Vikan - 22.12.1977, Qupperneq 9
— Hún hélt að ég væri að taka
röntgenmyndir!
hi-Bluv J
— Hugsaðu þér, ef við hefðum
ekki bæði logið að tölvunni, þá
hefðum við aldrei hist!
— Verið alveg róleg, fröken
Fix! Ég held að hann sé bara að
verpa!
— Pabbi trúir ekki á líf eftir
giftingu.
V
í NÆSTU VIKU
ERNA FINNSDÖTTIR
FORSÆTISRÁÐHERRA-
FRtJ .
Við þekkjum nafn hennar og mynd, því hún hefur lengi
verið i sviðsljósinu, fyrstsem borgarstjórafrúognúsem
forsætisráðherrafrú. Vikan hefur lengi haft hug á því að
kynna lesendum sinum konuna á bak við nafnið, en
Erna Finnsdóttir er hlédræg kona og ákaflega litið fyrir
að láta á sér bera, svo það gekk seint að fá hana til að
veita okkur viðtal. En i næsta blaði heimsækir Vikan
Ernu Finnsdóttur forsætisráðherrafrú.
IRWIN SHAW
Framhaldsþættir af ýmsu tagi eru með vinsælla efni
sjónvarpsins, hér á íslandi sem annars staðar. Fyrir
nokkrum vikum áttu Húsbændur og hjú hug og hjörtu
allra, sem slíkt efni dá, en nú hafa þau eignast
harðsnúna keppinauta, nefnilega þá bræður, Tom og
Rudi Jordach og venslafólk þeirra i Gæfu og
gjörvileika. Þessir vinsælu þættir eru byggðir á
metsölubók Irwins Shaw, „Rich Man, Poor Man.”
Við segjum lítillega frá þessum metsöluhöfundi, sem er
fæddur og uppalinn í Brooklyn i New York og hefur
sannarlega ekki alltaf verið jafn vel stæður um ævina.
HLÝJA OG SNERTING
öll þörfnumst við hlýju og tengsla hvert við annað —
börnogfullorðnir, elskendur og vinir. Börn geta jafnvel
hreinlega veslast upp vegna skorts á ástúð og nánu
sambandi við fullorðið fólk. En á slíku sambandi vill oft
verða misbrestur. Hvers vegna erum við svo hrædd við
að gefa og taka á móti kærleika? Sálfræðingar hafa velt
þessum málum fyrir sér, og i næsta blaði birtist grein,
þar sem fjallað er um mikilvægi hlýju og snertingar og
náins sambands í mannlegum samskiptum.
JÖKLAFARAR SKEMMTA
SÉR
Þegar jöklarannsóknarmenn og áhangendur þeirra
koma saman, er alltaf mikið fjör, enda margir
stuðmenn í þeirra hópi. Ljósmyndari á vegum
Vikunnar brá sér á árshátíð Jöklarannsóknarfélagsins,
sem haldin var í Snorrabúð ekki alls fyrir löngu, og í
næsta blaði birtum við nokkrar myndir i þættinum
Mest um fólk frá þessum fagnaði, sem tókst. eins og
jafnan áður, með ágætum.
VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Anna Kristine Magnúsdóttir, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari:
Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn og auglýsingar i Síðumúla 12. Simar
35320—35323. Afgreiðsla og dreifing i Þverholti 11. Simi 36720. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 400.
Áskriftarverð kr. 1500 pr. mánuð, kr. 4500 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða kr. 8460 fyrir 26 tölubl.
hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar, mai, ágúst.
51.TBL. VIKAN 9-