Vikan - 02.11.1978, Blaðsíða 19
honum tímunum saman, eins og
hún væri gróin við hann, og
leikur aðeins þetta eina lag.”
„Ég stóð sjálfan mig meira að
segja að því að vera að raula það
á skrifstofunni í dag,” sagði
faðir hennar. „Stúlkan, sem var
að hraðrita bréfin eftir mér, gaf
mér skringilegt augnaráð, það
get ég sagt þér.”
„Ég var að raula það i biðröð-
inni á pósthúsinu i dag, og af-
greiðslumaðurinn tók undir með
mér,” viðurkenndi móðir henn-
ar. Síðan brosti hún: „Þú verður
þó að viðurkenna, að hún leikur
það nokkuð vel.”
„Það er engin furða, þegar
hún æfir sig svona mikið,” sagði
faðir hennar. „Eitt er víst; að
daginn, sem hún hættir að leika
þetta, þá vitum við, að hún
hefur jafnað sig.”
Og einn daginn gerðist það.
Hún kom heim úr verslunarskól-
anum, og í stað þess að ganga
beint að píanóinu, gekk hún inn
í eldhúsið og, án þess að móðir
hennar gæti séð nokkra ástæðu
til, þá faðmaði hún hana og
sagðist vera svöng.
Hún sat á eldhúsborðinu,
drakk mjólk, dinglaði löngum
fótleggjunum og talaði, eins og
hún væri nýbúin að uppgötva
samtalsíþróttina. Hún talaði um
alla heima og geima og kom
hálfruglaðri móður sinni til að
hlæja um leið og hún bað hljóð-
láta þakkarbæn.
En þar sem hún var hyggin
móðir, þá sagði hún ekkert, alls
ekkert, þangað til hún var orðin
ein með manni sínum um kvöld-
ið.
„Það er afstaðið,” sagði hún.
„Guði sé lof,” sagði hann, og
þar sem hann var ekki guðlast-
ari, þá meinti hann það, sem
hann sagði. „Hvert fór hún í
kvöld?”
„í samkvæmi,” sagði móðir
hennar. „Ein af stúlkunum í
bekknum hennar heldur það. Ég
vildi, að þú hefðir komið heim
fyrr til þess að geta séð hana
fara.”
Hún lagði frá sér prjónadótið
og skein auðsjáanlega af stolti.
„Það er eins og hún hafi lifnað
við aftur.” Hún missti niður
lykkju og andvarpaði ekki einu
sinni.
„Hún var svo falleg. Hún var
i bláa kjólnum, sem hún vildi
ekki vera i, þegar hún fór út með
HONUM, af því að hún sagði,
að HONUM líkaði ekki við
hann. „Ekki vaka eftir mér,
sagði hún”, og ég lofaði henni
því, að við myndum ekki gera
það.”
Hún tók saman prjónana sína
og ýtti þeim á bak við púða.
„Ættum við að fá okkur í glas?
Mér finnst, að við ættum að
halda upp á þetta.”
Svo ánægð voru þau, að eitt
glas varð að þremur, og síðan
fóru þau í rúmið, svolítið slag-
andi og sofnuðu nærri þvi strax.
Það hlýtur að hafa verið ná-
lægt miðnætti, að þau voru vak-
in af djúpum svefni.
Niðri, lágt stillt, en nógu hátt
til þess að þau gátu heyrt það,
var einhver að spila á píanóið.
Þau settust upp og hlustuðu,
og þau þekktu lagið undir eins.
Hið fagra titillag kvikmyndar-
innar „Zhivago læknir”. Það var
leikið af óöryggi, eins og fing-
urnir færu hikandi yfir nóturn-
ar, en samt sem áður af auð-
heyrðum innblæstri.
„Ég skal fara niður,” sagði
faðirinn, en móðirin stöðvaði
hann.
„Nei, ég skal fara. Þú segir
örugglega eitthvað rangt,” sagði
hún og teygði sig í náttsloppinn.
Og þarna sat hin fagra dóttir
þeirra við píanóið, með alltof
kunnuglegan svip á andlitinu.
Hún valdi tónana með svo mik-
illi nákvæmni, að í fyrstu sá hún
ekki móður sína, þar sem hún
stóð hikandi í dyrunum.
Síðan brosti hún, og augu
hennar ljómuðu af spenningi.
„Ó, mamma,” sagði hún,
„þetta var dásamlegt boð. Og ég
hitti strák þarna. Þeir voru að
spila þetta lag, þegar hann bauð
mér upp.” Hún sló nokkrar
nótur i viðbót, en siðan lokaði
hún pianóinu treglega. „Ég veit,
að það hljómar kjánalega, þegar
þú ert nýbúin að hitta einhvern,
en við ákváðum bæði, að þetta
ætti að vera lagið okkar. Það er
eins og það segi, ó, bara allt. Ég
veit, að þú getur ómögulega
skilið það, en það gerir það
samt.”
Siðan slökkti hún á borðlamp-
anum, skildi kápuna eftir, þar
sem hún hafði látið hana á gólf-
ið, og gekk i átt til dyranna. Hún
gekk upp dreymandi, eins og
hún væri steinsofnuð nú þegar.
„Góða nótt, mamma,” sagði
hún, eins og hún væri að tala úr
mikilli fjarlægð.
ENDIR.
GKRA 18
Nr. 30.
Verðkr. 2.170.-
CAMBRA
International Ltd
AHt til hljómflutnings fyrir:
HEIMILID - BÍLÍNN
OGDISKÓTEKIÐ
SKODID í GLUGGANA.
SENDUM í PÓSTKRÖFU.
HEILDSALA - SMÁSALA
D i.
Kaaio
ÁRMÚLA 38 (Selmúla megin) - 105 REYKJAVIK
SÍMAR: 31133 83177 PÓSTHÓLF1366
Nr. 54
Þetta statíf tekur 30 kass-
ettur. Það fer vel i hillu og
má einnig festa á vegg.
4 litir. — Verð kr. 4.915.-
TILVALID TIL GJAFA
44. tbl. Vikan 19