Vikan - 08.12.1977, Blaðsíða 99
Keðjuhús i Garðabæ. Mælikvarði
1:100. Arkitektar: Ormar Guð-
mundsson og Örnóifur Haii. Neöri
myndin er af Núpsskóla, mæli-
kvarði 1:25. Lokið við mode/ið í
sept. 1966. Sjá nánar um þetta
hús í viðtalinu.
bandprjónar og var þetta erfiö og
seinleg vinna, því pílárarnir voru
mjóstir einn millimetri og sverastir
tveir millimetrar. Ég bjó til
Þakrennur og niðurfallsrör úr
dósablikki og prófaði síðan, hvort
allt væri ekki í lagi með því að hella
vatni á þakið. Það skilaði sér allt
niður úr niðurfallsrörunum!
Ég átti líka í dálitlum vandræð-
am með bárujárnið á húsinu, en
það vann ég úr gömlum kaffibrús-
um, sem ég sníkti út um allan bæ,
en síðar bjó ég mér til mót til að
9era bárujárn.
EMGINN HLUTUR
ÓJVIÖGULEGUR_______________
— Er aldrei beygur í þér þegar
Þú ert að byrja á svona stórum
Verkefnum?
— Nei, ég hef þá kenningu, að
enginn hlutur sé ómögulegur, en
mér eru að sjálfsögðu mislagðar
hendur eins og öðrum. Ég byrja
ekki á svona verkefni nema velta
Því fyrir mér í huganum lengi,
stundum marga daga. Ég átti til
dæmis í erfiðleikum með að finna
út, hvernig ég ætti að ná réttu
útliti á veggjum Þjóðarbókhlöð-
unnar. Sem betur fer hafði ég
rúman tíma, því að ég lenti á
sPítala eftir að ég byrjaði á
Verkinu, og ég þurfti svo sannar-
le9a á sumarfríi að halda eftir
leguna. I sumarfríinu var ég alltaf
að brjóta heilann um, hvernig ég
gæti sem best leyst þetta verkefni,
sem er með því flóknara, sem ég
hef unnið, og að sjálfsögðu hefur
háð mér, að ég ekki með svo
fullkominn tækjabúnað. Smám
saman gekk dæmið upp, og nú er
þetta komið langleiðina. Efniviður-
inn er plast og plexigler, og húsið
er samsett úr einum 1400 stykkj-
um. Þetta módel verður trúlega
geymt í nokkra mannsaldra, svo
það er eins gott að vanda til
verksins. Ég held, að módelið hafi
hjálpaö til við endanlega gerð
hússins, þar sem arkitektar, og
þeir, sem eiga að starfa í húsinu,
hafa getað áttað sig betur á
endanlegri gerð hússins en ef þeir
hefðu aöeins haft teikningar til að
styðjast við.
— Verðurðu ekki stundum að
neita verkefnum?
— Það segir sig sjálft, að þar
sem modelsmíði tekur yfirleitt
langan tíma, þá verð ég á
stundum að neita verkefnum. Ég
hef alltaf haft nóg að gera síðan
ég byrjaði sjálfstætt.