Vikan - 08.12.1977, Síða 62
Þá er komið að fjórða og
síðasta hluta getraunarinnar
og þar með kveður hann Óli
ykkur. Hér er hann að leika
við hundinn sinn og Stína
kemur þar að og spyr:
,,Hvað heitir þessi fallegi
hundur?" Óli svarar að
bragði: ,,Hann heitir:
R K Á U T." „Hvað seg-
irðu?" segir Stína, ,,það
heitir enginn hundur rkáut."
,,nei, það er rétt," segir Öli,
,,þetta eru stafirnir í nafninu
hans, og þá ættirðu að geta
fundið út hvað hann heitir."
Það getið þið áreiðanlega
líka, og þið skrifið nafnið á
getraunaseðilinn á bls. 10.
Síðan skuluð þið safna
öllum fjórum getraunaseðl-
unum og póstleggja þá
þegar í stað, því eftir 17.
desember drögum við um
100 skemmtilega vinninga,
sem við reynum að koma til
vinningshafa fyrir jólin, en
nöfn þeirra birtum við í
Vikunni.
Hverjir verða hinir heppnu
í ár?
Teikninq: Bjarni Jónssnn
EF ÞIÐ ERUÐ HEPPIN, FÁIÐ ÞIÐ
í JÓLAGJÖF FRÁ VIKUNNI OG
FIMM FYRIRTÆKJUM 100
GLÆSILEGA VINNINGA.
Dregið verður um 15 barnaplötur
frá SG-hljómplötum og munu þeir
heppnu eiga kost á að velja sér þá
plötu sem hugurinn girnist.
Dregið verður um 10 eintök af
bókinni HELGI SKOÐAR HEIM-
INN, sem Iðunn gefur út.
Höfundar eru Halldór heitinn
Pétursson og Njörður P. Njarðvík.
Dregið verður um 50 mismunandi
verðmæta LEGO vinninga, þar á
meðal verður kassi með öllum
þeim stykkjum sem þarf til að búa
til slíkan gaffallyftara.
Dregið verður um 15 stykki af Nýja
fótboltaspilinu frá Frímerkjamið-
stöðinni. Höfundur og hönnuður
er Ragnar Lár, teiknari.
4.
Dregið verður um 10 borðtennis-
sett frá heildverslun Ingvars
Helgasonar.
GETRAUNASEÐILL ER A BLS. 10
GODIR VINNINGAR