Vikan - 24.03.1977, Qupperneq 48
FORNFÁLEGUR DRAUMUR
Kæri draumráöandi!
Mig langar til að biðja þig að
ráða fyrir mig draum, sem mig
dreymdi fyrir ári og er hann á þess
leið:
Ég var á gangi í glaðasólskini að
sumarlagi og ég undraöist hve
grasiö var grænt. Gekk ég yfir tún
og fannst mér ég vera að fara til
kirkju. Þá tók ég eftir því að ég var
meö sauðskinnsskó á fótum og í
upphlut. Svuntusettiö var rauö-
köflótt og ákaflega fallegt. Þegar
ég kom inn í kirkjuna hikaði ég
sem snöggvast, en gekk siöan inn
gólfið og fannst mér ég vera á leið
upp aö altarinu. Bekkirnir í
kirkjunni voru þéttsetnir af spari-
klæddu fólki og voru fötin öll
svört. Fannst mér ég þekkja
fólkið, þótt ég sæi aöeins baksvip
þess. Mér þótti undarlegt að ég
skyldi heyra orgelleik en engan
söng. Þegar ég var komin hálfa
leið upp á altarinu (mér fannst ég
vera ákaflega léttstig) kom ég
auga á prestinn, sem ég þekki vel í
raunveruleikanum. Það var verið
að hjálpa honum í hempuna. Allt f
einu rann það upp fyrir mér, að
allir voru að bíða eftir mér, en ég
vissi ekkert hvað til stóð.
Draumurinn var ekki lengri.
Síðan þakka ég Vikunni fyrir allt
gott efni, sem birtist í blaðinu.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðn-
inguna, Birta.
Draumurinn er tákn brúðkaups.
Ekki endilega þitt eigið, en þá
einhvers úr fjö/sky/du þinni.
Annars má líka lesa það úr
draumnum, að einhver fjölsky/du-
meðlimur muni reynast hættuleg-
ur vegna svika sinna og óheilinda.
Það þarf þó a/ls ekki að standa í
beinu sambandi við brúðkaupið,
en gæti allt að einu gert það.
LEIKRIT Á ÍÞRÓTTAVELLI O.FL.
Kæri draumráðandi!
Mig langar aö biöja þig aö ráða
fyrir mig eftirfarandi drauma, en
þeir eru svona:
Mér fannst ég vera á íþrótta-
velli, en á vellinum var verið aö
leika leikrit. Fólkið var á áhorf-
endapöllunum og þar á meðal ég.
Svo.þegar sýningin var u.þ.b. að
verða búin gekk ég í burtu fyrst af
öllum og gekk eftir forugum vegi.
Allt í einu komu tveir litlir strákar
að mér, en þeir höfðu veriö á eftir
mér og voru þeir að búa til
drullukökur, sem þeir ætluðu að
henda i mig. Ég var nú ekki á þeim
buxunum að láta þá gera það og
hörfaði til baka á móti mannfjöld-
anum. Þar hitti ég A og B og hélt
B á brennivínsflösku. Sagðist
Mig
dreymdi
hann vera blindfullur. Við þrjú
fórum svo að tala viö S, en hún
stóð ekki á veginum, heldur á eins
konar drullueyju og var drullupoll-
ur á milli hennar og okkar þriggja.
Mér fannst hún horfa mjög athug-
ulum augum á mig.
Annar draumurinn var á þessa
leið: Mig dreymdi að ég færi inn í
skáp hjá öðrum. Þar var skúffa
nokkur og þegar ég dró hana út
kom í Ijós Ijósmynd af bíl. Furðaöi
ég mig mjög á þessu.
í þriðja draumnum var ég stödd
á einhvers konar samkomu. Fólkið
sat á bekkjum og sneru þeir allir
fram, þ.e.a.s. fólkið sneri bökum
að útgangnum. Fannst mér stjórn-
andi þessarar samkomu vera
fremst (sbr. prestur í kirkju).
Sagði hann fólkinu einum og
einum í senn, að fara að útgang-
inum og brjóta þar egg. Þegar ég
braut mitt egg kom í Ijós bleikblá
rauðaístað venjulegrarrauðu, sem
var hjá öllum öðrum.
Að lokum. Hvað táknar að
dreyma að maöur sé búinn að
missa hluta af jaxli (tönn)? Hvað
táknar að tala ( síma í draumi?
Hvað táknar að dreyma brauð?
Ég vona að þú getir ráðið þessa
drauma fyrir mig.
Meö fyrirfram þökk,
Ein berdreymin.
Fyrsti draumurinn er fyrir ein-
hverjum mikilvægum verkefnum,
sem þér verða fengin og þú munt
leysa af hendi með sóma. Þetta
gæti færtþér fjárhags/egan gróða.
S gæti veikst, en þó er það ekki
greinilegt.
Annar draumurinn er fyrir
vandræðum af völdum fláráðra
kunningja og sá þriðji er tákn um
falska vini, eignatjón og svik.
Brotin tönn getur táknað vina-
missi eða álitshnekki. Brauö á sér
margar skýringar, sem fara eftir
öðrum aðstæðum / draumnum.
Að tala / síma táknar mjög llklega
einhverjar fréttir úr fjarlægð.
DRAUMUR 3933-7274
Kæri draumráðandi!
Ég vona innilega að þú ráðir
eftirfarandi draum fyrir mig.
