Vikan


Vikan - 06.01.1977, Blaðsíða 54

Vikan - 06.01.1977, Blaðsíða 54
H m m ■■ ■ ■ SMÁS Blomvondcirinn SMÁSAGA EFTIR GUNDER LOUISF Allir geta einhvem tíma orðið leiðir á lífinu, jafnt ungir sem aldnir að árum. En það er um að gera að endurheimta lífsgleðina, annars hefur lífið ekkert gildi. Þegar hún opnaði augun hafði hún legið lengi hálfvakandi. Það var svo erfitt, fannst henni, að vakna á morgnana og finna sig aftur í veru- leikanum á ný. Hún varð að nota allt sitt þrek, til þess að fara á fætur. Meðan enn var dimm og kyrr nótt, gat hún sætt sig við þetta. Og þegar hún, einu sinni eða tvisvar, vaknaði upp á nætumar og þurfti fram, þá var það henni léttir að geta aftur farið undir heita sængina og sofnað. Bara að dotta svolítið var betra en að fara á fætur. En til Nýjar lof tþéttar umbúðir KAFFIÐ fráBrasiltu lengdar var hún ekki ánægð þannig, því þegar hún gat ekki sofið lengur, þá sóttu á alls kyns hugsanir og beiskja gegn öllu og öllum. Þegar hún var alveg hreinskilin við sjálfa sig, viðurkenndi hún, að það væri óttaleg vitleysa að halda áfram að liggja i rúminu og leyfa beiskjunni að eitra sál sína og líkama. En þegar maður er farinn að eldast, orðinn gamall og aleinn, þá þarf mikinn viljastyrk, tii þess að rífa sig upp og byrja nýjan dag. Hún lá með opin augu og horfði á ljósrák sem skein yfir gólfið gegn- um rifu í rúllugardínunum. Ljós- rókin lá yfir á vegginn og skein beint á mynd af heilagri guðsmóður sem hékk yfir blámálaðri kommóðu. Þannig fékk heilög guðsmóðir á sig ljósglampa, sem var í engu sam- ræmi við hið annars myrka svefn- herbergi. Hún tók samt ekkert eftir því. Gerði sér alls enga grein fyrir mynd- inni, sá aðeins ljósrákina og rykið, sem dansaði í henni. Loks eftir að hafa legið lengi og reynt að losna við hinar dapurlegu hugsanir sínar, hóf hún sig fram á rúmbríkina og stóð upp. Hún fór sér hægt og stundi í hvert skipti, er hún með stirðum fingrum kom sér í nýja flík. Því næst fór hún fram á baðher- bergi og þvoði sér svo vel sem hún gat. Það var erfitt að koma lagi á hárið. Fingur hennar, hendur og handleggir voru svo stirðir og þreyttir, að henni fannst hún alveg getulaus. í eldhúsinu setti hún yfir vatn í kaffi. Meðan hún beið eftir að vatnið syði, tók hún snyrtilega til ýmislegt á bakka fyrir sig. Þrátt fyrir að hún fyndi á hverjum morgni ekki til neinnar gleði aðeins tómrar beiskju, var hún alltaf mjög ná- kvæm með alla hluti. Hún drakk morgunkaffið inni i stofunni við litla sófaborðið, en óður hafði hún farið og náð í dagblaðið i póstkassann. Hún athugaði alltaf vandlega hvort það væri nokkuð bréf í kassanum. Hún hristi líka dagblaðið, það gæti jú verið, að bréf hefði óvart stungist þar inn í. Bréfin, sem hún fékk, voru samband hennar við börnin hennar. Þau voru hennar eiginlega lífslína. Þennan morgun var bréf frá dótt- urinni. Hún var svo dugleg að skrifa. Það kom minnst eitt bréf frá henni á viku. Alltaf ánægjuleg bréf, sem höfðu að geyma frásagnir af dótturinni og barnabörnunum. Það var eins og hún, í gegnum bréfin, lifði með í þeirra heimi, enda þótt þeirra veröld væri að mörgu leyti mjög ólik hennar eigin. Einmitt þess vegna skildi hún ekki alltaf hina yngri. Hún gerði alltof oft samanburð á þeirra lifnaðarháttum og sínum eigin og hún hikaði heldur ekki við að láta i ljós álit sitt. Með- an hún drakk morgunkaffið las hún bréfið frá dótturinni. Það fékk hana eitt augnablik til að gleyma sínum eigin sorgum, beiskju sinni og þeim tómleika, sem fyllti hug hennar hvem morgun. Hún var dálitið glaðari í bragði, þegar hún tók af borðinu og byrjaði hin daglegu störf. Eftir litla stund myndi frú Mortensen, húshjálpin hennar, koma. Frú Mortensen kom tvisvar í viku. Þær hjálpuðust að við að þrífa húsið, annast innkaup- in og laga mat. Frú Mortensen var indæl og skilningsrík. Hún varð aldrei, eins og svo margir aðrir, móðguð af því sem við hana var sagt, og með léttum hlátri gat hún losað dálítið af beiskjunni, sem safnaðist saman í huganum þá daga sem frú Mortensen kom ekki. Jú, á morgnana var nóg að gera. Konurnar tvær, gamla frúin og frú Mortensen tóku til í stofunum, önn- uðust innkaupin og löguðu mat fyrir næstu daga. Seinna um daginn þegar hún var aftur orðin ein, sat hún með kaffibolla og hlustaði á út- varpið. Út að ganga vildi hún ekki fara. Það hafði þó annars verið hennar daglega upplyfting að fara á göngu í litla almenningsgarðinum, sem var rétt hjá heimili hennar. Hér í þessum garði var ákveðinn bekkur, sem hún naut að sitja á og virða fyrir sér þá, sem framhjó fóru. Auk hennar voru eldri hjón, verkfræðingur á eftirlaunum og kona hans, vön að sitja þar klukku- tíma dag hvern. Nú í langan tíma höfðu þau vanið þangað komur sínar, þegar veður leyfði. Þegar þau sátu þama saman á bekknum voru þau vön að rabba saman um það, sem þeim lá helst á hjarta. Oft var það um börnin og barnabörnin, sem þau töluðu. En annað umræðuefni var líka óþrjótandi, en það voru minningarnar. Margar þeirra voru líka þeirra sameiginlegu minningar. 54VIKAN 1.TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.