Vikan - 06.04.1978, Blaðsíða 6
LISTASAGA FJÖLVA
Fjallar bæði um málaralist,
höggmyndalist, byggingarlist og
ýmiskonar skartgripa- og smámunagerð.
I bindi
Z bindi
3.bindi
Listasaga Fjölva er fyrsta verk sinnar
tegundar á islensku. Leysir úr brýnni þörf.
1 bindi fjallar um listþróun frá forsögutima
til þjóöflutninganna miklu. Spannar þvi
allar fornþjóöir: Mesópótamia. Egyptaland.
Krít. Mýkena, Grikkland. Etrúrar.
Rómaveldi. Rekur listþróun Frumkirkju og
Germanskra þjóöa. Fjallar auk þess um list
Kina, Indlands og Indíánalist í Ameríku.
Fjallar um „myrkar" Miðaldir, sem voru
ekki eins myrkar og margir halda Kirkjan
útbreiddi kristindóm noröur um áltu. Hún
hlúði að listum. einkennislist hennar var
skærlitar flögumyndir (mósík) og glersteind
(vitrail). Aö meginhluta fjallar bókin þó meö
ógrynnum litmynda um hinar stóru stefnur,
Rómanska og Gotneska stíl, ferskt upphaf
Endurreisnarinnar á Italíu og stórmeistara
hennar Leónardó, Rafael og Mikelangeló
fjársjódur
hugar og hundu
Listasaga Fjölva í þremur bindum.
í fágætlega völdum myndum og
ytirgripsmiklum texta er listasaga
heimsins rakin fyrir lesandann.
Allt frá tíma Neanderdalsmannsins
80 — 40 þús. árum f.Kr. um glæsilist
Fornegypta og Hellena og
fagurfræði Endurreisnar allar
götur til okkar daga.
Síöasta og stærsta bindi listasógunnar
fjallar um þá stórþrotnu þróun, sem oröið
hefur i öllum listum frá Endurreisninni og
fram á okkar daga Hún hefst á útskýringu
Hlaöstils (Barokk) og Svifstíls (Rókokkó) og
rekur þráöinn áfram upp í Þjóðfélagsleg
átök Nýgnæfu (Neó-klassik), Draumsæju
(Rómantik) og Raunsæju (Realisma) og
stigþróun Stælistíls (Natúralisma), Blæstíls
(Impressjónisma) og Tjástils
(Expressjónisma), upp í þúsundgrósku
nútímans meö Pikassó. Salvador Dali og
allt upp í pqpp-list.
6 VIKAN 14. TBL.