Vikan - 24.03.1977, Side 44
SMÁSAGA EFTIR EINAR LOGA EINARSSON
Peningur upp á rönd
Hugsanalestur er mörgum hugleikið
viðfangsefni, og til eru þeir, sem
fullyrða, að slíkt eigi sér stað. En þótt
það gæti eflaust oft verið gaman að
lesa hugi annarra, getum við líklega
við nánari umhugsun sæst á, að hið
gagnstæða er ólikt æskilegra. En í
eftirfarandi sögu lesum við um mann,
sem varð einn góðan veðurdag fyrir
þeirri furðulegu reynslu að geta lesið
hugsanir annarra.
Það var furðulegt, já, það var svo
furðulegt, að ég.hef ennþá ekki getað
áttað mig almennilega á því,
hvernig slíkur atburður gat gerst.
Hann stríðir á móti öllu, á móti
náttúrulögmálinu, ef það er þá til, á
móti heilbrigðri skynsemi og jafnvel
á móti þyngdarlögmálinu. Samt
gerðist þetta, það er staðreynd. Ég
var hvorki sofandi, drukkinn eða
vitlaus. Ég væri auk þess ekki
kominn í þessa ágætu stöðu, ef
atburðurinn hefði aðeins átt sér stað
í imynd minni.
Það eru nokkur ár siðan þetta
kom fyrir, en ég hef ekki þorað að
segja frá þessu fyrr, af ótta við að
vera talinn vitskertur, eða kannski
eitthvað enn verra. Ég starfaði þá
hjá byggingafyrirtæki, og geri
raunar enn. Ég var aðeins litilsigld-
ur skrifstofumaður, og það var
langt frá því, að ég væri ánægður
með starfið. Auk þess fundust mér
launin allt of lág, en það er kannski
ekki svo einkennilegt. Ætli sá
maður fyrirfinnist, sem finnst
launin sín ekki allt of lág? Hvort
sem það stafar af því, að menn meti
sig meira en efni standa til, eða af
einhverju öðru, skal ég ekki segja
um.
Það var föstudagsmorgunn. Ég
vaknaði óvenju seint, og þegar ég
leit á klukkuna, sá ég, að ég yrði að
hafa mig allan við til að ná til
vinnunnar í tæka tíð. Þegar ég hafði
klætt mig.gleyptiég í mig morgun-
kaffið og rauk svo af stað niður í bæ
til að ná strætisvagninum. Ég bý
nefnilega rétt við miðbæinn.
Þegar ég var kominn niður i
miðbæ, heyrði ég blaðasölustrák-
ana kalla upp nöfn dagblaðanna.
Þar sem ég var svona seint fyrir,
hafði ég ekki haft tíma til að lita í
blaðið, áður en ég fór. Ég ákvað því
að kaupa blað í lausasölu, og
kannski gæfist mér tækifæri til að
stelast til að líta i það í vinnunni.
„Strákur,” kallaði ég til næsta
drengs, sem kom óðara hlaupandi
til mín. Ég fálmaði í flýti í vasa
minn eftir 50 króna peningi, en svo
mikið fálm og fát var á mér, að
þegar ég var kominn með peninginn
í lófann, rann hann úr greip minni ó
milli fingranna og niður á gang-
stéttina. Ég skimaði i kringum mig
til að sjá, hvert peningurinn hefði
farið, og kom strax auga á hann. Og
þó gerðist undrið.
Eðlilega hefði talist, að peningur-
inn hafnaði þannig, að annað hvort
snéri talan upp eða alþingishúsið.
En, ónei, því var ekki að heUsa,
hann staðnæmdist upp ó rönd. Nú
getur hver sem er reynt að kasta
peningi og fá hann tU að staðnæm-
ast þannig. Held ég, að viðkom-
andi þyrfti að reyna ansi oft, þar tU
að kæmi að því að peningurinn
hafnaði í þeirri stöðu, ef hann þá
gerði það nokkum tíma. Hér hafði
því einhvers konar kraftaverk
gerst.
Mér varð starsýnt á peninginn,
og þá kom einhvers konar annarleg
tilfinning yfir mig, sem erfitt er að
lýsa. Mér fannst ég hvorki vera
þessa heims né annars, heldur
einhvers staðar þar mitt ó milli. Það
var eins og móða eða ský svifi fyrir
augu mér, og ég varð allur eitthvað
svo undarlegur. Nei, ég held, að ég
treysti mér ekki tU að lýsa þessari
tilfinningu, en annarleg var hún.
Þegar af mér bráði, beygði ég mig
eftir peningnum og tók hann upp.
„Bannsettur klaufinn,” heyrðist
mér blaðasölustrákurinn segja.
„Hvað varstu að segja?” spurði
ég höstugur og snéri mér að
stráknum. Hann setti upp undunar-
svip og sagði:
„Ég? — Ég sagði ekki neitt.”
„Heldurðu, að ég sé heyrnar-
laus?” hreytti ég út úr mér, um leið
og ég fékk honum peninginn og tók
við blaðinu. „Þú verður að vera
kurteis við viðskiptavinina, annars'
kaupa þeir bara blaðið af öðmm.”
Með það gekk ég snúðugt í burtu,
en strákurinn stóð og horfði á eftir
mér með opinn munn, orðlaus af
undmn.
Ég hljóp við fót að strætis-
vagninum og rétt hafði að komast
upp í hann, áður en hann fór af stað.
Ég nóði mér í sæti aftast í
vagninum, og þegar ég var búinn að
koma mér notalega fyrir, tók ég að
lesa blaðið. En ég hafði ekki lesið
lengi, þegar ég heyrði manninn,
sem sat við hlið mér segja:
„Skelfing em skórnir óburstað-
ir.”
Ég þóttist vita, að hann ætti við
mig, og hólfsnéri höfðinu tU hans.
„Nú, hann er bersýnUega ný-
vaknaður,” heyrðist mér maðurinn
segja. Ég ætlaði að fara að svara
fyrir mig og segja, að honum kæmi
það lítið við, þótt ég væri nývakn-
brother
er eftirsótt fermingargjöf
508 AD með minni, kvaðratrót, Pi,
sjálfvirkum konstant, prósentu og fljótandi
kommu.
408 AD án minnis.
BROTHER vasatalvan er ódýr, handhæg
og falleg.
BORGARFELL HF.
Skólavörðustíg 23. Sími 11372.
vasa-
tölvan
EI3ÖÖH
408AD 508AD
44 VIKAN 12. TBL.