Vikan - 08.12.1977, Page 51
Jólasveinn Vikunnar hefur fengið heiftarlegt kvef einmitt
þegar hann á að leggja af stað með vinningana í jólagetraun
Vikunnar. Nú eru góð ráð dýr, en jólasveinninn vill ekki
bregðast öllum þeim ágætu krökkum, sem unnu í
jólagetrauninni, svo að hann fær sér bíl í staðinn fyrir
sleðann (þið skiljið, svo honum verði ekki eins kalt) og
leggur af stað til að ná í tæka tíð fyrir jól. Nú er það ykkar að
hjálpa honum.
Jólaspilið er fyrir alla fjölskylduna. Þátttakendur kasta
teningnum eftir röð og færa sig áfram um jafnmarga reiti og
deplarnir á teningnum sýna. Ef sex kemur upp á teningnum,
þá fær viðkomandi aukakast. Sá vinnur, sem fystur kemst á
64.
5. Nýi bíllinn reynist mjög vel, og jólasveinninn getur ekki
stillt sig um að gefa svolítið í. Færðu þig á 10.
11. Lítils háttar vandræði með vélina, þú verður að fá einn á
teningnum til þess að fá að halda áfram.
16. Jólasveinninn er nú ekki alltof klár á svona farartæki, og
nú hefur hann fest sig í snjóskafli. Þú verður að bíða
í tvær umferðir.
21. Loksins kemst hann upp úr snjóskaflinum og áfram á
24.
25. Jólasveinninn styttir sér leið eftir skíðastökkbrautinni.
Þú færð tvö aukaköst.
31. Pokinn með öllum vinningunum dettur út úr bílnum. Þú
verður að bíða eina umferð, meðan þú hjálpar jóla-
sveininum að finna pokana aftur.
35. Æ, æ, þessi tækni getur nú alveg farið með einn
jólasvein. Það er eitthvert hikst í vélinni, og þú verður
að fá fimm til að komast áfram.
41. Nýbúið að ryðja veginn, og jólasveinninn fer á fullri
ferð niður brekkuna alla leið á 45.
46. Bíllinn verður bensínlaus, og jólasveinninn má gjöra svo
vel og ýta bílnum á næstu bensínstöð. Bíddu
tvær umferðir.
53. Bensíndropinn kostar sitt, og jólasveinninn má næstum
tæma veskið sitt. Þú verður að fá sex á teningnum til
þess að komast áfram.
57. Loksins er jólasveinninn að verða kominn heim til fyrstu
krakkanna, þeirra Önnu og Sigga, en fyrst þarf aðathuga
hvað það er, sem þau eiga að fá. Bíddu eina umferð.
64. Þú hefur unnið — og nú getur jólasveinninn farið að
útbýta vinningunum.