og hrátt buff. Minnstu kapers-
kornin eru best. Liggi þau of
lengi i leginum veröa þau lin og
ekki eins góö.
42 VIKAN 41. TBL.