Vikan - 06.04.1978, Blaðsíða 22
Með skotsár á hálsi
Kæri draumráðningakraftur,
Mig dreymdi draum. Það er mér
lífsspunmál að fá hann ráðinn (í
bókstaflegri merkingu) og það hið
snarasta, og þótti mér öruggast að snúa
mér til Vikunnar. 1 guðanna bænum
viltu ráða hann fyrir mig eftir þinni
bestu getu, hvað svo sem út úr því
kemur. Til skýringar þykir mér rétt að
taka fram, að ég hafði verið með strák í
4 ár, er hann skyndilega ákvað, að við
skyldum skilja. Þetta er mér mikið
áfall, en það fór ekki fram í illu og
raunar ekki góðu heldur. Hér er svo
draumurinn. Við skulum kalla
umræddan pilt X. Fyrri hluti
draumsins er ekki mjög glöggur, og X.
kemur þar ekki við sögu. Ófriður var
milli tveggja flokka, og var ég í öðrum
þeirra. Mér fannst við hafa legið í
felum eða skjóli. Var ég send til þess
að njósna eða kanna eitthvað. Eg
labbaði af stað yfir víðáttumikið gras-
lendi (líkast tsl. mólendi á haustin,
þ.e. fölleit strá og þ.h.). Er ég hafði
labbað nokkum spöl (nokkur hundruð
metra) leit ég við (heyrði hljóð), og sá
ég flokkinn minn koma hlaupandi úr
fylgsninu, mjög dreifðan, ca. 10-15
manns. Eg kallaði og spurði, hvað væri
um að vera, og var mér tjáð að
óvinaflokkurinn hefðigert fyrirsát eða
árás, og voru allir að flýja, og voru
hnífar notaðir. Eg sá einhvem
stunginn. Eg hef líklegast komist
undan. Seinni hluti draumsins fór fram
í sumarbústað eða kofa, ekki í borg.
Ekki veit ég glöggt, hvað ég var að gera
þar, ég var einhvers konar fangi.
Maður nokkur vildi fá mig til samfara.
Liklega hefur hann verið foringi hins
flokksins (þó ekki beint samband við
fyrri hluta draumsins ), en allavega var
ég á valdi hans. Annað fólk var þar, en
ekki fann ég glöggt fyrir þvt. Hann var
með dökkt hár, frekar sítt og þunnt,
og mér fannst hann vera indiáni. Hann
vakti engar tilfinningar með mér, en
var ekki ógeðfelldur. Hann tók mig
inn í herbergi, og þar höfðum við sam-
farir. Eg fór ekki beint nauðug með
honum. Bæði held ég, að mér haft
fundist skynsamlegast að sýna ekki
mótþróa, og einnig fannst mér það
ekki neitt svo andstyggilegt. Einnig
fannst mér, að annar maður hefði verið
í herberginu lika. Nú kemurX. fyrst
við sögu. Er við komum út úr her-
berginu, lá hann liggjandi i sófa.
Sófinn var rauður. Litinn á sófanum sá
ég þó ekki mjög sterkt, en skynjaði
Mig
drcymdi
hann rauðan. Við vorum stödd i sama
húsi og fyrr, en þó fannst mér þetta
vera heima i stofunni okkar fyrr-
verandi, og sófinn, sem hann lá Í, var
sófinn okkar, sem þar er, en hann er
rauður. Hann lá á maganum og hafði
verið skotinn, að mig minnir frekar i
hálsinn en hnakkann, þ.e. hann varmeð
rauðan hring, eins og ég get ímyndað
mér að komi eftir byssuskot (blóð?).
Hringurinn var frekar Ijósrauður og
e.t.v. eitthvað dökkt i honum og 50
kr. mynt. Hann var mjög snyrtilegur,
og hvorki lak blóð úr honum, né var
blóð á likinu.
Eg tek það jram, að ég sá hann ekki
skotinn, heldur skynjaði (vissi), að
hann hefði verið skotinn. Einnig var ég
viss um, að hann væri dáinn. Ekki
hafði ég neinn pata af því, að þama
væribyssa, néyfirleitt að neinn ófriður
rikti þama. Ekki skipti fólk sér neitt af
þessu (ég fann raunar ekki beint fyrir
fólki). Viðbrögð min voru þau, að ég
öskraði hátt og mikið, fómaði
höndum, sneri mér frá likinu (þó ekki
með ásetningi) og féll fram á fætur
mér. Ég held ég geti ekki lýst tilfinn-
ingum minum eða viðbrögðum betur
en það, að þetta var mér mjög mikill
harmur. Nú fann ég glöggt fyrir fólki,
og höfðu allir mjög mikla meðaumkun
með mér, og allir voru hljóðir. Mér
fannst fólkið (karlmenn) mynda hring
um mig. Raunar minnist ég ekki, að
neitt af því fólki, sem ég fann fyrir í
draumnum, væri kvenkyns. Við þetta
vaknaði ég og leið mjög illa, eins og
eitthvað óhugnanlegt hefði komið fyrir.
Vinsamlegast ráðið þennan draum fyrir
mig, og eins fljótt og mögulegt er.
Með fyrirfram kærri þökk.
Eolda.
Táknin í þessum draumi eru mjög
mismunandi, en flest þeirra eru þér þó
til gæfu. Þó áttu sennilega við veikindi.
að stríða á næstunni en þau munu
aðeins veröa smávægileg. Þú lendir í
einhverju ævintýri, en einhver heldur
verndarhendi yfir þér, og þú munt ekki
bíða neinn skaða. Hætt er við, að þú
lendir í alvarlegu rifrildi, sem hefur
mikil áhrif á þig. Kofinn þendir til, að
þú sért stolt og látir ekki auðveldlega
auömýkjast, og muntu því sennilega
fara meö sigur af hólmi úr þessu rifrildi.
Góður árangur í öllu, sem þú tekur þér
fyrir hendur,
Góður árangur bíður þin í öllu, sem
þú tekur þér fyrir hendur, og þú færð
óvæntar, góðar fréttir. Einnig muntu fá
fréttir af þarnsfæöingu, en ekki er víst,
að þær komi til með að gleðja þig neitt
sérstaklega. Þín bíður gott og farsælt
hjónaband, og mjög mikil hamingja
blasir viö þér. — -þú ættir að hlusta á
ráðleggingar góðra vina, þar sem þú
virðist lifa í þlekkingarheimi öryggis. Þú
munt auögast fjárhagslega, en ættir að
reyna að hafa gott sjálfsvald að sinni.
Með hatt ofan á
maganum
Kæri draumráðandi
Mig draymdi, að ég væri ófrísk, og
lægi sofandi uppi í hjónarúmi. (Eg var
komin 9 mánuði á leið og mjög feit.).
Eg hafði ýtt sænginni til hliðar, því
mér var svo heitt, og lá á bakinu. Þá sá
ég, hvar karlmannshattur kom
fljúgandi allt í einu, og lenti beint
ofan á kúlunni. Hann var frekar stór,
gráblár með borða, og ég hreyfði hann
ekkert, bara horfði á hann.
Fyrir hverju er þetta? Meðþökk fyrir
birtinguna,
Ástrós.
Þessi draumur er fyrir efnahagslegu
öryggi. Einhver, sem kallar sig vin
þinn, kemur þér í einhver smávægileg
vandræöi, en þaö verður ekkert
alvarlegt, ef þú hefur taumhald á skapi
þínu og reynir að læra af reynslunni.
Einhvern tíma á næstunni munt þú
heyra frá manneskju, sem þú hefur
ekki hitt lengi, mjög liklega er hún
erlendis. Þetta verða góðarfréttir.