Vikan - 12.07.1979, Blaðsíða 36
Hjónabandsgildran
Eftir Marnie Ellingson
R£
ÆTT ÁÐUR en Dough Malc-
olm’kom að skrifstofudyrum Tanyu
Ramsey, heyrði hann fyrsta brot-
hljóðið, næsta kom broti úr
sekúndu, áður en hann stöðvaði ferð
sína eftir ganginum og stakk
höfðinu inn. ,,Hvað gengur á?”
spurði hann.
Hún leit upp og ýtti þykku,
dökku hárinu frá augunum. ,,Ég er
í reiðikasti,” sagði hún kuldalega,
Honum virtist það svo auðvelt. Þau
áttu nægilega margt sameiginlegt til
að endast þeim alla ævina, næsta
skref var augljóst... En Tanyu
grunaði, að um snöru væri að ræða —
og hún var stúlka, sem þekkti þessa
hluti.
,,eins og hvaða bjáni sem er getur
greinilega séð.”
,,Er nokkuð, sem ég get gert?”
,,ÞÚ gætir brotið þennan lampa,
ef þú vilt. Það er hvort sem er
bilaður á honum rofinn. ,,Hún
braut þrjá blýanta snyrtilega í
tvennt og henti þeim í ruslakörfuna.