Vikan


Vikan - 08.12.1977, Blaðsíða 71

Vikan - 08.12.1977, Blaðsíða 71
Hátt uppi í hinum mikla kirkjuturni héngu jólaklukkurnar. Þærvoru aldrei notaðar, en gamla fólkið sagði, að þær myndu hringja af sjálfu sér, þegar stærsta og besta fórnargjöfin yrði lögð á altarið. Þetta jólakvöld þyrptist fólkið í kirkjuna í þeirri von að fá að heyra hinn dásamlega klukknahljóm. Þegar kóngurinn lagði kórónu sína á altarið, bjuggust allir við að fá nú að heyra spil jólaklukknanna. En klukkurnar voru þögular — enn um stund. [Icikkcirnar Jólasaga eftir Raymond MacDonald Alden — Nei, það fœ ég ekki, sagði Pedro, og hann gat ekki varist tárum. — Ég get ekki yfirgefið þessa vesalings konu hér i köldum snjónum. Andlit hennar líkist madonnumynd í kirkjuglugganum heima, og ef ég fer frá henni, frýs hún í hel. Nú eru allir famir til kirkju, en þegar þú kemur til baka, getur þú tekið með þér hjálp. Ég ætla að reyna að nudda hana og hlýja henni, reyna að halda henni vakandi, og kannski fæ ég hana til að borða svolítið af brauðinu, sem ég tók með mér. — Ég get ekki farið frá þér, og ég vil ekki fara aleinn, sagði bróðirinn hágrátandi. — Það er ekki nauðsynlegt, að við missum báðir af jólaguðs- þjónustunni, sagði Pedro, — því skalt þú nú fara. Þú ratar auðveldlega — og nú verður þú að sjá og heyra fyrir okkur báða. Ég er sannfærðurum, að Jesúbarnið veit, hve gjarnan ég vildi fara með þér til kirkjunnar til að lofsyngja hann. Ég ætlaði að fara upp að altarinu og, gefa honum silfurpeninginn minn, þegar lítið bæri á. Gleymdu nú ekki, hvar þú skilur við mig — þú finnur mig hér að lokinni guðsþjón- ustunni. Og fyrirgefðu mér, að ég get ekki farið með þér. Honum tókst að fó litla bróður til að halda áfram og hraða sér til kirkjunnar. Pedro reyndi að harka af sér, en tárin bmnnu á hvömmum hans, þegar hann heyrði fótatak bróður síns fjarlægjast æ meir í marrandi snjónum. Það var sárt að geta ekki farið með honum, hlýða á tónlistina, sjá ljósin, finna hlýjuna, syngja með hinum fólkinu — þeir höfðu hlakkað svo lengi til, bræðumir, og nú varð hann að hafast við hér í nepjunni og myrkrinu og reyna að halda lifi í vesalings konunni, þangað til hjálpin bærist. Hvert sæti var skipað í kirkjunni þetta jólakvöld. Allir vom sammála um, að aldrei hefði hún verið fegurri 'og bjartari en einmitt nú. Hinn voldugi hljómur orgelsins og söngur fólksins hljómaði móti litla bróður hans Pedro, þegar hann kom að kirkjunni. Hann hraðaði sér inn í kirkjuskipið. \^IÐ LOK guðsþjónustunnar færð fólkið gjafir sínar frammi við altarið. Ríkir og voldugir menn gengu hnakkakertir inn kirkjugólfið til að leggja gjafir sinar fýrir Jesú- barnið. Sumir gáfu dýrmæta gim- steina, aðrir svo mikið gull, að þeir gátu tæpast borið það sjálfir. Mikill rithöfundur fórnaði bók, sem hann hafði unnið við í áraraðir. Síðastur allra kom konungur landsins. Hann vonaði, eins og allir aðrir, að þegar hann legði gjöf sina ó altarið, fæm jólaklukkumar að hringja. Kliður fór um kirkjuna, þegar fólkið sá, að kóngurinn tók kórónuna af höfði sér og lagði hana á altarið. Kórónan glitraði og skein á altarinu. Nú, hvísluðu allir, nú verða jólaklukk- urnar að hringja. Þær verða að hljóma. Aldrei fyrr hafði slíkri gjöf verið fórnað. En það var aðeins gnauðið í nöpmm vindinum, sem söng í turninum, fólkið hristi höfuðið og sagði, að í rauninni hefði það aldrei trúað sögunni um jólaklukkurnar, sem áttu að hringja, þegar stærstu og bestu gjöfinni væri fórnað á altarið. Þetta var bara þjóðsaga, gamla fólkið hafði bara trúað á klukkurnar. Fólkið hafði nú fært fram gjafir sínar, og nú var útgöngusálmurinn leikinn. En allt í einu hætti organistinn að leika, og allra augu horfðu á gamla biskupinn, sem stóð í kórnum og lyfti hendínni, eins og til að biðja um hljóð. Það varð grafarþögn samstundis, ekkert hljóð heyrðist í hinni voldugu og miklu kirkju, enginn hreyfði sig, menn héldu niðri i sér andanum. Allir einbeittu sér að því sama — hlusta ! Og þarna heyrðu þau það — þýðan óm, óm, sem söng og sveif í loftinu — óminn frá jólaklukkun- um. Hljómurinn var svo langt í burtu, en þó svo nálægur, þetta var eins og fegursta tónlist, svo fagra hljóma hafði enginn mannleg vera numið fyrr — það var eins og englar lékju á hörpu, eins og fegursti englasöngur bærist nú til jarðar. Tónlistin kom að ofan, frá himnum. Mannfjöldinn sat steini lostinn eitt augnablik, ekkert hljóð heyrðist, og enginn bærði á sér. Svo stóðu allir samtímis á fætur, og allra augu beindust að altarinu til að sjá stærstu gjöfina, gjöfina, sem vakið hafði sofandi jólaklukkumar, gjöf- ina, sem hafði fengið klukkumar til að hljóma svo dýrðlega. Það sem þeir sáu, sem næstir stóðu, var lítill drengur — litli bróðir hans Pedro, sem hafði læðst fram, feiminn og hljóðlátur, og flýtt sér að leggja litlu silfurmyntina frá Pedro á altarið frammi fyrir Jesú- barninu. 49. TBL. VIKAN 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.