Vikan


Vikan - 08.12.1977, Side 36

Vikan - 08.12.1977, Side 36
— Ég var hrædd — allan tímann. Ebba réyndi að væta skrælnaðar varirnar með tungubroddinum, gamla konan sá það og tók mál af borðinu og gaf henni að drekka. Þetta var ekki bara vatn, það var einhverju blandað í það, einhverju, sem var bæði beiskt og sætt. Ebba þekkti bragðið og drakk af áfergju. — Þú hefur ekkert að óttast, sagði gamla konan og hélt áfram að strjúka Ebbu blíðlega um ennið og yfir augun. — Því er lokið núna, öllu er lokið. Næst mun þér ganga betur. Svona lagað gerist oft. Það er erfitt, þegar það er í fyrsta skiptið. En þú kemst yfir þetta, blessuð stúlkan min, því mátt þú trúa. Vertu ekki hrædd. Ebba settist snögglega upp i rúminu. Hún ýtti Jóhönnu frá sér og horfði fast í augu hennar. — Þú skilur ekki, sagði hún. — Það er ekki það. Jóhanna, var barnið mitt andvana? , . — Já. Það kom of snemma, og það var dáið. En... — Leit það út eins og.... eins og börn eiga að gera? — Hvað áttu við? sagði gamla konan felmtri slegin. — Það kom heldur of fljótt, ég sagði það, en auðvitað leit það út, eins og nýfædd börn eiga að líta út. — Þú mátt ekki segja mér ósatt. Þú ert þó ekki að segja þetta bara til að hughreysta mig? — Ég hefi aldrei sagt þér ósatt, og það geri ég ekki heldur í þetta skiptið. Ebba, er það það, sem þú hefir óttast? Vegna þess sem á undan er gengið? En þessi litli vesalingur á Steinum var fullkom- lega rétt skapaður, var það ekki? Ebba sagði ekkert. Hún lagðist á koddann aftur og fól andlitið í höndum sér. Hún lifði það allt aftur; hinn langa biðtima, skelf- inguna, áhrifin frá Amalíu litlu — mjótt andlit barnsins, augun henn- ar, sem tómlát störðu út i bláinn. Augu, sem aldrei horfðu á neinn, bara framhjá, langt burtu á eitthvað, sem enginn vissi hvað var. Hún skalf og nötraði af geðshræringu. — Lúkas, grét hún örvæntingar- full. — Ö, af hverju fór þetta svona? Lúkas, ég vildi óska... O, elskan mín. Vinur minn, hvað hefi ég gefið þér... andvana bam. Ég var svo hrædd, og ég hafði ástæðu til þess. Jóhanna tók um hönd hennar. — Ebba, sagði hún áhyggjufull. — Það var ekkert að baminu þínu. Það var lítill, velskapaður drengur. En hann kom of snemma og fékk ekki að lifa. Það er ekki hægt að ásaka neinn, síst af öllu þig. Og næsta skiptið.... Ebba leit upp. Gráu augun hennar vom dökk og tortryggin. — Ef það er satt... hvar er hann þá? Ég vil sjá hann. Gamla konan hikaði. Hún hafði sveipað handklæði utan um litla likamann og falið hann í bmgghús- inu. Það var satt, sem hún sagði, það var ekkert voðalegt við þann litla. En hafði Ebba gott af að sjá hann? Hún efaðist um það. Jóhanna varð að taka ákvörðun. Dauðinn hafði knúið dyra á bænum og kæmi víst brátt aftur. Mats Mattison var reiðubúinn að fylgja honum, kannski yrði litli dóttursonur hans jarðsunginn sama dag og hann. En ^ylndersen Œb Lauth hf. Vesturgötu 17 Laugavegi 39 36VIKAN 49. TBL.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.