Vikan - 01.02.1979, Page 63
röksemdir þeirra, og þá getið þið
sennilega komist að viðunandi
samkomulagi fyrir báða aðila.
Ekki til að
henda á hlað
Jóhannes Guömunusson,
grinari, sendi Vikunni eftir-
farandi:
Vikan er nú fertugt blað,
sem allir verða að lesa,
eins og margir vita það,
■en ekki til að henda á hlað.
Ég er
víst óvinsæl
Halló Póstur!
Ég er 12 ára gömul stelpa,
og mér líður svo illa. Við erum
þrettán stelpur í bekknum, og
þegar við eigum að sitja tvcer
og tvær saman, þá vill aldrei
nein þeirra sitja við hliðina á
mér — ég er alltaf ein eftir. Þá
verð ég spæld, og allir halda,
að ég sé svona mikill fýlupoki.
Ég er víst óvinsæl. — Kannski
er þetta af því að ég er ekki
eins sæt og hinar og af því að ég
á ekki eins fin föt og þær.
Mamma saumar fiestöll fötin
mín.
Þetta var ekki svona í
hinum skólanum, sem ég varí.
Ég átti heima á litlum stað úti
á landi, en fyrir tveimur árum
fiuttum við í stærri kaupstað,
og ég varð að fara í nýjan
skóla. Síðan er allt í klessu.
Pabbi og mamma segja, að
þetta sé bara af því að ég sé ný
í bekknum og að ég eigi ekkert
að taka eftir þessu. Að þetta
lagist allt. En nú er ég búin
að vera í bekknum í bráðum
eitt ár, og þetta er ekki svona
hjá bróður mínum.
Elsku póstur. Ekki segja, að
þetta sé ekkert mál! Hvað á ég
að gera? Mamma hefur alltaf
sagt við mig, að ég sé góð og
kát stelpa!
Beta.
Þú átt alla samúð Póstsins, því
þetta getur satt að segja alls ekki
verið neitt auðvelt. Reyndu að
taka þetta ekki svona nærri þér,
því ef þú gerir það verður þú
bara niðurdregin, og þá langar
stelpurnar ennþá síður til þess
að kynnast þér. Þetta getur
verið tímabundið, sennilega ert
þú aðeins lengur að kynnast en
flestir aðrir. Heimasaumuð föt
geta í mörgum tilvikum verið
helmingi fallegri en þau, sem eru
fjöldaframleidd, en ef þau baga
þig og auka á minnimáttar-
kenndina ættir þú að ræða um
það við móður þína. Hún verður
örugglega fljót að skilja, hvar
skóinn kreppir. Láttu það ekki
hvarfla að þér, að þú sért að ein-
hverju leyti ekki jafnlagleg og
hinar stelpurnar, þvi maðurinn
er að miklu leyti það, sem hann
heldur sjálfur að hann sé. Hertu
upp hugann og auðsýndu örlitla
þolinmæði, þetta lagast allt,
þegar þú hefur fengið aðeins
meiri tíma til að aðlagast
bekknum.
Pennavinir
Ingibjörg Jóna Guðlaugsdóttir, Kirkju-
braut 5, 230 Innri-Njarðvik óskar eftir
að skrifast á við stelpur á aldrinum 10-12
ára, er sjálf 14 ára. Áhugamál: dýr,
lestur spennandi bóka, dans og margt
fleira. Svarar öllum bréfum.
Sirna Björnsdóttir, Hafnarbraut 10,62u
Dalvik óskar eftir pennavinum á
aldrinum 9-10 ára. Hún er sjálf að verða
10 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt
er, og hún ætlar að svara öllum bréfum.
Lóa Ólafsdóttir, Eyjahrauni 11, 815
Þorlákshöfn óskar eftir að skrifast á við
stráka og stelpur á aldrinum 13-15 ára.
Hún er sjálf 13 ára, hefur margvísleg
áhugamál og biður um, að mynd fylgi
fyrsta bréfi ef mögulegt er.
Margit Bongartx, Luxemburgerstr.
308, 5030 Hiirt, West Germay er þýsk
stúlka sem hefur mikinn áhuga á því að
kynnast íslenskri stúlku á aldrinum 14-
16 ára í gegnum bréfaskriftir. Hún er
sjálf 15 ára og þykir gaman að íþróttum,
dýrum, músík, útilegum og ferðalögurn.
Eygló Eiriksdóttir, Rjúpufelli 27, 109
Reykjavik óskar eftir pennavinum
(strákum) á aldrinum 15-18 ára. Er sjálf
15 ára. Áhugamál margvísleg og mynd
fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Halldóra Birgisdóttir, Ásabraut 8, 245
Sandgerði óskar eftir pennavinum á
aldrinum 16-19 ára. Er sjálf 17 ára.
Áhugamál ýmisleg. Mynd fylgi fyrsta
bréfi ef hægt er og hún svarar öllum
bréfum.
Kristin S. Árnadóttir, Sindrabæ Ásvegi
27, 760 Breiðdalsvik, og Jónina B.
Birgisdóttir, Ásvegi 28, 760 Breiðdals-
vlk óska eftir pennavinum á aldrinum
12-14 árá. Eru sjálfar 12 ára. Áhugamál
eru t.d. sund, skíði og allar aðrar íþróttir.
ÞVERMÖÐSKU-
FULLI BJÖRNINN
FEBRUAR
- ÖÚTREIKNANLEGI MORÐINGI
William Jon Watkins
skráði eftir frásögn
Tom Brown
ÁRÁSIN Á
FORSETA-
HÖLLINA
Tiltölulega nýr vímugjafi, PCP, er ódýr og auðfenginn
— og um leið einhver allra hættulegasti vímugjafinn,
„*.**,*»* „ENGLARYK”
BÓK í BLAÐFORMI
S.tbl. Vlkan 63