Vikan - 16.09.1976, Blaðsíða 21
HELEN MACINNES
SNARA
FUCLr
ARANS
an sig. „Napoleon lét jafna þetta
virki við jörðu eftir að búið var að
undirrita friðarsamninga við
austurríkismenn. Honum tókst
aldrei að taka það með áhlaupi."
Hann hélt áfram, en virtist nú
vera orðinn leiður á pípunni og
sló henni við skóinn sinn. i>ví
næst benti harin með munristykk-
inu á vasa Davids. „Ert þú líka
tarinn að reykja pípu?" sagði
hann og brosti breitt. Þetta var í
fyrsta skipti, sem David hafði séð
hann brosa.
David tók upp skammbyssuna
svo að Krieger gæti séð hana.
„Irina á hana þessa, eða öllu
heldur faðir hennar. Hún bað mig
að geyma hana, en ég hef ekki
hugmynd um hvað ég á við hana
að gera," sagði hann og fór hjá
sér.
„Láttu hana alls ekki í töskuna
þína,“ sagði Krieger. „Það verður
ef til vill leitað í.henni og kannski
er einhver að því einmitt núna."
„Æ, vertu ekki að þessu."
„Ég sagði „kannski". Það fer
eftir því hvort Ludvik og
kumpánar hans hafa elt ykkur frá
Graz. Og þvi ekki það? Þeir vissu
hvar ykkur var að finna i
Dúrnstein. En ég skil ekki hver
hefur getað sagt þeim það."
„Ekki Irina. Hún vissi ekki að
ferðinni væri heitið til Dúrn-
stein."
,.()g af sömu ástæðu þá ekki þú
heldur. En ég vissi það og Jo."
„Og Mark Bohn."
„Já. en ekki fleiri. En hver vissi
um Graz? Þú og ég. Jo og Irina?"
„Já, ef Irina hefur þá haft
eyrun opin. Hún hafði um nóg
annað ,að hugsa. Og ég Irúi þvi
ekki að Jo..."
„Ekki ég heldur," sagði
Krieger. „Eg hef þekkt George
frienda hennar árum saman. I
seinni heimsstyrjöldinni starfaði
hann hjá SOK-Special Operations
Kxeeutive. Bretar nota þetta heiti
yfir þá deild innan iiryggisþjón-
ustunnar. sem vinnur skítverkin.
Eg hitli Jo i London heima hjá
Sylvester. llenni er örugglega
treystandi. Hún var i miklu uppá-
haldi hjá Jaromir Kusak. Hann
var þá nýflúinn frá Tékkó-
slóvakíu... en hún getur sjálf sagt
þér alla þá sögu."
„Ilefur nokkuð ITést af Kusak?
Er Sylvesler kominn með hann á
ákveðinn stað?"
„Eram til þessa hefur Sylvester
aöeins gefið bækur hans út. Von
er á nýrri skáldsögu næ'sta vor,
þeirri fyrslu i tuttugu og tvö ár og
*Sylvester segir það vera meiri
háttar vérk. Þeir í Prag verða
áreiðanlega ekki hrifnir. Bókin
mun víst vera algjör andstæða
þess, sem þeir voru að reyna að
telja hann á að skrifa þegar hann
var enn i Tékkóslóvakíu. llið eina
sem hann birti þá var smásagna-
safn, tómar sveitalifslýsingar.
hvorki stjórnmál né áróður eða
hvítþvottur. Þetta eykur því enn
áhættuna fyrir okkur öll. Þeitj
vilja re.vna að eyðileggja hand-
ritið og ef til vill koma Kusak
fvrir kattarnef. 1 það minnsta
koma á hann óorði. Titill bókar-
innar er Veturinn í Prag og það
eitt út af fyrir sig mun Jiri Hrá-
dek aldrei f.vrirgefa honum.
Þeir voru nú komnir út á mikla
grasflöt, en þar hjá var útiveit-
ingastaður, nokkrar minjagripa-
verslanir og bílastæði. Það var
rúmgott, en sanú var þar mikil
þröng. Allt var á iði og það
skapaði vissa ör.vggiskennd.
Öryggiskennd. hugsaði David
hálfbitur. „Hvers konar tíkar-
sonur er þessi Jiri Ilrádek eigin-
lega?"
„Hann er skarpgáfaður. út-
smoginn. kaldril'jaður og einbeitt-
ur. llann getur lika verið aölaö-
andi ef á þarf að halda. með ein-
hegt bros og hlýtt handtak. Hann
er.tnjög l'ramgjarn og hefur náð
langt. Ilann virðist vera hlið-
hollur núverandi stjórn landsins,
en er þó sennilega heldur lengra
til vinstri. El' gömlu harðlinu-
kommúnistarnir komast aftur til
valda. þá verður Jiri áreiðanlega
þar innsti koppur í búri. 1 útliti er
hann hávaxinn. dökkur yfirlitum
og kriiftugur að sjá. Mér skilst að
konur séu hrifnar af honum.
Hann er f jörutiu og eins árs og.„."
Krieger leil á David. „Ertu búinn
að fá nóg?"
„Ertu viss um að Ilrádek sé
yfirmaöur Ludviks?"
„I fyrstu starfaði Hrádek í
áröðursdeild öryggisþjónust-
unnar. Þvi næst var hann l'ærður
yfir i öryggislögregluna, en er
með úlsendara bæðt erlendis og
Mikið og vandað vöruúrval.
Handskorinn kristall
Mótaður kristall
Litaður kristall
Glervörur í miklu úrvali
Onix vörur mjög fallegar
Styttur í fjölbreyttu úrvali
Keramik frá Glit
- og margt annað sem er þess virði að líta á.
Vörur fyrir alla - Verð fyrir alla
IKIÍU-
IIIIIHIIII
Laugavegi 15, sími 14320.
38. TBL. VIKAN 21