Vikan - 10.02.1977, Blaðsíða 21
V ílcjgiícrö
UMSJÖN:
ÁRNIBJARNASON
sem dugir reglulega vel fyrir
þessa kraftmiklu vél.
Um tuttugu manns vinna á
þessu verkstæði. og eru þeir allir
mjög færir. Þegar stór alþjóða
rall.v eru haldin, fara þeir allir á
vettvang til að aðstoða við við-
gerðir á bílunum í keppni. Þarna
á verkstæðinu var verið að smíða
tvo bíla. sem áttu að fara til Af-
ríku og taka þar þátt í rally. Þess-
ir bílar voru sérsmíðaðir ein-
göngu fyrir þetta eina rally.
Eg hef áður minnst á Norman
Master, sem er aðalviðgerðarmað-
ur Clarks. Hann var að sjálfsögðu
þarna á staðnum. Mér tókst að fá
hann til að fara með mig í ökuferð
á bíl Clarks. Við settumst inn í
bílinn, og Norman setti í gang og
ók af stað. Og þvílík læti í gírkass-
anum! Eg hélt fyrst, að Clark
hefði alveg gengið frá honum í
R.A.C., en þá sagði Norman, að
þetta væri splunkunýr gírkassi.
En hvernig stóð þá á þessum
endemis hávaða í apparatinu?
Mér fannst eins og ég væri sestur
inn í grjótmulningsvél. Eg hafði
orð á þvi við Norman, að ef ég
heyrði svona gauragang í girkass-
anum í bílnum mínum, þá væri ég
klár á því, að allt draslið væri að
gefast upp. En skýringin á þess-
Hér er svo vinnustaður Clarks.
Kannski ekki mikill íburður, en
eflaust með skemmtilegri vinnu-
stöðum samt. Þarna sjást kluklkur
þær og mælar, sem notaðir eru til
að finna réttan hraða og yfirleitt að
hjálpa rallymönnum í gegnum
rallyið.
öryggið, því þeir vilja ekki eiga
það á hættu, að þeirra menn geti
slasast. Eg sá til dæmis þarna hjá
þeim flak af Escort, sem Timo
Makinen velti í R.A.C. rallyinu.
Þar flóst megnið af yfirbygging-
unni utan af bílnum, en í velti-
grindinni sást ekki misfella, og
Timo og Liddon, sem var aðstoð-
arökumaður, sluppu alveg ó-
meiddir.
Vélin góða og aðeins 250 hestöfl,
sem er skki svo lítið í Escort. Eins
og sjá má, ef myndin kemur vel út,
er vélin merkt Rodger.
Það er sérsmiðuð vél í hvern bíl
og fyrir hvern mann. Til dæmis er
vélin í bíl Clarks rækilega merkt
honum, til þess að enginn annar
fengi þá vél. Þessar vélar snúast
allt að 9.500 snúninga á minútu og
gefa þá um það bil 250 hestöfl.
Gírkassinn er svokallaður Z F gír-
kassi, fimm gíra, og er sá eini.
Norman Master, töframaðurinn
sem smiðar rallybilana fyrir Clark.
um hávaða var sú, að gírkassinn
er ekki synkroniseraður, og mjög
stutt er á milli tannhjólanna í
honum.
Við ókum eftir sveitavegi á
þrjátíu mílum í fimmta gir, og
vélin snerist á eitt þúsund
snúningum, það var rétt á
mörkunum, að hún héldist í
gangi. En þá gerði Norman svolít-
ið einkennilegt. Hann gaf í botn,
án þess að skipta niður, og bíllinn
hreinlega tók undir sig stökk og
æddi urrandi af stað með þvílík-
um látum, að mér dauðbrá. Við
tókum beygju á sirka áttatíu míl-
unt, og þess varð varla vart, svo
lýtalaust tók bíllinn beygjuna.
Það eru ekki nema 500 snúningar
á milli gíra í þessum girkassa.
Ja, þetta var eitthvað annað en
Runólfur gamli. Eg yfirgaf Bore-
ham nteð söknuði.
-A.B.
6. TBL. VIKAN21