Mér fannst ég vera ( bíl fyrir
utan hús eitt hér f bæ og inn í
hann kom einhver strákur með
bréfpoka, sem var allur límdur
með bláu limbandi. Voru blóm í
þessum poka. Ég tók eina grein
upp úr honum og samfastur henni
var uppþvottabursti úr tré í glæru
plasti. Svo dró strákurinn upp
trúlofunarhring og setti á hægri
hönd mína. Þetta fannst mér
skrftið vegna þess að ég hafði
aldrei veriö með honum og vissi
ekkert hver hann var. Ég var alltaf
með tvo hringa á hægri hendi og
var aö hugsa um, aö ég vildi frekar
hafa hann á þeirri vinstri því að
þetta væru alls ekki eins hringar.
Hringurinn var heldur ekki eins og
ég vildi hafa hann. Hann var mjór
að neðan, en þónokkuð breiður að
ofan, meö rauf allan hringinn og
rauðum steini. Það stóðu ein-
hverjar tvær stelpur fyrir utan
húsið og kölluðu: „Hvenær sjáum
við þig aftur?" (Þær áttu viö
strákinn). Mér fannst einhvern-
veginn að hann hefði unnið þarna
og þetta væri blómabúö. önnur
stelpan hélt á plastpoka og sagði:
„Hérna, gríptu." Þaö er að visu
vani að gefa myndavél, en þið
getið alveg notað þetta eins vel."
Því næst vorum við inni í einhverri
ibúð. Þangaö kom pabbi og var
hann tannlaus. Hann heilsaði
gæjanum og spurði hann hver
hannværi. Ég hélt höndinni á mér
fyrir aftan bak til þess að pabbi
sæi ekki hringinn. Ég vissi að hann
myndi ekkert gruna, því að hann
haföi aldrei séð okkur saman.
Síðar var ég alltaf að drekka
Bakkardí úr snafsaflösku og var
búin að ákveða að sofa ekki heima
um nóttina, því að ég átti ekki að
fara í vinnu fyrr en klukkan hálf
fjögur. Ég ákvað þvi að fara I
heimsókn til systur minnar um
kvöldið, en fór svo aö hugsa um
hvað ég ætti aö segja henni um
gæjann, því að ég vissi ekkert um
hann. Ég hafði aldrei tækifæri til
þess að spyrja hann neins, ekki
einu sinni hvað hann héti, en ég
ætlaöi að spyrja hann að öllu
þegar við yröum tvö ein um
kvöldið. Svo fór ég inn í sjoppu,
en þar hitti ég strák, sem er miklu
yngri en ég og hann sagði: „Þú
manst að fara á hestamannafund-
inn á morgun." „Já, er hann ekki
klukkan tíu," spurði ég. „Jú, það
helcfég. Annars eru þeir að berjast
fyrir því aö hafa hann klukkan
fimm," sagði hann. „Þá get ég
ekki farið, því að ég fer að vinna
klukkan hálf fjögur," sagði ég þá,
en sagðist jafnframt ætla að senda
bróður minn til þess að ná í eyðu-
blööin (eigi veit ég til hvers þau
áttu að vera). Það var einu sinni (
draumnum, að strákurinn, sem óg
trúlofaðist, spilaöi plötu og það
komu myndir með. Ég benti þá á
stelpu, sem sat við borð og sagði:
„Þessi var mella hjá Trúbrot."
Hún stóð þá upp og fór að gaula
eitthvert lag, en ég sagði við
strákinn: „Hún heitir ....". Svo
fór ég aö skoða hringinn í fyrsta
skipti, því ég hafði aldrei haft
tækifæri til þess fyrr.
Mig langar líka til þess aö vita,
hvort eitthvað er merkilegt (
öðrum draumi, sem mig dreymdi:
Ég var hjá vinkonu minni og var
að skera niður franskbrauð. Svo
hljóp ég út í búð til þess að kaupa
tvö epli og tvær Sinalco. Þar var
ferlegur lýður inni og einn ruddist
fram fyrir mig. Ég sagði þá viö
hann: „Mikill djöfulsins dóni
geturðu verið." Síöan fór ég út og
þar hitti ég gamla vinkonu mfna
og sagði henni að það ætti að
senda mig burtu til þess aö
njósna. „Hvert?" spurði hún, en
ég mátti alls ekki segja þaö. Svo
greip ég um magann á mér og var
þar kúla og fann ég mikið til. Mér
fannst að það ætti að senda mig til
Hveragerðis.
Með kærri kveðju og þökk fyrir
birtinguna, ef hún verður,
3933-7274
Fyrri draumurinn er fyrir /ítils-
háttar fjárhagsörðugleikum. Þú
munt sennilega ekki giftast fyrst
um sinn, en þegar þar að kemur
muntu ná ástum þess erþú e/skar.
Einhverntlma á næstunni muntu
hitta nokkra vini þina og skemmta
þér konunglega með þeim. Sumtí
draumnum bendir til þess að þú
sér gefin fyrir að hylja þina réttu
persónu og innræti. Það er þér
ekki til góðs og gæti einfaldlega
spillt fyrir velgengni þinni.
Seinni draumurinn er fyrir því
að þú munir sigrast á einhverjum
örðugleikum. Einnig virðist hann
benda til þess aö þú eignist
sveinbarn og verður það þér
ánægjuefni. Ekkert gefur til kynna
hvenær það muni gerast og gæti
það þess vegna verið langt undan.
48 VIKAN 12. TBL