Vikan - 24.03.1977, Side 20
þig er ekki lengur dýr, lifandi vera,
eins og þú, heldur vandamál.
Sársauki í samúðarskyni hinu
eina, sem ég þekki til hans, man ég
eftir eins og einhverju, sem ég
þjáðist af fyrir mörgum árum. Ég
vildi — og það var hið eina, sem ég
vildi — finna takmörkin fyrir um-
myndunarhæfni lifandi veru”.
,.En”, sagði ég, ,,þetta er
svívirðilegt-”
„Til þessa dags hef ég aldrei gert
mér rellu út af siðfræði málsins.
Rannsókn náttúrunnar gerir mann-
inn að lokum eins miskunnarlausan
og náttúran er. Ég hef haldið áfram
og ekki skeytt um neitt nema
spurninguna, sem ég var að leita
svars við, og efnið hefur... dropið út
: kofana þarna.... Nú eru næstum
ellefu ár, siðan við komum hingað,
ég, Montgomery og sex menn frá
Suðurhafseyjum. Ég man eftir
grænni kyrrð eyjarinnar og auðu
hafinu kringum okkur, eins og þetta
hefði verið í gær. Staðurinn virtist
bíða eftir mér.
Birgðunum var skipað á land, og
húsið var byggt. Mennirnir frá
Suðurhafseyjum bjuggu til nokkra
kofa nálægt gilinu. Ég fór að vinna
hér með það efni, sem ég hafði flutt
með mér. í fyrstu komu fyrir
nokkur ógeðfelld atvik. Ég byrjaði
með kind og drap hana eftir einn og
hálfan dag með því að beita
skurðhnifnum rangt; ég tók aðra
kind og bjó til veru, sem þjóðist og
var hrædd, og lét hana vera um
kyrrt i umbúðum, svo að hún gæti
gróið. Mér virtist hún nálgast að
vera mennsk, þegar ég hafði lokið
við hana, en þegar ég fór að vitja
um hana, var ég óánægður með
hana; hún mundi eftir mér og var
fram úr hófi skelfd, og hún hafði
ekki meira vit en kind. Því meir sem
ég horfði á hana, því klunnalegri
virtist hún, þangað til ég að lokum
leysti ófreskju þessa úr eymd sinni.
Þessi huglausu dýr, þessar
hræðslugjörnu, kvöldu verur, sem
höfðu ekki einn neista af baráttu-
þreki til að mæta pyndingum - þær
eru einskis virði sem efniviður í
menn.
Svo tók ég górilluapa, sem ég
hafði, og úr honum gerði ég, með ó-
endanlegri vandvirkni og með því
að sigrast á hverjum erfiðleikanum
eftirannan, minn fyrsta mann. Alla
vikuna, dag og nótt, var ég að búa
hann til. Hjá honum var það
aðallega heilinn, sem umbreyta
þurfti; miklu varð að bæta við, og
miklu varð að breyta. Mér fannst
hann vera sæmilegt sýnishorn af
negrakyninu, þegar ég hafði lokið
við hann og hann lá, i umbúðum,
bundinn og hreyfingarlaus fyrir
framan mig. Það var ekki fyrr en
víst var, að hann mundi lifa, að ég
fór frá honum og kom aftur inn i
herbergið og fann Montgomery i
nokkurn veginn sama ástandi og þú
ert. Hann hafði heyrt nokkuð af
ópunum, þegar apinn var að verða
mennskur, og það voru samskonar
óp og þau, sem trufluðu þig svo
mikið. Ég gerði hann ekki að
algerum trúnaðarmanni minum í
fyrstu.
Og Suðurhafseyjabúarnir voru
líka komnir á snoðir um eitthvað af
þessu. Þeir voru örvita af hræðslu,
þegar þeir sáu mig. Ég fékk
Montgomery á mitt mál — á vissan
hátt, en ég og hann áttum fullt í
fangi með að hindra, að suðurhafs-
eyjabúarnir strykju. Að lokum
struku þeir, og þá misstum við
seglbátinn. Ég eyddi mörgum
dögum i að uppfræða manndýrið —
alls var ég þrjá eða fjóra mánuði að
fást við hann.Ég kenndi honum
undirstöðuatriðin i ensku, kom
honum í skilning um, hvernig ætti
að telja, og lét hann meira að segja
lesa stafrófið. En það gekk seint hjá
honum — þó að ég hafi komist í
kynni við fábjána, sem voru
tornæmari. Hann byrjaði eins og
óskrifað blað, sálarlega; hann
mundi ekkert eftir því, hvað hann
hafði verið. Þegar ör hans voru
alveg gróin, og hann var ekki
lengur kvalinn og stifur og gat talað
dálitið við mig, fór ég með hann yfir
til suðurhafseyjamanna og kynnti
hann fýrir þeim sem forvitnilegan
laumufarþega.
