Vikan - 24.03.1977, Blaðsíða 4
Helgimynd á gluggakarminum -
,,Þetta gáfu nunnurnar í Hafnar-
firði mér. Þær gefa mér stundum
svona. Ég gef þeim myndir.”
Hjónarúmið — „Þetta eru her-
mannabeddar. Er þetta ekki frum-
legt hjónarúm? Sennilega beint frá
Víetnam.” Á veggnum fyrir ofan
rúmið mynd af Menntaskólanum á
Akureyri, þar sem Steingrimur ólst
upp og kenndi síðan um nokkurra
ára skeið — , .Málaði þessa mynd
árið sjötíu.” Engin gluggatjöld
neins staðar — ,,Við byrgjum ekki
útsýnið. Við viljum njóta þess.”
Ljósmyndir eru viða, liggja lausar i
gluggakistu, og viða eru þær festar
á vegg með limbandi eða stungið á
bak við rör — „Börnin á leið til
útlanda í fyrsta sinn — þarna er ég
smástrákur með mömmu, ljós-
hærður — Með börnunum i veislu,
góð mynd — þarna erum við á leið til
France, ég tók þau einu sinni með
mér til Frakklands. — Einkadótt-
irir. sofandi. Ég tók þessa um borð i
skipinu á leið ti> útlanda.”
Flestar myndanna eru af börnun-
um, það er greinilegt, að þau skipa
háan sess i lífi föður síns. Stein-
grímur 14 ára og Jón 13 ára búa hjá
honum í Hlíðarhaga og una hag
sínum vel. Húsfreyjan á bænum
heitir Kristín Þorvaldsdóttir. Þvi
miður hittum við hana ekki, þar
__Listin á ekki að vera neitt pjatt,
ekkert snobb. Listin á að vera
„naturelle.”
sem hún var upptekin við vinnu
sina. Þau Steingrímur hafa búið
saman í nokkurn tíma, og það var
auðheyrt á Steingrími, að hún átti
sinn þátt í lifshamingju hans um
þessar mundir. Einkadóttirin er hins
vegar i fóstri i Reykjavik, en
Steingrimur á von á, að hún komi til
þeirra bráðlega.
— Steingrímur jr. er upprenn-
andi listamaður, segir faðir hans og
sýnir okkur stoltur nokkrar teikn-
ingar eftir strákinn. — Hann heitir
raunar Steingrímur Lárents Tómas.
Ég lét skira krakkana til kaþólskrar
trúar og el þau upp i þeirri trú,
pressa þau þó ekki. Jón heitir Jón
Jón eftir eldklerknum og eftir dýr-
lingnum. Allir kaþólskir verða að
heita dýrlingsnöfnum. Bræðurnir
eru ólíkir. „Ég er enginn andskot-
ans listamaður,” segir Jón alltaf.
Hann er töffari, alltaf að lenda i
einhverju. Ég var alltaf að draga
hann upp úr sjónum við Stokkseyri.
Halldóra Maria heitir eftir móður
minni og svo heilagri guðsmóður.
Það vantar mikið, þegar hana
vantar i hópinn.
Við þiggjum hunangste og hafra-
kex í eldhúsinu. Þar rennur stöðugt
úr krananum, og af þeirri litlu
reglusemi, sem ég hef áunnið mér,
reyni ég að skrúfa fyrir. — Það
verður að renna, segir Steingrimur,
annars getur frosið í pipunum.
Við sitjum á svolítið gjögtandi
stólum. — Þeir eru líka úr búi Thors
Jensen, segir Steingrimur. Þetta
eru finir stólar. Ég gef lítið fyrir
tekk og svoleiðis. Og hús — ég vil
bara, að hús andi.
Ég geri veikburða tilraunir til að
eiga hefðbundið viðtal við Stein-
grim, spyr hann um blaðamennsku-
feril hans.
— Égbyrjaðiá Tímanum, líklega
’48, var þar i nokkra mánuði, fór
svo í Háskólann.
— Þú ert alltaf svolítið veikur
fyrir blaðamennskunni, er það ekki,
Steingrimur?
— Ég er óskaplega veikur fyrir
blaðamennsku. Fyrir mér er hún
styrjöld, eins og lífið sjálft. Enda
sagði Gunnar Schram það alltaf,
þegar ég vann hjá honum á Vísi:
,, Þú stundar blaðamennsku eins og
hermennsku,” sagði hann.
— En rithöfundurinn i þér, fær
hann enga útrás fyrir málaranum?
— Því miður, ég hef voðalega
lítinn tíma til að skrifa. Mig langar
til þess, og vonandi kem ég út bók,
áður en langt um liður. En ég verð
að mála til þess að lifa.
— Þú hefur oft verið gagnrýndur
fyrir óhemjulega framleiðslu í
myndlistinni?
— Hvað er mikið, og hvað er ekki
mikið? Sumir skila miklu, aðrir
litlu. Málarar eins og Picasso og
Chagal máluðu reiðinnar ósköp.
Ofnhreinsarinn
frá Zebra.
Zebra hreinsar ofninn
á svipstundu.
Steingrímur við nýlega tússteikn-
ingu af Oskari Sigurðssyni skip-
stjóra á Hólmsteini 3. Myndin er
teiknuð i lúkarnum á Hólmsteini,
meðan óskar át kjötsúpuna.
Listin er í öllu, jafnvel þegar hitað er
vatn í te handa gestum.
Steingrími tókst að finna eitt og
unnað merkilegt í allri óreiðunni í
galleríinu ó Selfossi.
Enginn kvartaði undan þvi. Og
hvað hefur Simenon skrifað margar
bækur? Þetta er bara spurning um
vinnu. Ég vinn mikið. Ég fer
snemma á fætur og gef drengjunum
að borða, áður en þeir fara í
skólann. Svo erum við Kristín
4 VIKAN 12. TBL.