Vikan


Vikan - 06.04.1978, Blaðsíða 13

Vikan - 06.04.1978, Blaðsíða 13
miðað við þann áhuga, sem almennt er ríkjandi, að við hreinlega gáfumst upp á því. Það eru kannski kílómetra langar biðraðir við lyfturnar, og maður þarf að bíða langtímum saman til að fá tveggja mínútna rennsli niður aftur. Það mátti ekki tæpara standa — Getið þið ekki sagt frá einhverju eftirminnilegu í lokin? — Valdimar: Ég lenti í lifsháska síðara sumarið mitt sem sildarsjómaður þá 21 árs að aldri. Það var að draga að lokum sildarvertíðar, komið undir haust, að við á Leifi Eiríkssyni vorum staddir um 100 mílur NNA af Langa- nesi. Við höfðum aldréi þessu vant náð góðu kasti, þegar myrkrið var að skella á og var að bræla upp. Meðan við vorum að háfa sildina inn, hvessti mjög skyndilega upp, báturinn fór að leggjast undan þunga nótarinnar á siðunni, og um leið rann síldin til út í siðu í lestinni. Okkur varð eiginlega ekki ljóst, hve mikil hætta var á ferðum fyrr en of seint. Skyndilega reið sjór inn á þilfar. Þá vorum við að myndast við að skeranótinafrá. Ég var staddur í stíu fremst á þilfari og komst ekki þaðan, þá vissi ég ekki fyrr en ég var kominn i sjóinn og ég sá bátinn Þau Fanný og Valdimar hafa saumastofu i kjallaranum heima hjá sér, og þar starfar Valgerður Ingimundardóttir. hálfpartinn hvolflast yfir mig. Ég hefði aldrei trúað þvi að óreyndu, hversu fljótt þetta getur gerst. Félagar mínir komust allir með einum eða öðrum hætti í gúmmí- björgunarbát eða litla jullu, nema tveir og svo ég. Annar drukknaði. Hinn komst á kjöl og gat stungið sér af honum til sunds. Þarna hélt ég satt að segja, að upp væri runnin mín síðasta stund. Bæði var ég í fullum galla með klofhá stígvél, algjört myrkur skollið á, sjórinn nístingskaldur og komið hávaðarok. Ég var við það að gefast upp a.m. k. einu sinni, en að lokum komst ég úr stígvélunum, fann tóman mjólkur- brúsa fljóta rétt hjá og hélt mér á floti á honum. Það varð okkur til lífs, að báturinn Jón Finnsson, sem var staddur rétt hjá okkur, sá ljósin hjá okkur slokkna, þegar báturinn sökk. Hann, ásamt með öðrum báti, kom strax á vettvang og fann okkur fljótt, þrátt fyrir myrkrið og óveðrið. Með mig mátti ekki mikið tæpara standa. Ég var um 15-20 mínútur í sjónum. Ég hef seinna lesið það, að í slíkum sjávar- kulda, sem þarna var, þoli menn ekki mikið lengri tíma. Pelií loðhúfunni — En hvað með þig Fanný? Það er nú erfitt að koma með lifsreynslusögu eftir þessa hjá kallinum mínum. Ég gæti kannski sagt skemmtilega sögu af heimavígstöðvun- um í staðinn, eða söguna um það, hvernig við eignuðumst heimilis- köttinn Pela. Þannig var, að okkur leist svo vel á unga læðu, sem við fréttum, að ætti senn að fara til himnaríkis, að við ákváðum að leyfa henni frekar að koma til okkar a.mk. fyrst um sinn. Hún launaði okkur þetta með því að eignast einn kettling nokkru síðar. Fjórum dögum eftir fæðinguna fór kisa út í fyrsta skiptið frá kettlingnum, lenti fyrir bil og dó. Það varð þvi úr, að ég varð að leika móðurhlutverkið. Hann bjó inni i loðhúfu Valdimars fyrst um sinn, drakk úr pela og saug á mér höndina þess á milli. Við þetta festist við hann nafnið Peli, en hann er nú orðinn myndarlegur fress, verður þriggja ára 10. apríl, og hver móðir væri stolt af honum! Og hann hefur sinn sess á heimilinu. akm 14. TBL. VIKAN 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.