Vikan


Vikan - 02.11.1978, Blaðsíða 63

Vikan - 02.11.1978, Blaðsíða 63
Verð ég að vera „sportidíót"? Kœri Póstur! Pabbi minn var mikill íþróttamaður þegar hann var ungur, duglegur á skíðum, spilaði fótbolta og fylgdist með öllu. Það gerir hann ennþá og ætlast til þess, að ég sé alveg eins. Ég hef reynt að sýna áhuga, fara á völlinn og fara á skíði, en mér finnst þetta ekkert sérlega gaman, og ég nœ heldur litlum árangri. Ég vil miklu heldur lesa og hlusta á tónlist, er að læra á píanó, og hef mjög gaman af því, en pabbi virðist ekkert voða hrifinn og reynir eins og hann getur að drífa mig út, í stað þess að sitja við œfingar. Verð ég endilega að vera „sportidíót" bara af því ég er strákur og af því pabbi er það? Með bestu kveðju og fyrirfram þökk fyrir svarið. Tinni Nei, Tinni minn, til allrar hamingju ertu hreint ekkert skyldugur til að vera „sportidíót”, og ég er viss um, að þetta er bara svolítill misskilningur milli ykkar feðganna. Pabbi þinn veit, að útivist og hreyfing er öllum holl, það hefur enginn gott af því að dunda sér eingöngu við bókalestur og píanóleik, hvort sem um strák eða stelpu er að ræða. Þið hljótið að geta komist að samkomulagi um skynsamlega skiptingu tímans á milli áhugamála, og vertu viss um, að pabba þínum þykir jafn vænt um þig, þótt þú hættir að reyna að spila þig „sportidíót” í hans augum. Negldu þig bara ekki algjörlega við bókina eða píanóstólinn! Hefur áhuga á húsgagnasmíði Kæri Póstur. Ég hef aldrei skrifað þér áður, en vona að þú getir leyst úr vanda mínum. Ég hef mikinn áhuga á, að fara í Iðnskólann, í tréiðnaðar- deild, og læra húsgagnasmíði. Nú langar mig að biðja þig um að fræða mig á öllu sem þú veist í sambandi við það nám? Hver inntökuskilyrðin eru og hvað námið tekur langan tíma. Hjálpar skólinn manni að komast á samning? Ég held að ég láti þetta nægja um Iðnskólann, en hver er happatata og happalitur fyrir þá sem fæddir eru 23. janúar, og hvað lest þú úr skriftinni? Með þökkfyrir birtinguna A. Til þess að komast i iðnskóla þarf viðkomandi að hafa lokið grunnskóla-, miðskóla- eða gagnfræðaprófi og hafa hlotið lágmarkseinkunnina 4.0 í samræmdum greinum. Með grunnskólapróf þarf viðkomandi að hafa hlotið einkunnina A, B, eða C, nema i tveimur greinum, þar sem leyfilegt er að hafa einkunnina D. 1. skólaárið í tréiðnaðardeild- inni er nokkurs konar undir- búningsár, og er námstíminn frá 1. sept. til 18. maí, þegar prófum lýkur. Aðra vikuna er kennslan bókleg, en hina verkleg. Þegar nemandi hefur lokið námi með tilskildum árangri, getur hann valið um, hvort hann fer á samning, hjá meistara, (það verður hann að sjá um sjálfur) eða hvort hann fer í framhalds- deildina, sem er einn vetur. Ef hann velur þann kostinn, fer hann í verkþjálfun eftir það út í atvinnulífið, og sér skólinn alveg um þá hlið námsins. Þegar því er lokið er mjög stutt námskeið í skólanum, sem er undirbún- ingur undir sveinsprófið. Happatölur þess sem fæddur er 23. janúar eru 5 og 8, og happalitur grænn. NÓVEMBER LANDSINS TÝNDA Var þetta hulduland nokkru sinni til? Hér er sagt frá kenningu, sem setur fram ævintýralega lausn á þessari aldagömlu gátu. ÞEGAR GUÐ SKAPAÐI MÆÐURNAR Eitt er það mestarverk guðs, sem seint verður fulllofað. HVERNIG GENGUR KYN- BYLTINGIN? Siöasta áratuginn hefur margt verið rætt og ritaö um kynfrelsið. En hvernig gengur eiginlega með byltinguna? ^Úrvalsljód SPÁÐ FRAM TIL ÁRAMÓTA Spámenn telja margt merkilegt eiga eftir að gerast það sem eftir er ársins. Hér rekjum við nokkuð af þvi Bótin Stundum er sagt, að æskuást sé ekkert sem endist og varir. Kannski er það rétt — kannski er það alrangt. Að minnsta kosti gat höfundur frásagnarinnar, sem hér fer á eftir, aldrei gleymt litlu stúlk- unni, sem hann kynntist stutta hrið, þegar hann var sjálfur á ungum aldri. BOKIBLAÐFORMI 44- tbl. Vlkan 63
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.