Vikan - 29.07.1976, Blaðsíða 4
sagði mömmu þegar ég kom heim,
að ég hefði ákveðið að gerast
íþróttakennari. Ég hef sjálfsagt
verið mjög óvenjuleg stúlka, úr því
að ég átti ekki þann draum að verða
flugfreyja. En ég skal viðurkenna
það, að þegar ég byrjaði að fljúga,
þótti mér það skemmtilegra en að
kenna, þó að mér finnist það ekki
núna.Ég gerðist flugfreyja vegna
þess að ég hafði kennt í 3 vetur,
án þess að fá fastráðningu, og vildi
þess vegna komast í örugga vinnu.
— Nei, ég var ekki ein af þeim,
sem byrjaði að synda 3ja ára, ég
var meira að segja orðin 12 ára,
þegar ég byrjaði að keppa í sundi.
Og núna syndi ég allt of lítið, þó að
ég telji sundið bestu íþrótt, sem völ
erá.
Russu-kussu
hreyfing
— Hvað finnst þér um kvenrétt-
indabaráttuna, Sævar?
— Hún er bara bull. Ég kalla hana
russu-kussu hreyfinguna, og ég
held, að þær konur, sem þerjast
fyrir auknum réttindum, geri sér
ekki grein fyrir, að það var vegna
þess að karlmenn báru virðingu fyrir
konum, sem þeir vildu láta þær vera
heima. Karlmenn hafa aldrei viljað
ráða yfir konum, þetta mannrétt-
indatal er bara byggt á misskiln-
ingi. Margar af þessum konum,
sem kalla sig rauðsokkur eða kven-
réttindakonur og ég hef séð myndir
af, eru feitar, hálsstuttar, rassíðar
og læramiklar og ég er viss um að
þær hafa ekki getað náð sér í
mann, eða eru hreinlega giftar
röngum gæja.
— Konum er ekki misboðið, og
ég held, að það sé leit að einka-
fyrirtækjum, sem undirborga kon-
um. Jú það getur verið að karh
menn fái önnur starfsheiti en konur,
sem vinna sömu störf, og þar af
leiðandi hærra kaup, og það er auð-
vitað óréttlátt. Ætli ástæðan fyrir
því sé ekki sú, að hér áður fyrr
þurfti maðurinn að ,,hafa titil"
eða vera af heldri manna ættum,
annars vildu stelpurnar hann bara
ekki. Fordómarnir eru ekki síður hjá
kvenfólkinu. Og það gleymist líka
oft, að til eru störf, sem karlmenn
vinna og konur geta hreinlega ekki
og öfugt. En hingað til hefur það
verið svo, að ef karlmaður tekur að
sér að vinna starf, sem konur vinna
eingöngu, er hann kallaður hommi
eða aumingi. Hvernig er hægt að
búast við að ástandið batni, þegar
hugsunarhátturinn er svona?
Hni/.iliuktiffi
IWalskaffi
m
W>
' ' S f
\ P
4 VIKAN 31. TBL.