Vikan - 10.02.1977, Blaðsíða 14
fíoger Clark I vinnunni. Á ieið tii sigurs i fí.A.C. raiiy.
flhaginn vcrdurað
alvcg óskaplcgur
Vikan hafði komið sér upp her-
búðum í London, og þar ríkti nú
gífurleg eftirvænting. Við vorum
að gera okkur klára í viðtal við
Roger Clark. Það var margyfir-
farið, hvort ekki væri örugglega
allt með, sem við þurftum að
nota. Rodger Bending kom og
sótti okkur, og ekið var sem leið lá
að West Central Hotel, en þar átti
viðtalið að fara fram.
Við þurftum að bíða svolítið
eftir því að kappinn léti sjá sig, og
ég var orðinn ansi órólegur og
farinri að gera mér allskonar grillur
um, hvernig gaur þetta væri.
Skyldi hann vora hrokafullur og
montinn, eða taugaveiklaður og
uppstökkur, eða kannski hund-
leiðinlegur? Ég vissi alls ekki við
hverju var að búast af einum besta
rally ökumanni í heimi og þeim
allra besta I Bretlandi.
Loksins kom hann. Hann brosti
með öllu andlitinu og augunum
líka, heilsaði kurteislega og settist.
Pú ha, þetta virtist bara vera allra
besti gaur. Og svo var byrjað að
spyrja.
Blrn.: Af hverju k-austu rally
frekar en einhverja aðra bílaíþrótt?
Clark: Það er langt síðan sú
ákvörðun var tekin. i fjölskyldu
minni snérist allt um bíla, bílaverk-
stæði og svoleiðis. Þessvegna
hlaut ég að gera eitthvað í
sambandi við bíla. Rally vakti hjá
mér meiri áhuga en kappakstur. i
kappakstri fara ökumenn á braut-
irnar, keppa á sama hringnum
allan tímann og taka síðan næstu
flugvél heim. i rally er aldrei ekin
sama leiðin tvisvar. Maður fær líka
góðan tima til skoða sig um í því
landi, sem maður keppir í, og
síðast en ekki síst er miklu meira
öryggi í rally en í venjulegum
kappakstri, og það finnst mér
skipta miklu máli.
Blm.: Hvað er langt síðan þú
fórst að keppa í rally?
Clark: Það eru orðin tuttugu ár
síðan ég byrjaði.
Blm.: Þá hljóta að liggja að baki
margir kílómetrar.
Clark: Já, þeir eru orðnir mörg
þúsund, bara á sérleiðum.
Blm.: Hversu lengi hefurðu ekið
fyrir Ford?
Clark: Þetta er ellefta árið, sem
ég ek fyrir Ford. Áður ók ég fyrir
Rover í þrjú ár.
Blm.: Á hvernig bíl kepptirðu
fyrst?
Clark: Mini, Renault og alla
vega smábílgm.
Blm.: Nú hefur þér gengið mjög
vel í keppnum í Skotlandi. Getur
þú sagt mér, af hverju þér gengur
svona vel í Skotlandi?,
Clark: Já, í Skotlandi eru
keppnirnar mjög erfiðar og vegirn-
ir slæmir. Þar þarf að aka eins
hratt og hægt er, án þess að
brjóta niður bílinn, en það er það
sem flestir flaska á.
Blm.: Er ekki erfitt að aka
hraðar en allir hinir og fara vel með
bílinn um leið?
Clark: Jú, það getur verið erfitt
að samræma það, en það er jú líka
alltaf sá sem ekur hraðast, sem
vinnur.
Blm.: Þér hefur gengið vel í
írlandi líka.
Clark: Ég hef unnð í íriandi
mjög oft, en við vorum ekki með á
síðasta ári.
Blm.: Eru rally í irlandi ekki
byggð upp mjög svipað og hér í
Bretlandi?
Clárk: Á irlandi geta þeir lokað
almennum þjóðvegum og haft
mikinn hraða á þeim. Það er mjög
gaman að keppa á þeim vegum,
því hraðinn er mikill. Hér (
Bretlandi er bara hægt að loka
skógarvegunum og því mikill
munur þar á.
14VIKAN 6. TBL.