Vikan - 02.11.1978, Page 34
llli.
TJEKNI
MLA 1
vasanum.
Nú er hægt að ná til þín
... hvar sem er!
Nú skiptir engu máli, hvar þú ert.
Hægt er að ná til þín með litlu
tæki, sem þú berð í brjóst-
Píp . .. ! Einhver er að reyna að ná sambandi við þig. Fyrir viðgerðarmanninn
uppi á þaki, fyrir næturvörðinn á gangi, fyrir kaupsýslumanninn á ferðalagi,
getur þetta litla píp haft mikla þýðingu. Fyrir lækninn, fyrir lögreglumanninn,
eða fyrir slökkviliðsmanninn getur það þýtt bilið mirii Trfs og dauða. Þegar
einhver vill að þú hringir í sig, berast boð á FM bylgjum um allt landið og pípið
heyrist í móttakara þínum, sem þú getur auðveldlega borið í brjóstvasanum.
Kerfi þetta veröur tekið í notkun í flestum Evrópulöndum innan skamms.
Einhver reynir að ná sambandi viö þig í gegnum leitartækið. Merki frá tækinu
fer um útvarpssenda Landssímans um aKt land. Merki frá útvarpssendunum ná
sambandi við tæki þitt og það gefur frá sér píptón. Fyrirtækið, sem framleiðir
þessi tæki, framleiðir einnig fullkomnari gerð sem sýnir hvaða símanúmer þú
átt að hringja í, sem auðvitað er betra.
Fyrir viðgerðarmenn, sem þurfa að vera á ferð og
flugi milli vinnustaöa, getur tæki sem þetta haft i för
með sér mikinn tímasparnað. Kerfi þetta er einnig
ódýrara og einfaldara en stuttbylgjutalstöðvar, sem
notaðar hafa verið hingað til.
Tæki þetta má einnig nota til þess að senda út
hópkall til aðstoðarslökkviliðsmanna eða hjálpar-
sveita. Til þess að ekki sé hægt að misnota kerfið er
hluti af kallmerki þess hafður á dulmáli.
Leitartæki þetta, eða símsvari kemur sér vel fyrir þá,
sem verður að vera hægt að ná sambandi við. Þó
þeir séu önnum kafnir við t.d. að draga á land stór-
lax, þá geymir tækið upplýsingar um þá, sem reyna
að ná sambandi við þá á meðan þeir koma laxinum á
land!
msm
É&S
•:•:■:•:•
m
:*:*
::::
*:*
m