Vikan - 09.11.1978, Blaðsíða 18
Það er ys og þys, maður stendur á nærbuxunum
og er kominn í aðra buxnaskálmina, og rétt hjá
honum stendur stúlka úti á miðju gólfi og setur
íslandsmet í því að fara úr fötunum á sem
skemmstum tíma.
Eflaust renna margir grun í, hvað er á seyði. Við
erum stödd bak við sviðið í Laugardalshöll rétt áður
en tískusýning er að hefjast. Oft, þegar maður situr
úti í sal og horfir á sýningarfólkið líða inn í Ijósa-
dýrðinni, þá leiðir maður hugann að því, hvað
liggur að baki þessum góða árangri, og hvernig í
ósköpunum fólkið fer að því að hverfa t>ak við
tjöldin öðrum megin, en birtast síðan hinum megin
á sviðinu eftir örskamma stund og þá í gjörólíkum
búningi!
Allt þetta skýrðist, þegar litið var yfir vígvöllinn.
Þarna hjálpuðust allir að, og fyrirskipunum var fylgt
út í ystu æsar. Fötin biðu á sínum stað, allt í skipu-
legum röðum til að flýta sem mest fyrir. Og ef tími
gafst til, var gott að slappa af með Vikuna í hendi..
Ljósm.: Jim Smart HS
18 Vikan 45. tbl.