Vikan - 08.12.1977, Blaðsíða 39
— Hvenær? spurði hún áköf og
settistupp. — Hvenær væntir Júlía
sín?
— Hvern daginn sem er, hún er
komin framyfir.
Barn Júlíu. Övelkomið barn, sem
átti að gefa fólki, sem vildi líta á
það sem sitt eigið barn.
Sem sitt eigið.... sem sitt eigið....
Mitt barn.
Ebba féll aftur niður á koddann.
Hún lá kyrr og starði upp í loftið og
reyndi að koma skipan á hugsanir
sínar. í innsta eðli hennar kveinaði
rödd, sem sagði: Barn, mitt barn.
En skynsemin svaraði: Barn Júliu.
— Ég get farið þangað uppeftir í
nótt, sagði Jóhanna. — Ég get
beðið Júlíu að koma til þin, þið
getið rætt saman.
Hún gat sem best rætt við Júlíu.
Það var ekkert rangt við það að
hitta hana. Þær höfðu ekki hist
siðan þær gengu saman i skóla með
dætrum prestsins. Ebba mundi vel
eftir henni, hún var dökkhærð,
lífleg, músikelsk eins og pabbi
hennar, óþolinmóð og full af
lifsgleði. Hún vildi gjarnan hitta
Júliu aftur.
— Það er langt þangað, sagði
Ebba.
— Ekki ef ég fer yfir mýrarnar.
— Verðurðu komin fyrir morgun?
- Já.
JÓHANNA fór. Þegar hún var
farin, varð svo hljótt inni, að Ebba
heyrði sín eigin hjartaslög. Hjartað
sló hratt og órólega. Jóhanna vildi
gefa henni tækifæri, átti hún að
grípa það eða hrinda því frá sér?
Hún varð að taka ákvörðun upp á
sitt eindæmi. Enginn annar réði
fyrir hana núna, þetta var hennar
mál.
Tíminn leið. Ugla vældi í fjarska.
Ebba lá hreyfingarlaus og beið
Jóhönnu. Hugsanir hennar voru
þungar og angistarfullar.
Hún hrökk við, þegar hún heyrði
allt í einu raddir fyrir utan.
— Hvernig líður henni? Magda
var stutt i spuna eins og venjulega.
— Eins og i gær. Hún tók ferðina
nærri sér, en hana langaði að hitta
föður sinn á lífi.
Magda lét sem hún heyrði þetta
ekki. — Það er fáránlegt af konu,
sem er svona á sig komin, að vera á
ferðinni, ég sagði henni það. Það er
best að leyfa henni að hvíla sig.
- Já.
Það var allt og sumt, sem
Jóhanna sagði. Ebba heyrði til
þeirra inn í herbergið, þar sem hún
lá. Jóhanna laug ekki, en hún sagði
ekkert. Og Magda hélt áfram: —
Ebba ætti að vera varkárari. Það er
mikið undir henni komið núna. Það
er beðið eftir erfingja að Steinum,
það ætti hún að hafa i huga.
— Ég ætlaði að líta inn til
ÞETTA ER
SONUR ÞINN
hennar. Þetta var rödd Bertu,
mildari rödd og eilítið sífrandi..
— Hún er sofandi, sagði Jóhanna
snöggt. — Hún þarfnast hvíldar.
— Já... Berta hikaði aðeins. —
En við ætlum heim i dag, við getum
ekki látið vinnufólkið sjá um
búskapinn of lengi.
— Nú, þið ætlið þá ekki að vera
hér og skipta arfinum?
Jóhanna sagði þetta ekki
hæðnislega, en Ebba heyrði, að
mágkona hennar hnussaði og
Magda svaraði þóttalega: — Þú
þarft ekki að hafa áhyggjur af því.
Sjáðu bara um, að Ebba hvíli sig.
Hún hefur ekkert að gera á fætur.
Pabbi liggur.
— Er allt við það sama?
— Já, það er allt eins. Við þrjú
vökum yfir honuin.
Já, það eru þrjú, sem vaka,
hugsaði Ebba. Jón, Magda og
Andrés, systkinin þrjú á Mattis-
garði. Þau reikna mig ekk’ með, þau
hugsa um mig eins og óviðkomandi
manneskju, sem ekki eigi hér neinn
rétt. Ekki á sama hátt og þau i það
minnsta. Og þau hafa á réttu að
standa. Ég vil vera á Steinum —
hjá Lúkasi. Manninum mínum.
ástinni minni, sem ég vil fórna öllu
fyrir.
Hún heyrði fótatak Mögdu og
Bertu fjarlægjast, og hún beið
óþreyjufull eftir að Jóhar,na kæmi
inn. En það leið drjúg stund áður en
dyrnar opnuðust. Gamla konan
vildi vera viss um, að konurnar
kæmu ekki aftur.
Ebba hreyfði sig ekki, hún
einblíndi á Jóhönnu, sem gaf sér
góðan tima til að fara úr skónum og
setja þá við dyrnar. Hún gekk á
sokkaleistunum inn að arninum og
lagði á meiri eldivið. Ebbu langaði
til að spyrja, en hún þorði ekki að
segja neitt. Henni fannst hún ráða
yfir aðstæðunum, meðan hún segði
ekkert. Ef hún ryfi þögnina, ef hún
NÓNUSTAN
Búið bflinn undir veturinn
Við bjóðum eftirtalda þjónustu í
kr. 8.800 fyrir 4 cyl bíl og kr. 1
1. Mótorstilling 3.
Stilltir ventlar
Head hert A
Blöndungur hreinsaður
Bensínkerfið athugað
Bensíndæla hreinsuð
Kerti athuguð
Þjöppun mæld
Platínur stilltar
Kveikjuþétti athuguð
Kveikjuþræðir athugaðir
Kveikjulok og hamar athugað
Kveikja smurð
Viftureim athuguð
Loftsia athuguð
Frostlögur mældur
því skyni fyrir lágt verð,
0.300 fyrir 6 eða 8 cyl
Tengsli stillt
Þurrkuarmar
og rúðusprautur
athugaðar
2. Undirvagn
Púströr athugað
Höggdeyfar athugaðir
Athugað hvort leki úr mótor,
gírkassa eða drifi
5. Stýrisgangur
Slit í stýrisupphengju athuguí
Slit í spindlum athugað
Slit í miðstýrisstöng athugað
Slit í stýrisvél athugað
6. Hemlar
Vökvamagn athugað
Hemlaátak jafnað
Handhemill athugaður
7. Ljós athuguð
Laugavegi 118-Sími 22240
49. TBL. VIKAN 39