Vikan - 08.12.1977, Qupperneq 109
sumrum. Þá mundi Jökullinn sœkja
aftur á í stað þess að hopa,
lifmögnunin streyma frá honum um
víða veröld með þeim áhrifum, að
ísraelsmenn og Arabar féllust í
faðma, sovéskir forkólfar hætta að
loka sína gáfuðustu menn inni á
geðveikrahælum, bandarískir fram-
ámenn taka upp heiðarleika í
viðskiptum og skattaframtali, og
arftaki Maós formanns opna Hlið
hins himneska friðar fyrir inn-
streymi þeirrar sælu lifmögnunar
frá orkuverinu mikla, fremst á
Snæfellsnesi, því sem dulspökustu
landar hans vegsömuðu fyrir mörg-
um öldum. Og hér innanlands — jú
œtli það skánaði ekki eitthvað, þótt
varla þurfi að gera ráð fyrir því, að
bitlingablækumar i skrifstofustofn-
unum lýstu yfir því, að þar hefðu
þær nákvæmlega ekkert að gera og
tækju undir sig stökk út í atvinnu-
lífið; þingmennimir kölluðu það
ræfildóm af sjólfum sér að vera að
treina sér þriggja mánaða starf í tólf
mánuði og skammta sér hæstu
laun fyrir, en framámenn flokkanna
hættu að leika sér í stólaslag, á
njeðan þjóðin rambaði á barmi
gjaldþrots og jafnvel ánauðar. Fyrr
niætti líka gagn gera, en altént ætti
eitthvað að lagast, svona mátt og
smátt.
Og undir Jökli, þar sem lífmögn-
unin er að sjálfsögðu alltaf ómeng-
Uðust og sterkust, mundi aftur á
tnóti allt taka þeim bata, sem um
tnunaði, bæði náttúran og mann-
fólkið. Spikfeit flyðran vaða upp í
landsteina, öll mið fyllast af fiski og
tnannfólkið af því líku fjöri, að innan
tnargra kynslóða ætti öll þjóðin
uppruna sinn undir Jökli, en
úrkynjaðir afkomendur af öðmm
Uppmna væm flúnir suður á Spán.
Og þá loks rættist það, sem inn-
vigðir meistarar og helgir menn
hafa löngum spáð — að íslenskir
beri ægishjálm yfir allar þjóðir, eins
og Snæfellsjökull „gnæfir yfir
hraun og hrjóstur....”
Frú Blake látin
Miðvikudaginn 30. nóv. barst sú
fregn, að sendiherrafrú Banda-
ríkjanna, Dolores Ðlake, vœrí
látin. Því miður var ekki unnt að
fella út viðtalið við frúna á bls.
22, þar sem öll prentun þessa
tölublaðs var að fullu frágengin,
nema örfáar útsíður. Vikan
vottar aðstandendum frúarinnar
samúð.
J
LÉTT
LIPUR
0G AFBURÐAR ÞÆGILEG
IConica
AUTOREFLEX
ÞÚ HITTIR BEINT í MARK
V
49. TBL. VIKAN 109
X k.