Vikan - 10.02.1977, Síða 11
allra dýraverndunarfélaganna, þ.e.
Sambands dýraverndunarfélaga
Is/ands, Dýraverndunarfélags
Reykjavíkur, Hundavinafélags
Reykjavíkur og Kattavinafélags
Reykjavíkur. Ég hvet þig eindregiö
tilað skrifa Sigfríði og spyrja hana
um al/t i sambandi við dýrahjúkr-
un. Þú getur haft utanáskriftina
svona: Sigfríð Þórisdóttir, do
Samband Dýraverndunarfélaga
/slands, Hjarðarhaga 26, Reykja-
vík. Skriftin bendir til svolítillar
tilfinningasemi, en ekkert skortir á
dugnaðinn.
ENN UM BÓLUR
Halló skemmtilegi og frábæri
Póstur!
Ég ætla að biðja þig að svara
nokkrum spurningum. Hvað á að
gera við því, ef maður hefur mikið
af unglingabólum í andlitinu? Ég
er ekki talin vera á þeim aldri að
eiga að vera komin með unglinga-
bólur, eða ekki nema 12ára. Mér er
mikið strítt með þessu, því að
enginn I mínum bekk er með
bólur. Er til eitthvert krem við
bólum? Hvað heitir það (ef það er
til)? Hvaða merki fer best við
hrútinn? Hvað lestu úr skriftinni?
Hvað þýða nöfnin Hallgerður,
Sigurbjörg og Svava, og frá hvaða
landi eru þau upprunnin?
AVAVS
/ Vikunni hefur stundum birst
mjög hrífandi auglýsing um
,,bólumorðingjann" cg ættingja
hans. ,,Bólumorðinginn" heitir
So/ution 41 og er sagt áhrifaríkt
meðal í baráttu við bólur. Eigi veit
ég neinar sönnur á því, en aflaust
sakar ekki að reyna, og sam-
kvæmt auglýsingunni eiga allar
vörur frá Innoxa, sem merktar eru
4!, að vera góðar fyrir táninga og
aðra með feita og bólótta húð.
Annars er alveg sjá/fsagt fyrir þig
að biðja heimilislækni þinn að vísa
þér til sérfræðings, því ef ekki er
um hinar svokölluðu unglingaból-
ur að ræða, þá getur verið
eitthvað að, til dæmis röng efna-
skipti. Naut og Ijón virðast eiga
einna best við vatnsberann, og
skriftin ber það með sér, að þú ert
,,ekki nema 12ára". Hallgerður er
samsett nafn úr Halla og Gerður.
Halla er dregið af orðinu Hallur,
sem þýðir steinn, og hefur tíðkast
hér síðan á landnámsöld. Gerður
er skylt sögninni að girða, og þýðir
sú sem verndar eða nýtur verndar.
i Skírnismá/um segir af Gerði
Gymisdóttur, sem varð kona
Freys, en annars var þetta nafn
afar fátítt, fyrr en á síðustu
mannsöldrum. Nafnið Sigurbjörg
er nú auðvelt að skilja, þar sem
það er sett saman úr oröunum
sigur og björg. En um merkingu
nafnsins Svava get ég ekki upp-
lýst þig, og ég get ekki svarað
nákvæmlega frá hvaða löndum
þessi nöfn eru upprunnin, nema
að a.m.k. tvö fyrri nöfnin eru
norræn.
HÁREYÐANDI MEÐAL
Heiðraði Póstur!
Ég skrifa þér vegna bréfs, sem
birtist í Póstinum í 2. tbl. þessa
árs. Ég skil vandamál bréfritara
mjög vel og kannski betur en þú.
Bréfritari biður um nafn á verslun í
Reykjavík, sem auglýsti 100%
háreyðandi meðal skömmu fyrir
jól. Það vildi svo til, að ég heyrði
þessa auglýsingu í útvarpinu og get
því upplýst, að verslunin heitir
Sápuhúsið, og meðalið heitir
„Hair Stop". Það má kannski
segja, að þetta sé ókeypis auglýs-
ing fyrir verslunina, en ég skora
samt á þig að birta þetta, ef það
mætti létta áhyggjum af „einni
loðinni".
Bestu þakkir fyrirfram,
2X1
Þakka þér kær/ega fyrir 2X1!
Jóhanna Guðjónsdóttir, Vestur-
vegi 3 B, Vestmannaeyjum óskar
eftir bréfaskiptum við 12—14 ára
stráka. Jóhanna er 12 ára og hefur
áhuga á ferðalögum, strákum,
dýrum og íþróttum.
Guðbjörg Sævarsdóttir, Miðstræti
11, Vestmannaeyjum óskar eftir
bréfaskiptum við stelpur og stráka
á aldrinum 12—14 ára. Hún er sjálf
12 ára og telur upp eftirfarandi
áhugamál: Dýr, íþróttir, diskótek
og stráka. Mynd fylgi fyrsta bréfi,
ef hægt er.
Sigþóra Vigfúsdóttir Bárðarási 7,
He/lissandi óskar eftir að komast í
bréfasambandviðstelpurog stráka
á aldrinum 13—15 ára. Áhugamál
eru: Popptónlist, bréfaskipti og
margt fleira.
Hrönn Vigfúsdóttir Bárðarási 7,
He/lissandi vill komast í bréfa-
samband við stelpur og stráka á
aldrinum 11 — 13ára. Popptónlister
aðaláhugamálið.
SlXJCE 1920
AUTQMATIC RADIO
Þélta afhieðsiu rafeinda-
kvelkjukerfl
Automatic Radio CDI kcrfið gcfur 35000 — 50000 volta ncista inn á kertin, scm þar
að auki cr mikið n«ákvæmari cn mcð venjulcgri kvcikju. Árangurinn vcrður margfalt full-
komnari brcnnsla á bcnsínblöndu, scm þýðir mýkri og bctri gang vclar, aukinn kraft og
!0—20ró bcnsinsparnað. Straumur í gcgnum platínur minnkar um 95','. scm þýðir að þær
cndast allt að 10 sinnum lcngur án stillingar, kcrti cndast allt að 8 sinnum lcngur þar
sem timalengd ncista vcrður aðcins Í/IO af ncista vcnjulcgrar kvcikju. Að auki gcrir hinn
mikli ncistakraftur gangsctningu vélar öruggari við allar aðstæður, jafnvcl mcð lélcgum
cða spcnnulitlum rafgcymi í miklum kuldum.
8 strokk vél er snýst 4000 snúninga á mínútu, kvcikir lb(XX) sinnum á minútu, — það
er einn neisti hvcrja 4 I 000 úr sck. Þar scm vcnjulcg kvcikja þarf 15/1000 úr sckúndu til
að spana upp fullan ncista, fá kcrtin ckki fullan ncist'a og jafnvel cngan, scm hcfur í för
mcð sér að mikið cldsneyti fcr út í loftið óbrcnnt.
A R. CDl kcrfið getur skilað fullum og mikið sterkari ncista á hvcrjum 2 1000 úr
sekúndu svo að brcnnslan vcrður cins fullkomin og hægt cr við hvcrja kvcikingu.
Árangurínn: Meiri kraftur fyrir minna bensin!
6. TBL. VIKAN 11