Vikan - 08.12.1977, Síða 81
eitthvað einhvers staðar. Og hæðin
virtist j'afn góður staður til að leita é
og hver annar.
Það var annað hlið eftir, þar til
hann næði hæðarbrúninni. I þetta
sinn var erfiðara að opna, og það
reyndi á hvem vöðva í líkama hans
við áreynsluna. Allt í einu opnaðist
það af þvilikum krafti, að minnstu
munaði, að Benni dytti beint á
andlitið. Hann hallaði hliðinu aftur
og hélt áfram, og nú vissi hann, að
trén voru rétt hjá, og þá, allt í einu,
var hann staddur hjá gripahúsinu.
Það var miklu minna en hann hafði
gert sér í hugarlund. Övandað,
gamalt gripahús með bárujámsþaki,
sem varbrotið öðmm megin. Það var
engin jata í því, en svolítið af heyi í
einu horninu.
Hann gekk innar og litaðist um.
Ekkert. Hann settist um stund í
heyið og hugsaði um, af hverju hann
væri svona vonsvikinn. Hann vissi
ekki, hvað hann hefði búist við að
finna, en hvað sem það var, þá var
það að minnsta kosti ekki uppi á
hæðarbrúninni.
Og þá heyrði hann í hestinum.
Hann gaf frá sér lágt hljóð og
vingjamlegt, og einhvers staðar
þama úti stóð hann vörð, það vissi
Benni. Sálmur, sem þau höfðu
sungið i skólanum, kom i huga hans:
0, Jesú bróðirbesti,
og barnavinur mes ti.
Æ breið þú blessunþína,
á barnæskuna mina.
Hann þurrkaði sér um augun og fór
aftur út. Hann greindi útlínur
hestsins, ekkilangtfrá, og hannsneri
við til að klifra aftur niður brattann
heim í bæinn sinn.
Hannvarhorfinn, horfinn, horfinn
í myrkrið.
Hann dró djúpt að sér andann,
opnaði munninn og kallaði titrandi
röddu: „Pabbi!” en orðin bómst
aftur til hans með vindinum, og hann
vissi, aðþað varbara hesturinn, sem
heyrði til hans. Hann yrði að bíða
rólegur til morguns. Hann sneri við,
og fór aftur inn í gripahúsið.
ALLTieinumundihann, aðkennar-
mn hafði sagt þeim, eftir að þau
sungu sálminn, að þau þyrftu aðeins
að biðja, og þeim yrði hjólpað af
■, bróðurnum besta”, semhafði fæðst
1 grípahúsi eins og þessu fyrir löngu,
löngu síðan. Benna fannst, að hann
hly ti að skilja sig, og hann krosslagði
htlu, köldu fingurna og með tárin í
augunum sagði hann hárri, skýrri, en
bó svolitið titrandi röddu, og gætti
Þess vel að vera kurteis: „Vertu nú
Róður, mig langar að fá mömmu...”
Hann beið, stóð ennþó við dymar.
Ekkert gerðist. Kannski tók það
akilaboðin einhvem tima að komast
leiðar sinnar. Það var samt betra
fyrir hann að bíða. Það var betra að
vera bara kyrr, svo hann missti ekki
Hesturinn
á hæðinni
af henni, þegar skilaboðin kæmust á
leiðarenda. Hannsettistniðurí heyið
og horfði á hestinn, sem stóð nú í
dyrunum, eins og hann væri að
vemda hann gegn hættum nætur-
innar.
Mamma hans stóð fyrir framan
hann, þegar hann vaknaði. Hún stóð
þama, íbláukápunnisinni, semhann
þekkti svo vel. Ljósa, siða hárið
hennar var vel greitt og gljáandi, og
pabbi hans var þama líka og hélt utan
um axlir hennar. Benni fann, aðhann
sat í rauða og hvíta mggustólnum,
en ekki í heyinu í fjárhúsinu.
ÞAÐ var tepottur á rauða borðinu
og svo var eitthvað, sem hreyfðist í
hægindastólnum hjá aminum. Það
var ekki litli grái kötturinn.
Benni settist upp. Honum var
heitt, og hann var hamingjusamur.
Hann leit aftur að hægindastólnum.
Mamma hans sagði: „Þetta er nýi
bróðir þinn Benni.” Hann svaraði
engu, svo hún bætti við: „Ég kom
með hann heim í jólagjöf.”
Hérvarheldurenginjata, hugsaði
hann með sér, og hann hristi höfuðið
þegjandi. Pabbi hans spurði vin-
Stórglæsileg heimilistæki
FRÁ
STÆRSTA
HEIMILISTÆKJAFRAMLEIÐANDA NOREGS
PA-460
Ný, glæsileg eldavél með sambyggð-
um
guf ugleypi.
Fullkomin klukka er getur stjórnað
allri vélinni
Glæsilegir takkar með Ijósmerkjum
Barnaöryggi á hurð.
Sterkt handfang.
Sjálfhreinsandi grillofn og opin
hitöld (element)
Rafdrifið grill
Auka bakarofn
Nýir glæsilegir litir: Karry-gulur,
Avocato-grænn, Inka-rauður, hvít-
ur það nýjasta, svartur.
Verð í lit með gufugleypi frá Kr.
184.600.-.
>
HJÁ OKKUR FÁIÐ ÞÉR ALLT í ELDHÚSIÐ: Eldavélar-
Gufugleypa — Kæliskápa — Uppþvottavélar
§<■----------------------------------------X
Heimili
Simi
EF
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995
Y\\pP’
,Uria
4,6 <*»*
Se"
VJ\’
49. TBL. VIKAN 81