Vikan - 24.03.1977, Blaðsíða 15
fyrirfram, ef þú hefðir eitthvað
hugsaö.
— Auðvitað hefði ég átt að
reikna með því, svaraði Pétur
aumingjalega. En maður heldur
jú ávallt, að maður sleppi sjálfur
við svonalagað, treystir bara á
Guð og lukkuna. Nú, en semsagt,
þá standa málin svona í dag. Ég
hefi verið önnum kafinn við að
selja húsið, bílinn og allt annað,
sem ég hefi átt, því það er ekki
tautinu komiö við Gunnu. Hún
nær hreinlega ekki uppí nefið á sér
fyrir vonsku og heimtar skilnað.
Ég kvaddi Pétur dapur í bragöi
og kom mér rakleiðis heim til aö
hugsa, því að ég þóttist sjá í hendi
mér, að það væri einmitt það, sem
vantaði í máliö. Heilbrigö hugsun.
Mér varð fljótlega Ijóst, að
málinu yrði ekki bjargað úr því
sem komið var, . því að Pétur
greyið hafði gefist upp strax í
upphafi og viðukennt sína sök. Úr
því varð engu bjargað.
Á hvaða stigi málsins hefði
verið hægt að bjarga, ef heilbrigð
hugsun hefði komist þar að?
Jú. Á tímabilinu frá þvi að Pétur
hafði verið þarna niðri á barnum
að allt fram að því að hann lagöist
í rekkju með Gunnu heima hjá sér,
hafði einmitt verið réttur umhugs-
unartími. Hugsandi maður hefði
getað fundið fjölda ráða til þess að
þetta hefði ekki þurft að koma
fyrir. Ergo: Pétur vinur minn var
greinilega 1) hugsunarlaus 2)
Hannes Þórarinsson yfirlæknir
Húð- og kynsjúkdómadeildarinnar
en ibaksýn eru hjúkrunarkonurnar
Guðrún LHja Þorkelsdóttir nær og
Helga Vigfúsdóttir.
Fjarverandi var Sæmundur
Kjartansson læknir en læknarnir
tveir vinna þar aðra hverja viku til
skiptis.
kærulaus 3) og hann átti bara
skilið að komast í þessi vandræði.
Til að reyna að setja mig enn
betur inn í málið, þá hugsaði ég
mér í upphafi, að ég væri staddur
á barnum í stað Péturs eina kvöld-
stund. Hvernig mundi ég þá haga
mér? Hvernig mundi mér líða?
Mér mundi líða prýðilega, og ég
mundi haga mér samkvæmt því.
Mundi ég fara að rabba við
kvenmann þarna á barnum? Nei,
það mundi ég ekki gera. Af hverju
ekki? Aðeins vegna þess, að ég
yrði strax smeykur við slíkt. Ég
hafði sjálfur fyrir löngu tekið
ákveðna afstöðu í slíkum málum.
Ég hafði þá gert mér fulla grein
fyrir hættunum, sem þar lágu í
leyni og ákvað í eitt skipti fyrir öll,
að slíkt bæri að forðast bæði þá
og í allri framtíð.
Ég hafði endur fyrir löngu
byggt mína eigin varnarlínu og
varð að treysta henni nú sem
endranær.
En væri nú ekki gott að hafa
liðskönnun þar, sérstaklega með
það fyrir augum, að nú eru aðrir
tímar og sennilega þörf á ein-
hverjum endurbótum eða breyt-
ingum á liðinu í línunni?
Ágætt. Fyrirtak.
Ég fór rakleiðis í næsta síma og
hringdi í 22400 og bað um varnar-
málaráðherrann, Hannes Þórar-
insson lækni, sem er yfirlæknir
kynsjúkdómadeildarinnar og
stjórnar öllum vörnum á því sviði,
jafnframt því að hann stjórnar
einnig allri viðgerða- og endur-
byggingaþjónustu á heimavíg-
stöðvum.
Seinna, þegar ég var kominn
þangað og var búinn að skýra
honum frá erindi mínu, þá hóf
hann mál sitt á eftirfarandi hátt.
— Kynsjúkdómar eru svo
kallaðir, vegna þess að þeir
smitast aðallega með kynmökum.
Algengastur kynsjúkdóma hér á
landi og í nágrannalöndum okkar
er lekandi. Lekandasýkill lifir
aðallega í slímhúð líkamans og
smitast auðveldlega við samfarir,
en þá verður mjög náin snerting í
slímhúð þeirra, sem í hlut eiga.
Kynfærin smitast oftast, en slím-
húð munns og endaþarms geta
einnig smitast, ef sýkt kynfæri
snerta þær. Tíðni munnholssmit-
unar af völdum lekanda fer
vaxandi víða erlendis.
— Venjulega gerir lekandi vart
við sig hjá karlmönnum tveimur til
sex dögum eftir smitun. Þetta
getur þó dregist í 3 vikur eða
lengur. Fyrsta einkenni sjúkdóms-
ins er sviði í þvagrás, einkum við
þvaglát og getur sviðinn verið
mjög mikill.
— Er það það sem kallað er ,,að
míga jólatrjám?"
— Já, eins og ég sagði, getur
sviðinn orðið mjög mikill, en
athuga skyldi vel, að lekanda þarf
alls ekki að fylgja neinn sviði.
Jafnframt sviða, eða mjög stuttu
síðar, fær sjúklingur útferð úr
þvagrás, sem venjulega verður
graftarkennd.
— Hvernig lýsir lekandi hjá
konum sér?
12. TBL. VIKAN 15