Vikan - 02.11.1978, Blaðsíða 20
Eins og kemur fram i textanum, sér-
sauma feldskerarnir hjá Eggert
Jóhannssyni feldi og kipur eftir vali
viðskiptavinanna. Þetta glæsilega
vesti var einmitt saumað fyrir einn
viðskiptavininn, en skinnið er af
áströlskum opossan.
Þessi pels er ein sérstæðasta og
fallegasta flikin, sem er á boðstólum
hjá Eggert Jóhannssyni. Hann er úr
Tíbetlambi og kostar 330.000 krónur.
AÐ FJÁRFEST
í FELDI
Þegar keypt er ný yfirhöfn
fyrir veturinn þýðir ekkert ann-
að en að vanda valið vel, þar
sem slík kaup eru hrein og bein
fjárfesting. Flíkin er ekki aðeins
keypt með það fyrir augum, að
hún þurfi að endast einn vetur.
Slíkt er á fárra færi, eins og verð-
lagið er i dag. Hún þarf að vera
sígild, henta við öll tækifæri og
umfram allt vera þægileg.
Margir telja mokkakápurnar
íslensku einmitt standast allar
þær kröfur, sem til vetrarflíkur
eru gerðar, og einnig eru þær á
mjög viðráðanlegu verði, þegar
allt þetta er tekið með í
reikninginn.
Feldskurðarstofa Eggerts
Jóhannssonar er nýtt fyrirtæki,
sem sett var á laggirnar nú i júlí
1978, en þaðan eru einmitt þær
flíkur, sem við sjáum hér á
myndunum. Þrátt fyrir ungan
aldur hefur fyrirtækið
blómstrað, en eigendurnir hafa á
boðstólum sérsaumaða feldi og
mokkaflíkur, sem saumaðar eru
í venjulegum stærðum og eftir
máli. Er viðskiptavinum hjálpað
í vali eftir föngum. — Til
gamans sýnum við einnig