Vikan - 16.09.1976, Blaðsíða 13
Sel 9 LS, England. Og skrifaÖu
endilega á ensku, þeir eru víst ekki
sterkir í tslensku bretarnir.
Skriftin er læsileg en ekki falleg,
úr henni les Pósturinn allmikinn
sveigjanleika og aðlögunarhœfm,
og líklega þarftu að temja þér
rökréttari hugsun. Þú ert fjórtán
ára. Stelpur geta orðið messar á
skipum.
Á ALLTAF AÐ SEGJA MÖMMU?
Hæ Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áður.
Ég veit voða lítið um kynlíf. Á
maður alltaf að segja mömmu
sinni, þegar maður fer á túr? Eru til
graðpillur? Eru þær notaðar fyrir
bæði kynin? Þarf að hafa unglinga-
próf til að fara í dansskóla?
Hvað þýða nöfnin Hera og Stína?
Ein fáfróð um kynlíf.
Þú ýkir ekki, þegar þú segtr, að
þú sért fáfróð um kynlíf. Bréf þitt
ber þess greinileg merki. að svo er.
Reyndu að verða þér úti um bóktna
Sextán ára eða um það btl. Hún
mun að vísu vera uppseld hjá
útgefanda, cn ekki er útilokað, að
hún fáist enn í stöku bókabúð, og á
bókasöfnum er hún áretðanlega
fáanleg. Ekki sér Pósturinn neina
ástceðu til. að mxður fái sérstaka
greinargerð í hvert sinn, sem dxtur
þeirra hafa á klxðum, en Póstunnn
litur svo á, að mjög œskilegt sé, að
rnxðgur geti rxtt kynlífsmál í fulln
einlxgni. Kynörfandi !yf ku vera
til, en Pósturinn er ekki sérlega vel
að sér um notkun þeirra og hefur
enga ástxðu til að halda, að þú
þurfi á þeim að halda. Gleymdu
þeirn, í bili að minnsta kost/. Það
þarf ekki unglingapróf til að Ixra að
dansa. Nafnið Hera er af grískum
toga spunnið. Hera varísenn systir og
etginkona Seifs, aðalátrúnaðargoðs
forngrikkja. Hera var því ein konar
drottning himnanna. Stína er oftast
nxr stytting á nafninu Knstín, sem
einnig er upphaflega grískt heiti og
merkti kristin kona.
HÚN DÚLLA Á SIGLÓ.
17.8 Sigió.
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifað áður, en
vonandi kemur það ekki að sök. Ég
á við alveg hræðilegt vandamál að
etja í sambandi við unglingabólur.
Ég hef reynt margslags krem, en
3au halda bólunum bara í skefjum,
ég vil að þær hverfi alveg. Ég er
búin að vera svona I að minnsta
kosti 2 ár. En vegna stöðu minnar
hér á hjara veraldar kemst ég ekki til
snyrtisérfræðings (að ég held).
Getur þú ekki ráðlagt mér
eitthvað sem kemur að gagni.
Hvað heldur þú að ég sé gömul
og hvað lestu úr skriftinni? Ef
ruslakarfan fræga hreppir ekki bréf-
ið mitt, þá 1 guðanna bænum birtu
ekki nafnið mitt.
Með fyrirfram þökk. Dúlla.
Það er svo sannarlega ekki gaman
að stríða við unglingabólurnar svo-
kölluðu. Ef til vill er það þér örlítil
huggun að um það bil helmingur
allra unglinga hefur áhyggjur af
nákvœmíega þessu sama. Margar
aðferðir hafa verið reyndar gegnum
árin, með misjöfnum árangri þó.
Ofáir unglingar hafa gersamlega
eyðilagt húð stna með alls konar
tilraunastarfsemi. Gxttu þín á að
vera ekki að klína á þig þessum
kremtegundum, sem seldar eru í
öllum ,,sjoppum" og matvöru-
búðum. Það getur svo sannarlega
gert illt verra. Varastu allt sem sykur
er t, t. d. gosdrykki, sxlgxti og þess
háttar. Sykurinn getur nefnilega
framkallað bólur fyrir þig á ör-
skömmum tíma. Slepptu því alveg
að vera að kreista bólurnar, —
nema í neyðartilfellum. Hreinsaðu
þá húðina í kringum bóluna með
sprittupplausn. Hafðu svo engar
áhyggjur, bólurnar hverfa um leið
og þú kemst af kynþroskaaldrinum.
Aldurþinn er á bilinu þrettán til
fimmtán ára og skriftin ennþá mjög
Þórunn D. Einarsdóttir, Hlíðar-
götu 1, Sandgerði, óskar eftir
bréfasambandi við stráka og stelpur
á aldrinum 13—14 ára. Mynd fylgi
fyrsta bréfi.
Auður Gunnarsdóttir, Markarflöt
10, Garðabx óskar eftir penna-
vinum á aldrinum 13—14 ára. Hún
er sjálf 13 ára.
VÉGG-OG LOFTKLÆÐNINGAR
HarðviAarsalan
Grensásveqi5— P.O.BOX 1085 Slmar85005-85004
38. TBL. VIKAN 13
4