Vikan - 10.02.1977, Blaðsíða 17
þínum síðasta vor, þar sem hann
stóð fyrir utan veg, allur beyglaður
eftir veltu.
Clark: Það brotnaði framhjóla-
spyrna, og við rúlluðum, það var
hálf andstyggilegt.
Blm.: Hefur þú aldrei meitt þig í
keppni?
Clark: Nei, sem betur fer hef ég
■alltaf ^loppið og aðstoðarmaður-
inn einnig.
Blm.: Geturðu hvílt þig á milli
sérleiða?
Clark: Ég hvíli mig alltaf og læt
aðstoðarökumanninn aka á ferju-
leiðunum.
Blm.: Geturðu sofnað?
Clark: Já, ég sofna alltaf. Þetta
eru fimmtán til tuttugu mínútur,
og ég get alveg steinsofnað.
Blm.: Er tíminn á sérleiðunum
alltaf svo naumur, að útilokað sé
að ná á réttum tíma á tímastöð?
Clark: Ef það er settur einhver
lágmarkstími, þá er hann alltaf svo
lágur, að það á að vera ómögulegt
að ná honum.
Blm.: Finnst þér rally hafa
þróast í þá átt, sem þú áttir von á,
þegar þú varst að byrja að keppa?
Clark: Nei, það' hefur þróast
miklu betur en mig hefði nokkurn
tímann órað fyrir. i dag eru þetta
orðnar stórar og viðamiklar
keppnir, og það eru ýmis fyrir-
tæki, sem leggja mikla peninga í
þetta, sem maður bjóst ekki við
áður.
Nú var komið með kaffi handa
mér og te handa Clark, og við
hvíldum segulbandið. Við sötruð-
um í okkur drykkina, og ég notaði
tækifærið að virða fyrir mér
viðmælanda minn. Hann er farinn
að grána ansi mikið, hann var
mjög brosmildur og hló mikið og
oft. Mér var farið að lika mjög vel
við hann, það var ekki til í því, að
hann væri með stæla eða væri að
monta sig.
Ég sýndi honum að sjálfsögðu
Vikuna, og hann skoðaði hana vel
og vandlega, og mér virtist honum
lítast bara vel á hana. Svo dró ég
upp leiðabókina mína, og hann
skoðaði hana lika, með áhuga og
fannst hún vel unnin. Hann sýndi
Íslandi mikinn áhuga og var alveg
til í að koma hingað og keppa í
rally, ef við gætum haft um tvö
þúsund kílómetra langt rally og
fengið hraðanum breytt.
Ég sagði honum sögu íslensks
mótorsports, sem ekki er löng, en
hann taldi, að við hefðum farið
rétt að til að koma hlutunum af
stað. En nú vorum við búnir úr
bollunum, og segulbandið tók að
snúast á ný.
Blm.: Ert þú eitthvað viðriðinn
þennan rallyskóla, sem John
Tailor er með?
Clark: Ég hef alltaf verið of
önnum kafinn til að hafa tíma fyrir
skólann, en ég hef verið orðaður
við hann í einstaka tilfellum.
Blm.: Heldur þú, að betra væri
að hafa eingöngu standard bíla í
rally, eins og koma frá verksmiðju,
í stað þess að vera með alla þessa
sérbyggðu bíla?
Clark: Nei, ég held, að það væri
mjög slæmt, því fólkið kemur til
að sjá kraftmikla og hávaðasama
bíla, og ég held, að ef ég ætti að
fara keyra Escort 1300 standard í
rally, þá væri ekki mikið gaman
lengur.
Blm.: Þegar þú ert kominn með
þinn sérbyggða Escort í rally, þá er
sá bíll langt frá því að vera það
sama og þeir bílar,,sem venjulegt
fólk kaupir."
Clark: Það er rétt að sumu leyti,
en þó er margt það samá [ þessum
bilum, þótt vél og gírkassi séu ekki
eins.
Blm.: Hvað finnst þér um Grand
Prix og allt, sem gengur á hjá
þeim?
Clark: Fyrsti hringurinn er alltaf
svolítið skemmtilegur, en svo fer
mér að leiðast. Þar að auki finnst
mér G.P. allt of hættulegt.
Blm.: Ef þú hefðir tækifæri til að
skipta yfir í G.P., mundirðu taka
því?
Clark: Ég átti kost á því, en ég
hafnað boðinu, og ég hef aldrei
séð eftir því. Þegar sport verður
eins hættulegt og G.P. þá finnst
mér það ekki vera sport lengur.
Svo gæti ég heldur ekki bara ekið
og ekkert gert annað.
Blm.: Ekurðu bara fyrir ánægj-
una?
Clark: Já. Ef svo væri ekki, væri
ég ekki á toppnum.
Blm.: Hefurðu einhver önnur
áhugamál en rally?
Clark: Já, ég keppi á hraðbát-
um, þegar ég hef tíma. Það er
mjög líkt rally að mörgu leyti,
nema maður verður alveg hund-
blautur. Svo á ég einkaflugvél og
nota hana mikið. Það er Cessna
180, og ég nota hana oftast til að
komast í rally. Mér finnst gaman
að öllu, sem eitthvað hefur með
vélar að gera.
Blm.: Ertu giftur?
Clark: Já, og á tvo syni, þriggja
og sex ára.
Blm.: Eru þeir ekki með rally-
dellu?
Clark: AHt sem hreyfist eða er
hávaðasamt vekur áhuga hjá
þeim.
Blm.: Hvað segir konan þín,
þegar þú ert sífellt að þvælast um
og keppa?
Clark: Ég hef nú keppt í tuttugu
ár, en er bara búinn að vera giftur í
tíu ár, svo að hún vissi alveg að
hverju hún gekk.
Blm.: Nú hlýtur að vera mjög
erfitt að vera fjölskyldumaður og
stunda svona vinnu.
Clark: Það er mjög erfitt stund-
um, ég er bæði lengi og oft að
heiman, en ég reyni alltaf að taka
konuna með, ef það er nokkur
leið.
Blm.: Hefurðu nokkuð hugsað
um, hvenær þú munir hætta að
keppa?
Leyndarmálið
hefur kvisast ut
ffram Nú vita allir aö
FRAM loftsian dregur úr
óþarfa bensíneyðslu
Venjuleg vél brennir 6000-8000 litrum af lofti a móti einum
litra af bensini. Þaö fer mikiö loft i gegnum loftsiuna og betra
að hafa hana hreina. Stifluð sia virkar sem innsog-og
afleiðing meiri bensineyðsla.
iFRRM
loftsiur i alla bila!
SVERRIR ÞORODDSSON &Co
Fellsmúla 24-26 (Hreyfilshúsinu) Sími 82377
Clarks
6. TBL. VIKAN 17