Vikan


Vikan - 10.02.1977, Page 12

Vikan - 10.02.1977, Page 12
Oftast er það móðirin, sem misþyrmir barninu sínu. Flestir verða ergilegir yfir barni, sem skælir mikið, en venjulega þolum við það. Oftast er eitthvað að hjá þeim foreldrum, sem misþyrma börnum sínum. Og oftast er það móðirin, — móðirin hefur líka meira af börnunum að segja, meiri ábyrgð, og hún er sá aðili, sem mest er ein með þeim og verður það, ef hjónabandið fer út um þúfur. — Það er mjög algengt aö örvæntingarfull móðir, sem finnst hún vera yfirgefin gerist sek um slíkt. Barnsfaðir hennar veldur henni vonbrigðum, eða skilnaður stendur fvrir dyrum. Sjálf er hún Ht> er alein með barni sínu og mjög óhamingjusöm, dagarnir eru erfiðir, lífið vonlaust. Hugarástand hennar hefur áhrif á bamið. Það vill ekki borða, sefur illa á næturn- ar. Og öskrar. Það er meiri en hennar fínu taugar geta þolað. Hún þeytir krakkanum frá sér og segir honum að halda kjafti... Og það hljóðnar inni. Litla barnið hefur misst meðvitund, þegar höfuðið skall í gólfið — eða var það í borðbrún? Barnið henn- ar, sem henni þykir svo vænt um. Hún kemur til sjálfrar sín, hraðar sér á slysavarðstofuna og útskýrir fyrir þeim, að þetta hafi verið óhapp, barnið hafi dottið ofan af borði eða niður tröppur... Þetta er algengt dæmi um misþyrmingu á barni. ■Eftirfarandi grein er byggð á samtai/ við formann barnaverndarráðs Os/óborgar, og þótt hún fjalli um vandamá/in þar um s/óðir; eiga orð hans áreiðaníega ekki síður erindi ti/ ís/enskra /esenda. Hann segir meða/ annars, að stærsti h/uti þeirra, sem misþyrma börnum, sé örvæntingarfullar mæður, sem séu fullar vonbrigða, finnist þær yfirgefnar og hafi ef ti/ vi// sjá/fum verið misþyrmt íæsku. Einn daginn ha/da þær ekki /engur út, einn daginn brestur stíf/an... að gefast upp. Og ef einhver vandræði verða með barnið, getur hún gripið til óhugsaðra aðgerða, sem gætu haft örlagaríkar afleið- ingar. Það er Egil Egeland, formaður barnaverndarráðs Oslóborgar, sem svo mælir. — Áttu við að börnin gætu látist, af völdum móðurinnar? — Ég veit ekki til þess að börn hafi látið lífið hér í Osló af völdum misþyrminga. En barnið getur hlotið varanlega skaða, svo að það verður öryrki allt sitt líf, og það er varla betra. Það kemur fyrir, að þau missa bæði vitið og allan mátt. Þegar lögreglan er kölluð á heim- Hin til að sti/la til friöar... — Hvernig uppgötvast mis- þyrmingar á börnum? — Oft er það læknirinn, sem verður tortrygginn, en undarlega fá tilfelli eru tilkynnt barnaverndar- nefnd eða lögreglunni. Læknirinn kveinkar sér við að tilkynna eitt- hvað, sem hann hefur grun um, en ekki vissu. Stundum eru það nágrannarnir, sem hafa samband við lögregluna. Heimiliserjur eru

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.