Vikan - 24.03.1977, Qupperneq 9
t
★
í hvert sinn er þú gengur eitt
skref, þá notar þú 54 vöðva.
★
Sniglar geta sofið í þrjú til fjögur
ár i einum blundi.
★
Árið 1963 upplýsti bandarískt
fræðslurit, að álíta mætti pólska
innflytjendur óvenju skýra, gætu
þeir talið upp mánuði ársins í
öfugri röð.
★
Kínverska blaðið „Shantung
skaginn" skýrði frá því, að 14
konum hefði verið skipað að hafa
14 grísi á brjósti, vegna þess að
mjólk gyltunnar var súr.
★
Mjólkursamsalan í Suffolk tók
við 1800 tómum mjólkurflöskum
frá fullorðinni konu, sem var ein-
búi.
★
Maximilian keisari fyrirskipaði,
aö tveir biðlar um hönd dóttur
hans skyldu heyja einvígi, og átti
sigurvegarinn að troða hinum
ofan í tóman poka.
★
Innra borð garna þinna þekur
100 ferfet, eða fimm sinnum meira
en yfirborð skinnsins á þér.
★
Á 18 öld vildi afríski kóngurinn í
Karagwee hafa konur sínar svo
feitar, að þær gætu ekki staöið
uppréttar og yrðu að skríða eða
mjaka sér um gólfið líkt og selir.
Þeirra einasta fæða var mjólk, sem
þær sugu stanslaust gegnum strá
úrkeri. Ungar stúlkur, sem þrjósk-
uðust, voru þvingaðar til að éta.
★
Eftir að hafa verið 84 daga úti [
geimnum, stækkuðu geimfararnir í
síðustu ,,Skylab"-ferðinni um 2
tommur.
★
Kengúrur eru einnar tommu
langar við fæðingu, en vaxa síðan
og verða tæpirtveir metrar (8 fet).
í NÆSTU VIKU
Næsta tölublað Vikunnar verður72 síður. Það er okkar árlega páskablað, sem þá kemur
fyrir sjónir lesenda, sem sagt stærra en venjulega og fullt af ágætu efni. Meðal þess má
nefna viðtal við Helgu Eldon, sem margir kannast við, ballettdansara og fegurðar-
drottningu með meiru, heimsókn í blómabúðina Alaska við Miklatorg, myndir frá
kútmagakvöldi hjá Lionsklúbbnum Ægi, páskaskreytingar og tillögur um matartilbúning
á páskum. Skemmtileg smásaga er eftir Önnu Maríu Þórisdóttur, og Halldór Stefánsson
rithöfundur skrifar grein um galdrastafi og náttúru þeirra, og ber greinin þá hugnanlegu
yfirskrift: „Fjandinn með fúlan anda fast í lásinn blási." Síðast en ekki síst verður
heilmikið spjall um ferðalög, sem er vel við hæfi, því brátt fer í hönd aðalferðalagatími
ársins. Forkólfar ferðaskrifstofa fræða okkur á því, hvert þeir vildu sjálfir helst fara,
hvert viðskiptavinir þeirra vilja helst fara og hvaða ferðir aðrar er boðið upp á.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Guðmundur Karlsson, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart.
Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing í Síðumúia 12. Símar35320 —
35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 350. Áskriftarverð kr. 3.900 fyrir 13 tölublöð órsfjórðungslega, eða
kr. 7.370 fyrir 26 tölublöð bálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fýrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar,
maí, ágúst.
12. TBL. VIKAN 9