Vikan - 06.01.1977, Blaðsíða 47
Þessa nótt gista þau í New York,
en daginn eftir halda þau af stað
með járnbrautarlest, óendanlega
langa leið. Fyrst í norður með
viðkomu í Boston. Yfir kanadísku
landamærin rétt sunnan við Mont-
real. Þar er snúið til vesturs og
áfram er skrölt. Gegnum Ottawa,
yfir endalausa sléttuna, um Sud-
bury, vestur með Efra-Vatni og
spölkorn i suður, með viðkomu i
Fort Arthur og Fort William, aftur i
vesturátt gegnum sléttur og fram-
hjá vötnum. Loks á þriðja degi
koma þau til Winnipeg þreytt og
slæpt eftir hitasvækjuna í lestinni
og uppgefin af skröltinu og hávað-
anum.
Aðalbjörg er að niðurlotum kom-
in. Nú eru tæpar átta vikur siðan
þær lögðu af stað heiman frá Gili.
Aldrei hafði hana órað fyrir, að
hægt væri að ferðast svona langt
og aldrei á sinni löngu og erilssömu
ævi hefur hún verið svo þreytt.
Henni finnst heimurinn líða hjá
eins og í óraunverulegum draumi,
allt það furðulega, sem fyrir augun
hefur borið á þessari löngu ferð.
Nú er hún loksins komin á
áfangastað. I hlýjan faðm dóttur
sinnar, sem bíður hennar á tröppum
úti. Dóra er unglegri núna en þegar
hún fór frá íslandi fyrir nítján
árum, þá ung kona með tvö lítil
börn.
Núna er hún komin yfir fertugt
og börnin hennar fjögur orðin vel
stálpuð, það yngsta 10 ára.
Framhald f næsta blaöi.
Vinsælu
Barnaog
unglingaskrifboroin
Ódýr, hentug og falleg.
Gott litaúrval.
Sendum hvert á land sem er.
STÍL-HÚSGÖGN
AUDBREKKU 63 KÓPAVOGI SÍMI 44600
Hi Fi - Stereo - Sigurverk ársins
FÉLAGI HINS VANDLÁTA
KA - 5500 55+55 RMS 8 ohms 20-20000 HZ
Einstaklega kröftugur ,,Low Distortion" magnari, búinn því
allra nýjasta eins og ICL, FET og mælum, sem sýna tónstyrkinn í
wöttum til hvors hátalara fyrir sig. A1)t fyrsta f|o|(ks w
• V ' i
Iti
^KBNWOOD
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Pekking
feynsla
Pjonustpr Fálkinn
póstsendir
allar nánari
upplýsingar,
sé þess óskað.
Klippiö dýrin út úr 120
eða 130 sm breiöu efni. Takiö 50
sm langan efnisbút og skiptið í
tvennt, notiö annan helminginn f
búk og hinn í höfuðið. Athugiö,
aö þaö þarf tvöfalt af hvoru. Takið
eftir, aö fætur dýranna eru mis-
munandi langir og halarnir tvenns
konar.
★ Saumiö fram og afturstykki
fílshaussins saman á röngunni,
skiljiö eftir op á milli eyrnanna.
Snúið hausnum viö og troöið
f hann tættum svampi. rananum
er lokaö að neðan med svörtum
efnisbút.
★ Haus asnans er aöeins um 30
sm langur, svo það gengur ögn af
efninu.
★ Ljónshausinn er f lögun eins
og sjónvarpsskjár og er aöeins
17—18 sm langur. Trýniö er
myndað úr svörtum skáböndum
eöa ööru efni.
46 VIKAN 1. TBL.
Asni og ljón
Fílshali
Ljónsfætur
Fílafætur
Asnafætur
T
Sniðin af dýrapúðanum er hægt
aö draga upp fríhendis, það skiptir
ekki svo miklu máli, þótt hlutföllin
séu ekki hárnákvæm. Hins vegar
þarf nákvæmni við gerð ávaxta-
púðans, og því er hér að finna
hluta af sniði hans í eðlilegri
stærð. Eins og sjá má á litlu
teikningunni, er púöinn gerður úr
sjövindlalaga lengjum, og best er,
ef breidd lengjanna samsvarar
breidd bekkjanna í efninu, svo að
ekki þurfi að sauma þær saman í
miðjunni.
1.TBL. VIKAN47