Vikan


Vikan - 01.02.1979, Síða 36

Vikan - 01.02.1979, Síða 36
Tómstundaiðja ýmiss konar: ANDSVAR VIÐ HRAÐA NÚTÍMANS Á tímum hraða og neyslu er ekki nema eðlilegt að fólk leiti einhverrar andstæðu, sem iðka mætti í frístundum. Vikan á neytendamarkaði brá sér í verslunina Litinn, Síðumúla 15, fyrir nokkru og forvitnaðist um, hvað þar væri að finna nútíma- manninum til gleði og afþreyingar. Þar reyndist þó nokkurt úrval hluta, bæði til postulínsmálunar og málunar á tré, en það síðarnefnda mun ekki enn hafa náð útbreiðslu hér á landi, sem sambærileg gæti talist við önnur Norðurlönd. í þessari Viku kynnum við fyrri hluta greinar okkar um tómstundaiðju, sem fjallar um postullns- málun, en segjum sfðar frá málun á trévöru. Kínverjar fundu ekki aðeins upp púðrið, heldur líka postu- línið, sem er ekki síður heims- þekkt en hið fyrrnefnda. í kínverskum sögum má rekja sögu postulínsins allt aftur til tíma Sung-anna, þ.e. frá 960- 1280. Elstu postulínsmunir, sem varðveist hafa, eru frá valdatíma hins fyrsta Ming-keisara, en hann ríkti um miðja þrettándu öld. Til Evrópu barst svo postu- línið frá Kina með kaupskipum, þó ekki nema takmarkað magn fyrr en á sextándu öld. Þá varð það strax þekkt í Svíþjóð, Danmörku og Englandi og yfirleitt kennt við austurindisku kaupmennina. Fram að þeim tíma, og jafnvel lengur, var Kina eitt um að reyna að anna postu- línsþörf jarðarbúa. Kínverjar höfðu einir manna einstæða tækniþekkingu í sambandi við postulín, og það tók Evrópubúa aldir að leysa gátuna um hina hörðu húð postulínsins. Þekktasta framleiðsla Evrópu- búa í postulíni, á meðan leitin stóð sem hæst, mun vera hið svonefnda mjúka postulín, sem náði hápunkti i Medici-postu- líninu, en aðeins mjög fáir og sjaldgæfir munir af þeirri gerð hafa varðveist til okkar daga. Árið 1710 tókst svo J. F. Bottger að leysa gátuna um harða postulínið, og voru fyrstu hlutirnir af þeirri gerð framleiddir í verksmiðju hans í Meissen. Eftir það náði postu- línið skjótri útbreiðslu um alla Evrópu, og kannast eflaust allir íslendingar við Hina konung- legu dönsku postulíns- 36 Vikan 5. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.