Vikan - 10.02.1977, Blaðsíða 52
Rætt við þrjá rallykappa og
sagt frá blaðamannafundi
hjá Ford.
John Taylor, evrópumeistari / ra/lycross og mikill rallyökumaður.
Hann er llka einna athafnasamaastur / rallyskólanum, sem Ford rekur.
Viö Jim Ijósmyndari lentum
alveg óvænt á blaöamannafundi (
London fyrir skemmstu. Máliö var
þaö að við vinirnir fórum út til að
hafa tal af Roger Clark, sem ætti
nú að vera orðið lesendum Ijóst,
Margar gerðir mæla
i bifreiðir, báta
og vinnuvélar
HIiOSSI^
Skipholti 1S Simar
8 13 SOvorilun 8 13 Í1 vcrkilæöi 8 13 S3 skrílslola
Sá
mest
seldi
ár
eftir
ár
Pólar hf.
Einholtí 6.
og Rodger Bending, sem tók að
sér að koma okkur í samband við
Clark, hringdi svo til okkar og
spurði, hvort við værum ekki til í
að koma á blaðamannafund, sem
Ford hélt. Á þessum fundi átti að
segja frá, hvað Ford ætlaði að
gera í bílasporti á þessu ári.
Auðvitað vorum viö til í aö fara á
fundinn, og Rodger Bending kom
og sótti okkur.
Þegaráfundinn kom, voru örfáar
hræöur mættar, því við vorum
heldur of snemma á ferðinni. Og
þar sem við stóðum úti í horni og
röbbuðum saman, bættist maður í
hópinn, og Bending hnippti í mig
og sagöi, að þetta væri John
einhver, ég heyrði ekki eftirnafnið,
og hann keyröi í rally-cross. Ég
trítlaði til hans og kynnti mig og
spuröi, hvort ég mætti rabba
aðeins við hann. Það var
auðfengið, og við settumst út í
horn og fórum að sjálfsögðu að
ræða um rally cross.
Ég spurði John fyrst, hvort
hann æki ekki Escort, og svarið
var auðvitað já.
Blm: Ekur þú bara í bresku
meistarakeppninni í rally cross,
eða ekur þú líka í evrópumeistara-
keppninni?
John: Hvorutveggja.
Blm: Hvernig gekk hjá þér í
þessum keppnum?
John: Ég varð evrópumeistari í
rally-cross.
Blm: ??? ha?, ert þú þá John
Taylor? Ha?
Nú var ég orðinn hálf aum-
ingjalegur að hafa ekki áttað mig á
við hvern ég var að tala. Svo
uppveðraðist ég auðvitað allur og
varð hinn ánægöasti yfir sessu-
nauti mínum.
Blm: Ertu bara í rally-cross, eða
líka í rally?
John; Ég tek þátt í hvoru
tveggja.
Blm: Hvort er skemmtilegra
fyrir ökumanninn sem keppni?
John: Persónulega finnst mér
rally skemmtilegra en rally cross.
Ég er líka orðinn hálf þreyttur á
rally-crossinu, er búinn að standa í
því með rallyinu alltof lengi. Svo
er ég líka með rallyskóla á vegum
Ford og hef því miklu meira en
nóg að gera.
Blm: Rallyskóla? Hvað fer fram í
rallyskóla? ,
John: Rallyskólinn er raunar
námskeið, sem stendur bara í einn
Pn'r stórii
dag. Við tökum bæði ökumenn og
aðstoðarökumenn í gegn í einu.
Fyrst eru þeir látnir aka eina
sérleið, og fylgst er með hverjum
og einum vel og vandlega. Þegar
það er búið, eru nemendurnir
kallaðir inn og þeim sagt, hvað
þeir geri rangt. Síðan eru þeir
sendir út aftur. I millitíðinni er búið
að breyta sérleiðinni, og þeir eru
látnir spreyta sig aftur.
Blm: Og hver er svo útkoman,
hafið þið fundið marga góða
ökumenn?
John: Otkoman er vægast sagt
ömurleg. Við erum búnir að taka
tvö hundruð rnanns í gegnum
skólann, en Fiöfum bara fundiö
tvo, sem eru svona í meðallagi, en
verða aldrei neinar stjörnur.
Blm: Hvað er það þá, sem
vantar hjá þessum mönnum?
John Ég held, að all flestir komi
bara að gamni sínu og til að geta
sagt, að þeir hafi farið í rallyskóla
og fengið jakka, eins og Roger
Clark er í. Það sem vantar er
raunverulegur áhugi til að gera
eitthvað og verða eitthvað í rally.
Blm: Ef menn koma bara í
rallyskóla til að fá jakka, hvað
kostar þá svona jakki?
John: Jakkinn og auövitað
skólinn kostar 35 pund, ansi dýrt
fyrir einn jakka, þegar menn fá
ekkert út úr skólanum.
Blm: Hvað þarf maður að hafa
gert til að komast I þennan merki-
lega skóla?
John: Ekkert annað en að hafa
hugsað sér að aka Escort í rally.
Við kennum á Escort, og öll
kennslan miðast við Escort.
John Taylor bað mig nú að
afsaka sig, því hann ætlaði út í
bílinn sinn og ná þar í myndir af
keppnisbílunum til að gefa mér.
En í sama mund og hann stóð