Þeir voru i fyrstu hræðilega
hræddir við hann, einhvern veginn
var það svo — og þótti mér það
miður, því að ég var upp með mér af
honum — en hegðun hans var svo
góðlátleg, að eftir dálitinn tíma
tóku þeir við honum og tóku að sér
uppfræðslu hans. Hann var fljótur
að læra og gerði sér far um að líkja
eftir öðrum og laga sig eftir
aðstæðum, og hann byggði sér
kofa, sem var heldur betri, að þvi er
mér virtist, en kofar þeirra sjálfra.
Meðal strákanna var náungi, sem
var hálfgerður trúboði, og hann
kenndi honum að lesa, að minnsta
kosti að þekkja stafina, og kynnti
fyrir honum undirstöðuatriði sið-
fræðinnar, en að þvi er virtist var
ekki allt hið æskilega að finna í
venjum manndýrsins.
Ég hvíldi mig frá störfum nokkra
daga og hafði þá hug á að skrifa
skýrslu um allt málið til að vekja
enska lífeðlisfræði. Svo rakst ég á
manndýrið, þar sem það húkti uppi
í tré og bullaði við tvo af suðurhafs-
eyjamönnunum, sem höfðu verið að
striða honum. Ég hótaði honum,
sagði honum, að þetta væri
ómennsk framkoma, vakti blygð-
unartilfinningu hans og sneri aftur
hingað, staðráðinn í að gera betur,
óður en ég færði starfsemi mina
aftur til Englands. Mér hefur tekist
betur; en einhvern veginn sækja
manndýrin aftur í sama farið, hið
þrjóskulega augnaráð dýrsins kem-
ur í ljós aftur og verður greinilegra
með hverjum degi, sem líður.... Ég
ætla að gera enn betur. Ég ætla að
komast svo langt. Þessi púma...
En þetta er sagan. Nú eru allir
suðurhafseyjamennirnir dánir. Einn
féll fyrir borð af skipsbátnum, og
einn dó af sári, sem hann fékk á
hælinn vegna einhvers konar eitr-
unar frá plöntusafa. Þrir fóru burt í
bátnum, og ég geri ráð fyrir og
vona, að þeir hafi drukknað.
Hinn... var drepinn. Jæja — ég hef
sett aðra í þeirra stað.Montgomery
hegðaði sér á mjög svipaðan liátt og
þú i fyrstu, og svo...”
„Hvað varð um hinh?” sagði
'éghvasst, — „hinn suðurhafseyja-
manninn, sem dó?”
„Sannleikurinn er sá, að eftir að
ég hafði búið til allmargar mennsk-
ar verur, bjó ég til dálítið —” Hann
hikaði.
„Já?” sagði ég.
„Það var drepið”.
„Ég skil þetta ekki”, sagði ég;
„ætlið þér að segja...”
„Það drap suðurhafseyjamann-
inn - já. Það drap nokkrar aðrar
lifandi verur, sem það náði. Við
eltum það í nokkra daga. Það
losnaði af slysni — ég ætlaði því
aldrei að sleppa. Ég hafði ekki lokið
við það. Það var eingöngu tilraun.
Það var limalaus skrokkur með
hræðilegt andlit, sem skreið eftir
jörðinni eins og höggormur. Það var
feiknasterkt og viðþolslaust af
kvölum, og það hoppaði áfram líkt
og hnýsa á sundi. Það leyndist í
skóginum í nokkra daga og gerði
mein öllu kviku, sem það rakst ó,
þangað til við fórum að elta það, og
þá hrökklaðist það norður á eyjuna,
og við skiptum liði til að króa það
inni. Montgomery heimtaði að fá að
koma með mér. Hann hafði riffil, og
þegar skrokkur dýrsins fannst, var
annað byssuhlaupið beygt í S-laga
form og næstum bitið saman....
Montgomery skaut dýrið.... Eftir
V iðleguútbú naður
er vinsælasta
fermingargjöfin
í ár
FERDAIÖRi DEILD
20 VIKAN 12. TBL.