Vikan - 10.02.1977, Blaðsíða 15
vera
Einkaviðtal Vikunnar við
rallykappann Roger Clark,
besta rallyökumann breta og
einn af bestu í heimi.
Blm.: Hvað með rally cross,
hefurðu keppt eitthvað í því?
Clark: Ég keppti fyrir fimm árum
í einni slíkri keppni, sem var gerð
fyrir sjónvarpið, en það er það
eina.
Blm.: Finnst þér það ekki eins
spennandi og rally?
Clark: Þetta er aðallega spurn-
ing um tíma, og hann hef ég ekki.
Rally tekur allan minn tíma, svo
það er bara ekki pláss fyrir meira.
Blm.: Hefur þú alltaf ekið Escort
síðan Ford fyrst setti þá í rally?
Clark: Ég var sá fyrsti, sem vann
rally á Escort, og sá fyrsti, sem
yfirleitt ók Escort i rally, og ég hef
gert það síðan.
Blm.: Hvað finnst þér um
Escortinn? Er hann sæmilegur
rallybíll, eða er hann toppbíll í
rally?
Clark: Það má- eiginlega segja,
að Escort sé minn bíll. Mikið af
mínum hugmyndum um rallybíl
eru í Escortinum, og ég hef átt
mikinn þátt í að byggja þennan bíl
upp. Ég kem með mínar hug-
myndir, og Norman Master, sem
er minn aðal vélamaður, útfærir
hugmyndirnar í Escortinum.
Blm.: Það má kannski segja, að
þið, þú og Escortinn, hafið alist
upp saman.
Clark: Já, við erum alltaf sam-
an, í blíðu og stríðu, og okkur
kemur mjög vel saman.
Blm.: Var ekki erfitt að vinna
R.A.C. rallyið?
Clark: Mér finnst alltaf erfitt að
vinna stór alþjóða-rally, og þá
sérstaklega R.A.C. rallyið. Keppi-
nautarnir voru mjög góðir og
stundum erfiðir. En það er bara
hægt að gera sitt besta, og ef það
nægir til að vinna, þá er það á
rauninni ekki svo erfitt. Mér hefur í
sjálfu sér fundist auðvelt að vinna
þau rally, sem ég hef unnið.
Blm.: Eftir fréttum af R.A.C.
rallyinu að dæma þá virtist hafa
verið mjög vont veðui, hífandi rok
og rigning og snjókoma sums
staðar. Gerði þetta ykkur ekki
erfitt um vik?
Clark: Það er alveg rétt, og það
var fljúgandi hálka síðustu nótt-
ina. Mér fannst þetta gera keppn-
ina meira spennandi. Það var
rigning mestan hluta keppninnar,
sem gerir manni náttúrulega erfið-
ara fyrir.
Blm.: Lentirðu ekki í einhverjum
vandræðum með bílinn í keppn-
inni?
Clark: Það brotnaði hjá okkur
spyrna, en okkur tókst að klára
sérleiðina, sem við vorum á, og
síðan var skipt um spyrnu, og við
héldum áfram.
Blm.: Hvað heitir aðstoðaröku-
maður þinn?
Clark: Oftast er það Jim Porth-
er, en í R.A.C. var það Stuart
Pegg. Porther tók þátt í að skipu-
leggja R.A.C. og mátti því ekki
keppa.
Blm.: Getur þú valið aðstoðar-
ökumanninn sjálfur, eða ákveður
Ford, hver á að aka með þér?
Clark: Ég fæ oftast að ráða,
hvern ég hef með mér, en við
höfum aldrei lent í rifrildi út af því.
Þeir aðstoðarökumenn, sem ég
hef haft, eru allir toppmenn á sínu
sviði.
Blm.: Eru viðgerðarmenn í rally-
um alltaf þeir sömu, eða er skipt
um?
Clark: Norman Master er alltaf
með nokkra menn með sér. En í
stærri rallyum eru alltaf allir með,
sem vinna í Boreham, en það er í
Boreham, sem rallybílarnir eru út-
búnir fyrir keppnir. Þeir fara þá
með viðgerðarbíla og eru tilbúnir
með alla þá varahluti, sem hugs-
anlega gæti þurft á að halda.
Blm.: Þegar þeir gera við bílana
í rally, er það þá gert á ferjuleið-
um, eða eru einhverjir vissir tímar
og staðir, þar sem viðgerðir eiga
að fara fram?
Clark: Það er alltaf gert við á
ferjuleiðunum, ef eitthvað bilar.
Blm.: Er þá tíminn á ferju-
leiðunum það mikill, að hægt er
að gera við, án þess að missa
niður tíma?
Clark: Já það er ekki nokkur
vandi, því hraðinn er oftast i
kringum þrjátíu mílur og ekið eftir
góðum og breiðum vegum. Þar að
auki er til dæmis í rallyum í
Bretlandi hálfur tími aukalega til
að koma inn á tímastöðina, svo
það er hægt að gera við hérumbil
allt, sem bilað getur á þessum
tíma.
Blm.: Viðgerðamennirnir hljóta
að vera ofsalega klárir.
Clark: Þeir eru það, og svo er
mjög auðvelt að gera við Escort-
inn, til dæmis að skipta um
gírkassa eða afturöxul, það tekur
mjög stuttan tíma. Svo að þótt ég
6. TBL.VIKAN 15