Vikan - 29.07.1976, Blaðsíða 28
Á ÓTRÚLEGA HAGSTÆÐU VERÐI
Já, nýja ódýra kassettusegulbandstækið frá Philips
verður aðalferðafélaginn í sumar.
Þetta nýja tæki, N 2208 hefur alla kosti dýrari tækja, t.d.
innbyggðan hljóðnema, sjálfvirka upptöku, aflmikinn
magnara og er auðvitað bæði fyrir rafhlöður og 220 volt.
Líttu við sem fyrst, það borgar sig.
N 2208 er aðeins eitt af 20 gerðum segulbandstækja frá Philips
Fullkomin varahluta-og
viðgerðarþjónusta.
heimilistœki sf
Haf narstræti 3—Sætúni 8
Einmitt þess vegna spurði
ég yður, hvort yður geðjaðist vel
að karlmönnum. Ef þér hafi<5
fleiri en einn f takinu, þá er vald
þeirra yfir yður þeim mun minna.
Ég fyrir mitt leyti vil frekar gera
tvo menn hamingjusama en einn
ðhamingjusaman."
„Elska fleiri en einn mann?“
sagði Marianne hneyksluð. „Það
gæti ég aldrei!“
Fortunée reis á fætur og teygði
úr sveigjanlegum likama sínum.
Brps hennar var bæði vingjarn-
legt og hæðið.
„Þér eruð of ungar til þess að
skilja þetta. Við skulum ræða
þetta seinna. Skrifið nú fáeinar
lfnur til ameríkanans og bjóðið
honum að koma hingað. Hvar er
hann til húsa?“
„Að Hotel de l’Empire við Rue
Cerutti."
„Það er stutt héðan. Ég ætla að
senda mann þangað. Þarna á
borðinu eru skriffæri."
Fáeinum mínútum sfðar lok-
aðist hliðið á hæla sendiboðans
og Marianne tðk að snyrta sig
betur en hún hafði haft tækifæri
til að Tuileries. Þótt hún vildi
ekki viðurkenna það til fulls, þá
hlakkaði hún til að sjá Jason aftur
ásamt þeim Jolival og Gracchusi,
en hún vissi að þeir myndu vera á
hótelinu hjá honum einmitt núna.
Allir þrír áttu þeir hug hennar og
hjarta, enda höfðui þeir sýnt henni
sanna vináttu. Er hún hafði lokið
við að skrifa bréfið og þjónninn
var farinn hafði Fuortunée allt f
einu spurt hana, hvort Jason
elskaði hana og Marianne hafði
svarað henni í einlægni.
„Nei, f raun og veru ekki. Hann
telur sig standa f þakkaskuld við
m(>g og þetta er heiðarlegur
maður. Nú vil hann fá mér aftur
það sem hann hafði út úr mér.
Hann verður vonsvikinn, að ég
skuli ekki fara með honum, en
meira ekki.“
„Hefur hann aldrei farið fram
á að þeir greidduð þann hluta
veðmálsins, sem snerti yður per-
sónulega?"
„Nei, nei. Ég held að honum
finnist ég geðfelld en ekkert fram
yfir það. Hann er dálftið sér-
stæður náungi. Meira en nokkuð
annað elskar hann sjóinn, skip
sitt og áhöfn. Það er ekki mikið
svigrúm fyrir raunverulega ást f
lífi hans.“
Fortunée hafði ekki gengið
frekar á hana. Hún hafði einungis
yppt öxlum og brosað blftt. En
klukkutfma seinna, þegar hringt
var dyrabjöllunni og gestur
boðaði komu sfna, þá birtist hún
alklædd i viðhafnarstofunni.
Ameríkaninn hafði greinilega
vakið forvitni hennar. En komu-
maður var ekki Jason. Er
konurnar tvær gengu inn um
dyrnar kom Arcadius de Jolival
inn um aðrar. Hann var klæddur
28 VIKAN 31. TBL.