Vikan - 06.04.1978, Blaðsíða 15
Pósturinn treystir sér ekki til
að ráðleggja ykkur einhverja
sérstaka verju, en vill hins
vegar benda þér á að snúa þér
strax til kvensjúkdómalæknis,
sem getur frætt þig um þessa
hluti og ráðlagt þér eitthvað í
sambandi við þá. Einnig er
tilvalið að leita fræðslu og
aðstoðar hjá Kynfræðsludeild
Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur, sem er opin kl. 1-18.30
á mánudögum, og bein lína
þangað er 22406. Læknar eru
bundnir þagnarheiti og mega
því ekki segja foreldrum né
öðrum frá því, sem fer milli
þeirra og sjúklinga. Nauts-
stelpa og bogmannsstrákur
eiga ekki vel saman, hann
hatar allar viðjar. Skriftin
bendir til þess, að þú sért
svolítið óörugg með sjálfa þig,
og þú virðist lifa í stöðugum
ótta við það, sem framtíðin
kann að bera í skauti sér.
Bréf
varðandi
heimilis-
föng
Sæl (l) elsku Pósturl
Fg hef aldrei skrifað þér áður
og vona, að,, Helga' ’ sé södd og
hafi ekki lyst áþessu bréfi. Það er
oft spurt um heimilisföng hjá
frœgu fólki, en þú hefur aldrei
getað gefið upp nein heim-
ilisföng. En nú ætla ég að bæta
úr því, það er að segja, ef
,, Helga ’' er ekki svöng.
Nick Nolte, c/o I.C.M. 8899
Beverley Blud, Los Angeles.
Abba — Fan Club, Fack 100 41,
Stocholm 26, Sverige.
Júrgen Drew, Luhenng 4f, 2000
Hamburg 92 Deutschland.
RodStewart, Postfach 5754,
2000 Hamburg 78, Deutsch-
land.
Hvaða merki á best við
bogmannsstelpu? En vogar-
stelpu ? Jæja, svo þetta vanalega:
Hvað heldur þú, að ég sé gömul,
og hvað lestu úr skriftinni? I
guðanna bænum ekki telja staf-
setningarvillurnar, því ég er
alveg hryllilega léleg í staf-
setningu. Og er ekkt hægt að
hafa Abba í Poppfræðiriti
Vikunnar? Bæ, bæ, ég þarf að.
fara út íbúð að kaupa Vikuna.
Dísa íDalakofanum.
Þú veist greinilega meira en
ég, Dísa mín, um heimilisföng
þekkts fólks, og þakka ég þér
fyrir upplýsingarnar, sem
eflaust eiga eftir að koma sér
vel fyrir einhverja. Bogmanns
— eða krabbastrákur eiga best
við bogmannsstelpu, en einnig
getur samband hennar við
hrútsstrák orðið mjög gott.
Hrútur, Ijón eða önnur vog
eiga best við vogarstelpuna,
en þó er það sérstaklega
hrútsstrákurinn. Þú ert 15 ára,
skriftin ber vott um, að þú
vitir heilmikið um heimilisföng
annarra, en auk þess, að þú
sért glaðlynd að eðlisfari.
Abba var í Poppfræðiriti
Vikunnar í 51. tbl. '76, svo
ég efast um, að þau komi
þarafturá næstunni. Auk
þess var löng grein um þau í
32. tbl. '77.
Pósturinn
veit
ekki allt!
KæriPóstur!
(Þakka gott blað). Þú þarft
ekki að birta þetta bréf, en
systir mín skrifaði þér einu
sinni og var í vandræðum, því
að hún var ófrísk og trúði mér
einni fyrir því (við erum
samrýmdar systur). Jæja, einn
daginn kom ég að henni inni t
herbergi vælandi yfir Vikunni.
Fékk hún þá þetta frekjulega
svar frá ykkur um, áð hún væri
ekkert ófrísk (eins og þið vitið
það eitthvað). Þetta er nú
gleymt og grafið, en nú á ég
lítinn frænda.
Bæ, bæ,
litla systirDísu!
Ef ég á að vera alveg hrein-
skilinn, þá finnst mér þetta bréf
þitt alveg hreint frábært,og gott
hjá þér að reka mistök Póstsins
ofan í hann aftur! En auðvitað
gat Pósturinn ekki vitað, hvort
systir þín væri ófrísk eður ei.... I
Skilaðu nú kærri kveðju til
systur þinnar, óskaðu henni til
hamingju með soninn, og
biddu hana fyrirgefningar á
frekjunni, ég vona hún erfi
þetta ekki við mig!
Winther
vinsælustu og bestu þríhjólin
Varahlutaþjónusta.
Spítalastíg 8, simi 14661, pósthólf 671.
777fermingargjafa
Svissnesk úr öll þekktustu merkin.
Gull og siifurskartgripir,
skartgripaskrín, mansettuhnappar,
silfurboröklukkur,
bókahnífar og margtfleira.
— allt vandaðar vörur. —
ÚR OG SKARTGRIPIR:
KORNELÍUS
JONSSON
SKÓLAVORÐUSTÍG 8
BANKASTRÆTI6
^-»18588*18600