Vikan - 02.11.1978, Blaðsíða 42
húsgögnum. Lamparnir verða
að vera í samræmi og verða að
skapa hlýlegan blæ.
Lesljós — vinnuljós
Þegar lesljós og önnur vinnu-
ljós eru valin er aðallega hugsað
um gagnið. Það er ekki nóg með
að þeir sem vinna við slæma
birtu þreytist fljótt heldur
skemma þeir líka sjónina á því.
Þörfin fyrir ljós vex eftir því sem
menn verða eldri. Þannig þarf
10 ára barn ekki nema þriðja
hluta af þvi ljósi sem fertugur
maður þarf.
Vinnuljós þurfa að vera
þannig að þau lýsi upp ákveðna
punkta og geri það vel, án þess
þó að blinda þann sem notar
ljósið. Ljósið á að falla ofan frá
og á ská niður á flötinn sem rýnt
er í. Til þess að ljósið falli ekki á
andlitið er best að hafa ógagn-
sæjan skerm þannig að hann
kasti ljósinu niður. En gætið
þess að hafa ekki of sterkar
perur því þá verður birtan of
mikil auk þess sem ljósið
skemmist og hætt. er við
íkveikju. Á langflestum lömpum
stendur hversu sterkar perur
þeir þola. Farið eftir því.
Kostur við leslampa er að
auðvelt sé að flytja hann. Gætið
þess ætíð að setja ekki ljósið
þannig að birta þess endurkastist
af ljósum flötum í andlit ykkar.
Á hverju heimili ætti að vera
vinnuhorn, þar sem menn geta
setið hver við sitt verk í góðri
birtu. Ef ekki er hægt að leggja
stofuna undir þannig starfsemi
má nota svefnherbergin eða
jafnvel eldhúsið. Komið vinnu-
horninu þannig fyrir að dags-
birtan nýtist sem allra best.
Sitjið þó ekki með andlitið í átt
að glugganum heldur látið alltaf
birtuna koma frá hlið, helst
þeirri vinstri.
Ljós yfir borðinu
Borðið vill oft verða eini
staðurinn þar sem fjölskyldan
virkilega kemur saman og þá
oftast til að borða. Þegar sest er
inn í stofu verður borðið oft líka
í miðpunktinum. Því skiptir
lýsingin yfir borðum mjög miklu
máli. Ljósakrónur fara þá oft vel
ef þær eru hafðar nógu síðar. Þá
er ljósið takmarkað við borðið
eingöngu en skín ekki framan í
fólk. Best er að hafa ljósið
akkúrat í augnhæð fyrir þá sem
við borðið sitja því sé það of lágt
vilja menn lúta fram til þess að
sjá hver framan í annan.
Ljósakrónur yfir borðum koma
að bestu gagni ef skermar þeirra
eru ekki of gagnsæir og þær
varpa ljósi á takmarkað svæði.
Veljið því lampa með stærð
borðsins í huga.
Oft er það vandamál þegar
setja á upp ljósakrónur yfir
borðum að rafmagnsdósirnar í
loftinu eru ekki á réttum stað.
Eina ráðið er að setja krók í
loftið, yfir borðið, og leiða
snúruna í hann frá dósinni.
Nú eru víða á markaði ljós
sem má stytta eða lengja i
snúruna eftir atvikum. Sé borðið
notað bæði til þess að borða við
og sitja og rabba eru þetta
dálítið sniðugur möguleiki.
Nú legg ég augun aftur.
Lýsingin í svefnherberginu
vill oft sitja á hakanum.
Mestur tíminn sem við dveljum
þar fer hvort eð er í svefn. En
við þurfum gott ljós, bæði áður
en við förum að sofa og eftir að
við vöknum. Ef svefnherbergið
er bara notað til að sofa í en ekki
sem vinnukrókur þurfa samt að
vera ljós við rúmið svo hægt sé
að lesa eftir að fólk er komið upp
i. Sé herbergið stórt er jafnvel
þörf á stórum gólflampa eða
ljósakrónu lika t.d. við skápana.
Ljósin við rúmið þurfa að vera
góð til að lesa við en samt ekki
þannig að þau trufli þá sem vilja
sofa. Þarna gætu vel komið til
greina litlir ljóskastarar. Þeir
kasta ljósinu öllu á lítinn blett og
hægt er að snúa þeim í margar
áttir. Hengið gjarnan tvo
kastara þétt saman yfir mitt
rúmið. Eða þá sinn við hvorn
enda gafls rúmsins. Bara að
kastararnir séu ekki alveg yfir
höfðinu.
Lampar barnanna verða auk
Nettur, Iftill trélampi með striga-
skermi sem fer vel i hippalegum
húsakynnum. Lampinn kostar 5.700 i
Ljósi og hita á Laugaveginum.
Ef einhver hefur gaman af að lesa f
stofunni ó kvöldin en vill ekki valda
öðrum ónæði með Ijósi er þessi
lampi fyrirtak. Hægt er að hafa
kveikt hvort sem er á báðum
Ijósunum eða bara öðm f einu.
Lampinn kostar 14-26 þúsund krónur
í Ljósi og orku á Suðurlandsbraut.
Þessi lampi er mjög sniðugur í
barnaherbergið og þó á þessum
tímum jafnréttis megi ekki kyn-
greina leyfum við okkur að segja að
strákar verða nú öllu veikari fyrir
honum en stelpur. Kveikt er á
lampanum með því að „setja í gír".
Hann kostar 29.450 í Glampanum á
Suðurlandsbraut.
Standlampi frá Ljósi og orku á
Suðurlandsbraut Lampinn kostar 69
þúsund og hæfir sérlega vel við
hægindastólinn i stofuhorninu.
Sniðugt Ijós i eldhús. Hlifin sem litur
út eins og viskustykki er úr
plastefni, Ljósið kostar 3 þúsund f
Lýsingu á Laugaveginum.