Vikan


Vikan - 06.04.1978, Blaðsíða 38

Vikan - 06.04.1978, Blaðsíða 38
FRAMHALDSSAGA EFTIR MARY SERGEANT ÞAÐ SEM AÐUR ER KOMIÐ: Milli vonar Lucy og Tim Hunt hafa verift gift i ellefu ár. Þau giftust gegn vilja foreldra hennar, en Tim er list- málari, sem haföi ekki gengift of vel aft kom verkum sínum á framfœri. Þau búa afskekkt uppi i sveit, og einn dag, þegar Tim er fjarverandi i verslunarerindum, hittir Lucy undarlegan mann í skóginum. Þaft er þá bróftir Tims, en af hræöslu vift aft foreldrar Lucy myndu banna henni aö giftast sér, hafði Tim aldrei sagt neinum frá þessum einkabróöur sínum, sem hafði verift dæmdur i tiu ára fangelsi, fyrir morft. Lucy er skelfingu lostin, yfir þeirri hugsun að þurfa aft búa i sama húsi og morftingin, og þrátt fyrir aft hróftur Tims sem listmálari aukist með hverjum deginum, ákveður hún aft flytjast til móöur sinnur og hugsa máliö. Er hún snýr aftur hittir hún fyrir Bernard, einmana.... „Nei, ekki af Tim, heldur mér.” Við þessi orð hans hringdi viðvörunarbjalla í höfði hennar, án þess að hún gæti skýrt af hverju. En hún gat ekki losnað við þessa tilfinningu, að allt, sem Bernhard tók sér fyrir hendur, væri á einhvern hátt grunsamlegt. Það hafði byrjað með stolnu flöskunni. „Þvi skyldi hann vilja eiga viðtal viðþig?” . Hann horfði lengi á hana, áður en hann tók ákvörðun. „Ef til vill er þetta rétti tíminn til þess að við tölum svolítið alvarlega saman, Lucy. Að við verðum heiðarleg, hvort við annað. Þegar allt kemur til alls, getum við ekki dregið það endalaust.” „Við skulum gera það,” sagði hún rólega. „Sestu þá niður, þetta gæti tekið svolítið langan tíma.” Hann sagði íhugandi, um leið og hún settist: „Égþori að veðja, að að þú vonaðist alla leiðina heim, að ég væri farinn, að mér hefði verið sparkað út úr húsinu. Ég hef eins konar sjötta skilningarvit, skilurðu?” Hún svaraði og lét sem hún heyrði ekki háðið: „Að sjálfsögðu þætti mér gott að fá að heyra framtíðar- áætlanir þínar. Robin kemur til með að þurfa að fá herbergið sitt, þegar hann kemur heim um páskana.” „Svo að ég er vinsamlegast beðinn um að-hypja mig á brott, svo þú getir haldið áfram að lifa þessu reglusama, borgaralega lifi þínu. örugg. Það fyndist þér himnariki, er það ekki satt? Engir glæpamenn, takk, sem gætu opnað augu Tims fyrir veruleikanum.” Hún varð að beita öllum sínum kröftum til þess að halda aftur af sér, og sagði kuldalega: „Var ekki hugmyndin sú, að við ætluðum að tala um mig ogþig?” „Satt er það. Ég ætla að byrja á þvi að viðurkenna, að mér er fullkomlega ljóst að þin stærsta ósk er að losna við mig. Að þú hafir snúið hingað aftur með úrslitakosti fyrir Tim: Annaðhvort fer ég eða Bernard.” „Það er rétthjáþér. „Ef ég nú lit á þá staðreynd, að það vill svo til, að bróðir minn er giftur tilgerðarlegri, þröngsýnni og vanabundinni konu, sem er svo frá sér af afbrýðisemi, að hún vakir yfir hverju einasta spori eiginmanns síns og sonar, eins og ljónynja, verð ég að fara að hugsa um framtíðina. Það er það viturlegasta, sem ég get gert, ekki satt?” Hún fann, hvernig vonarneistinn kviknaði hjá henni, en sagði samt ekki orð. Hún vildi gera allt, sem i hennar valdi stóð, jafnvel viður- kenna hleypidóma sína gagnvart honum, einungis ef hann vildi fara. „Og hér er það sem Jack Bridges kemur til sögunnar. Þú spurðir, hvað hann gerði. Hann er blaða- maður. Og svo að ég sé nákvæmur, nokkurs konar nafnlaus blaða- maður. Hann ferðast um með segul- bandstæki og talar við fólk, sem getur sagt frá, en ekki skrifað, fólk, sem hefur frá einhverju að segja, sem aðrir eru tilbúnir til að kaupa og lesa. Þá fer hann á skrifstofu sína og umskrifar viðtölin, klippir burt það, sem kemur málinu ekki við, og úr þessu verður síðan hnitmiðuð frásögn, sem lesendur sunnudags- blaðanna gleypa í sig. Nafnlausi blaðamaðurinn, sem aldrei verður frægur, aðeins ríkur. Skilur þú þetta, sem ég hef verið að segja?” „Ég veit alveg fullkomlega, hvernig þessir blaðamenn vinna. En ég skil ekki, hvað einn þeirra var að gera hér. Þú getur aldrei fengið Tim til þess að taka þátt í svona vitleysu. Ekki þó þú byðir honum milljón fyrir. Hann er svo hlédrægur, að honum líður illa, þegar hann sér nafn sitt á prenti. Þú hlýtur að vita það. Hann myndi aldrei samþykkja að tala inn á segul- band.” „Ég er ekki að tala um Tim,” hreytti hann gremjulega út úr sér. „Tim hefur ekki frá neinu að segja, sem fólk myndi borga fyrir að lesa. Enþað hefég.” Henni fannst sjálfsánægja hans hlægileg. „Ég leyfi mér nú að efa það.” „Það er af því, að þú ert heims lítil húsmóðir,” sagði hann með ofsa, „sem ert svo upptekin af þínum eigin ómerkilegu vandamálum, að þú heldur, að það sé ekki neitt annað til. Það vill svo til, að fangelsismál eru fréttaefni. Það sem gerist raunverulega á bak við rimlana er fréttaefni. Frá þessu get ég sagt, og þetta er það eina, sem ég hef úr að spila. Svo að ég hef hugsað mér að nota mér það.” Rödd hans fékk á sig eftirvæntingarblæ. „Dæmdur maður segir frá. Þetta gæti orðið sæmilegasta fyrirsögn.” Hún stamaði: „Ertu að segja, að þú ætlir... ” Hún leiðrétti sjálfa sig samstundis. „Þú gætir það ekki. Tim þyldi það ekki. Núna, einmitt þegar hann er á uppleið, að það komi fram í blaðagrein, að bróðir hans sé dæmdur morðingi.” í stað þess að segja það, sem henni var efst í huga, sagði hún: „Ég, sem hélt, að þér þætti svo vænt um hann, þú varst hinn trausti, eldri bróðir hans. Þið ætluðuð að þola allt saman, súrt og sætt, það sagði Tim, að þið hefðuð gert.” 38 VIKAN 14. TBL. 14. TBL. VIKAN 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.